Sagnir - 01.06.1995, Side 23

Sagnir - 01.06.1995, Side 23
byijun þeirrar nítjándu minnkaði fijó- semin.30 Á timabilinu 1841 - 1850 dóu 42,9% drengja hér á landi áður en þeir náðu eins árs aldri, en 36% stúlkna.31 Þessar tölur gefa til kynna háa tíðni ung- bamadauða, en samfara því var fijósemi kvenna mikil. Það er þvi ekki ólíklegt að þessi þáttur hafi átt við hér á landi. LOKAORÐ Eftir því sem sagnfræðingar taka sér fleiri svið fyrir hendur til rannsókna verða rannsóknaraðferðimar fjölbreyttari. Kenningum úr hagfræði, mannfræði, fé- lagsfræði og svo mætti lengi telja, er beitt við hinar fjölbreyttustu rannsóknir. Hér hefur verið farið á vit tölfræðinnar, en það má segja, að sagnfræðin og hún tengist órjúfanlegum böndum og hefur svo verið um langan tíma. Tölfræðin gef- ur okkur möguleika á að varpa nýju ljósi á það sem áður hafa verið taldir hvers- dagslegir hlutir. Konur í Stóra-Dalssókn og Reynis- sókn vom ekki ólíkar öðrum konum í kringum landið, þær giftust á svipuðum aldri og áttu álíka mörg börn sé litið út ffá meðaltalinu. Það gefur þó ekki alltaf rétta mynd af raunveruleikanum. Fjöldi mánaða, hjá þessum konum, á milli fæð- inga var 25,57 mánuðir í Reynissókn og 26,67 mánuðir í Stóra-Dalssókn sem er á nokkuð svipuðum nótum og Loftur Guttormsson kemst að í rannsóknum sínum. Gögnin sýna aftur á móti að það voru ekki margar „meðaltalskonurnar“, heldur áttu þær annað hvort fá börn, eða þá mörg. Vart er hægt að tala um mark- tækan mun á milli sóknanna tveggja. Þeir þættir sem mest áhrif hafa á fijó- semi eru giftingaraldur og bijóstagjöf. Hér á landi var giftingarhlutfallið nokk- uð lægra en það sem gerðist í kringum okkur. Þrátt fyrir að íslenskar konur gengu seinna í hjónaband var fæðingar- tíðni svipuð hér og annars staðar. Það gefur því til kynna að nokkuð færri ís- lenskar konur héldu uppi þessari fæðing- artíðni með því að eiga fleiri böm en kynsystur þeirra í nágrannalöndunum. Þessi mikla frjósemi stjómast líklega af því að íslenskar konur höfðu ekki böm sín á bijósti. Með því að hafa bam sitt á bijósti frestuðust tíðir sem þýddi að getnaður átti sér ekki stað. 1 Skandinavíu voru konur með böm sin á brjósti í eitt til tvö ár. Má því telja að þessar konur hafi verið ófijóar í 12 — 13 mánuði. Islenskar konur vom ekki með böm sín á brjósti sem þýddi að ekki var um neitt ófrjósemis- skeið að ræða hjá þeim. En fleiri þættir gátu komið til sem höfðu áhrif á fijósemi kvenna eins og t.d. há tíðni ungbarna- dauða. Erfitt er að alhæfa út frá rannsókn sem þessari. Þrátt fyrir að hér hafi verið skoð- aðar tvær sóknir, verður að hafa í huga að þær vom aðeins lítið brot af þeim fjölda sókna sem vom allt í kringum landið. Eins er ekki ólíklegt að nokkur munur hafi verið á fijósemi kvenna allt eftir því hvar á landinu þær bjuggu. Svörin verða því langt frá því tæmandi og má segja að fleiri spurningum sé ósvarað í lokin en lagt var af stað með í upphafi ferðar, eins og skáldið mælti forðum: Leiðin er að vísu varla vogandi nema hraustum taugum, en mér fannst bara bezt að fara beint af augum,32 Tilvísanir 1 Þjóðskjalasafn Islands. Prestþjónustubók. Stóri-Dalur undir Eyjafjöllum 1816 - 1848. 2 Tólfrœðihatidbók 1984. Reykjavík, 1984. (Hagskýrslur íslands II, 82), 47. 3 I bók sinni Bemska, ungdómur og uppeldi á einveldisöld, kallar Loftur Guttormsson þetta fjölskyldumyndunarferli (bls. 136). Hér verður not- ast við það hugtak. 4 Sbr. prestþjónustubækur fyrir Stóra-Dalssókn en inn í þær er skráð ef menn dvöldu langdvölum að heiman, m.a. ef menn fóru í verið. 5 Agústa Bárðardóttir: „Teflir hver um tvo kosti að tapa eða vinna. Um Einar Brandsson og afrek hans.“ Sagnir (14, 1993), 41. 6 Einar Laxness: Islatidssaga a - k. 2. útgáfa. Reykjavík, 1987, 245. 7 í bók Lofts Guttormssonar, Bertiska, ungdótnur og uppeldi á eitiveldisöld, er að finna töflu þar sem hann rekur fjölskyldumyndunarferli hjóna frá Kringlu í Mosfellsprestakalli. Er þessi tafla notuð sem fyrirmynd af þeim fjölskyldumyndunarferlum sem rakin eru hér. Loftur Guttomisson: Bertiska, ungdótnur og uppeldi á eitiveldisöld. Tilrauti til félagslegrar og lýðfrœðilcgrar grcitiitigar. Reykjavík, 1983, 137. 8 Loftur Guttormsson: „Bamaeldi, ungbamadauði og viðkoma á Islandi 1750 - 1860.“ í Athöfn og orð. Reykjavík, 1983, aftanmálsgrein, 146. 9 Dæmi um óvenjumikla fijósemi frá 18. öld, er að finna í rannsóknum Lofts Guttormssonar. Loftur Guttormsson: Bemska, ungdómur. . ., 136 — 7. Loftur Guttormsson: Bamaeldi, ungbamadauði. . 153 - 4. 10 Agústa Bárðardóttir: Seljaland fœddi sína sofandi. Seljalatid undir Eyjajjöll- utn frá landtiátni til 1918. B.A. ritgerð í sagnfræði, 1993, 79. 11 Nánar er fjallað um þetta í næsta kafla. 12 Þjsk: Prestþjónustubók. Stóri-Dalur undir Eyjafjöllum 1816 — 1848. 13 Gísli Gunnarsson: Upp erboðið Isaland. Einokunarverslun og íslenskt satnfé- lag 1602- 1787. Reykjavík, 1987, 19. 14 Gísli Gunnarsson: Fertility and Nuptiality in Iceland’s Dctnographic History. Reykjavík, 1984, 12. 15 Baldvin Einarsson: Artnanti á Alþingi. Fyrsti árgangur, 1829, 44. 16 Gísli Gunnarsson: Upp er boðið Isaland, 37. 17 Gísli Ágúst Gunnlaugsson: Fatnily attd Household iti Iceland 1801 - 1930. Studies in the relationship between detnographic and socio-econotnic develop- tnent, social legislation and household structures. Uppsalir, 1988, 108. 18 GísH Ágúst Gunnlaugsson: Family and household. . ., 112. 19 Hér er ekki miðað við allar konur heldur aðeins þær sem gengu í hjónaband. Tímabilið er 1853 - 1860. Tolfræðihandbók 1984, 39. 20 Loftur Guttormsson: Bamaeldi, ungbamadauði. . ., 153. Tímabilið sem Loftur notar hér er 1856 — 1860. 21 Anderson, Bonnie S., Zinsser, Judith P.: A History ofTheir Oivti. Women in Europe from prehistory to the present. Annað bindi. New York, 1988, 241. 22 Hér er miðað við „nútímakonunar“. Messenger, Máire: Bókitt um bijóstagjöf Reykjavík, 1984, 12, 110. 23 Sigríður Sigurðardóttir: „Höfðu konur böm sín á bijósti 1700 - 1900?“ Sagnir (3,1982), 31. 24 Loftur Guttormsson: Bemska, ungdómur. . ., 138. 25 Loftur Guttormsson: Bemska, ungdómur. . ., 138. Loftur Guttormsson: Bamaeldi, ungbamadauði. . ., 151. 26 Anderson, Michael: Population Change in North-Westem Europe, 1750 — 1850. London, 1988, 44. 27 Anderson, Bonnie S., Zinsserm Judith P.: History of Their Own, 244. 28 Anderson, Michael: Population Change. . ., 46. 29 Loftur Guttormsson: Bemska, ungdómur. . ., 137. 30 Anderson, Michael: Population Change. . ., 44,46. 31 Tolfræðihandbók 1984, 50. 32 Ur ljóði Tómasar Guðmundssonar, Fjallganga. SAGNIR 21

x

Sagnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.