Sagnir - 01.06.1995, Page 40

Sagnir - 01.06.1995, Page 40
hlutverk og stendur í öðru samhengi en í texta sem stefnir einungis að því að lýsa fortíðinni út frá forsendum sagnfræð- innar eða fróðleikssafnara sagnaþáttanna. Við getum tekið sem dæmi Svartfiigl Gunnars Gunnarssonar sem segir frá tveimur morðum árið 1802, réttarrann- sókn og dómi yfir sakafólkinu. I raun og veru er markmið Gunnars með sögunni ekki fyrst og fremst að fjalla um réttarfar, meðferð fanga eða siðferðisástand um 1800 eins og efniviðurinn gæfi ef til vill beinast tilefni til. Sögumaður Svartfugls er sálusorgari sakafólksins og á verulegan þátt í því að það játar á sig morðin. Af- skipti hans af hinum sakfelldu ásamt fleiri atburðum vekja hann til umhugsunar um samábyrgð mannanna: Eigum við að gæta bróður okkar? Gunnar formar sög- una m.ö.o. á þann veg að við greinum meginatburði hennar i nýju samhengi og sagan í heild veltir frekar upp siðfræði- legunr spurningum en sagnfræðilegum. Form og stíll sagnfræðirita og skáld- verka er í nokkrum fleiri atriðum ólík. Viðfangsefni sagnfræðiverka eru oft ópersónuleg fýrirbæri, t.d. þjóðir, stjórn- málaflokkar, fýrirtæki og félög. Skáld- sagan hefur undantekningarlítið persónur sem aðalsöguhetjur. Rökleg umræða um heimildir, aðferðir og hlutlægnisvandann er augljóslega fýrirferðarmikill stílþáttur sagnfræðiverks. Það er ekki útilokað að finna slíkt í sögulegum skáldsögum en þar er frásögnin yfirgnæfandi að sjálf- sögðu. Frásagnarháttur sagnfræðiverks er að jafnaði þannig að sagnfræðingurinn stendur utan og ofan við frásögnina, hann lítur til baka og miðlar þekkingu sinni um fortíðina, segir frá en sviðsetur venjulega ekki. I meginatriðum reynir hann að vinna eftir þeirri reglu að við- horf hans og skilningur á viðfangsefninu séu leidd af röksemdafærslu hans. Sögu- leg viðhorf og sjónarmið byggir skáld- sagnahöfundurinn aftur á móti inn í verk sitt og talar ekki fýrir þeim að öðru leyti að jafnaði. Skáldsagan hefur fijálsara val um sjónarhorn en sagnfræðingurinn. Sjónarhorn skáldsögu getur verið hjá söguhöfimdi, aðalpersónu eða einhverri annarri söguhetju. Það er hagnýt spuming hvort beita megi í meira mæli en hingað til skáld- skaparbrögðum við rniðlun sagnfræðilegs efnis. Eflaust mætti gera það - það er virðingarvert markmið að stefna að því að miðla sögu á sem aðgengilegastan hátt svo að sem flestir lesi - en það verður reyndar ekki gert án nokkurrar áhættu. Sérstaklega held ég að nándin við pers- ónur sé vænlegt bragð. Hún ýtir efalaust undir innlifun lesandans, samsömun við persónur sögunnar og um leið verða þau málefni sem fjallað er um nákomnari viðtakanda. Ennfremur er enginn vafi á því að það lífgar sagnfræðitexta að leggja nokkuð í umhverfislýsingar og sviðsetn- ingar. Áhersla á hversdagslíf og öll þau snráatriði sem fýlgja vandaðri umhverfis- lýsingu eiga sinn þátt í að gera sögulegar skáldsögur eftirsóknarverðara lesefni en sagnfræðitexta. Ef nánd við persónur er valin og sjónarhornið fýlgir jafnvel ákveðinni söguhetju leiðir það nánast af sjálfu sér að nákvæmari umhverfissköpun er nærtæk og eðlileg. Getur þá sögulega skáldsagan ef til vill leyst hið þurra skýrsluform rannsóknar- ritgerðarinnar af hólmi? Eg er hræddur unr að það sé tæpast. Rannsóknarrit- gerðarformið verður ekki látið fýrir róða. Nýrri þekkingu í sagnfræði verður vafa- lítið áfram rniðlað í því formi áffam og eins sýnist mér að skoðanaskipti lærðra i faginu muni fara fram á þeim nótum. Ástæðan er fýrst og ffemst sú að umræða í sagnfræði snýst um röksemdir, þær byggjast svo aftur á ákveðnum aðferðum og sjónanriiðum sem heiðarlegir fræði- menn gera öðrum grein fýrir svo framar- lega sem þau eru þeim meðvituð. Rök- leg umræða er m.ö.o. óhjákvæmilega mjög ríkjandi fonnþáttur í sagnfræðileg- um texta. Þegar skáldskaparbrögðum er beitt i sagnfræði neyðist höfundurinn oft til að taka af skarið um einstök atriði sem ekki eru beinlínis örugg og heimildir fýrir. Ef hann vill sviðsetja atburð koma við sögu ótal smáatriði sem tilheyrir að vefa i frá- sögnina. Um þau verður hann æði oft að álykta út frá almennri þekkingu. Það má vafalaust í vissum tilvikum færa óyggj- andi rök fýrir að slíkar ályktanir standist vel en í öðrum má allt eins gera ráð fýrir að atriði sem lýst er hafi ekki verið eins og almennt var heldur þvert á móti allt öðruvísi — undantekning og algerlega einstakt í sinni röð - og þar með hefur höfundur verksins miðlað villandi eða röngum upplýsingum. Þarna er falinn stærsti annmarkinn við að rniðla sögulegri þekkingu i skáldsögu- formi. Það er oft nauðsynlegt að gera les- anda sagnfræðilegs texta ljóst að tiltekið atriði sé ekki óyggjandi heldur að vissar likur séu fýrir því að það hafi verið svo og svo. Um annað er einfaldlega ekkert vitað og þá verður að horfast í augu við það. Slíkir varnaglar fara illa í sögulegri skáldsögu. Eðli skáldsögutexta er frásögn, ótrufluð af greinandi og röklegri orð- ræðu. Kvikmyndahöfundur stendur frammi fýrir sama vanda þegar hann vill endurskapa umhverfi sögulegra atburða. Hann verður að þurrka út allan vafa um það t.d. hvort persónur á viðkomandi tímabili beittu tilteknum vopnum eða hvemig guðir voru tignaðir. Slíkum at- riðum geta tengst ótal fræðileg vandamál og fullt tilefni til að slá ýmsa varnagla. Þeir trufla hins vegar í leikinni, sögulegri kvikmynd og uppspunninni, sögulegri skáldsögu. Utþurrkun vafans gerir að verkum að lesanda er ekki ljóst hvar mörkin eru milli þess sem vitað er og óljóst kann að vera. Eg sé m.ö.o. ekki að sagnfræðingar geti almennt farið að kynna rannsóknir sínar með því að skrifa sögulegar skáld- sögur. Það er svo aftur annað mál hvort þeir geti i einhvequm mæli nýtt sér ein- stök brögð skáldskaparins til að lífga texta sinn. Fyrr er nefnt að gera mætti urn- hverfislýsingum hærra undir höfði, beita sviðsetningum og skapa nánd við pers- ónur. Sagnfræðingar mega þó aldrei ganga svo langt í þessum efnum að les- andinn tapi sjónar á því hvað er vitað og hvað er óvist. Það gæti orðið nokkur þraut að feta það einstigi. Eg geri hér viljandi mun á þvi að skrifa skáldverk og að beita skáldskapar- brögðum. Metnaðarfullur skáldskapur hefur önnur markmið en sagnfræði og ef einhver vill skrifa sögulega skáldsögu stefhir hann að öðru og meira en því einu að miðla samviskusamlega söguleg- um staðreyndum, rekja atburðarás byggða á sagnfræðilegum athugunum, móta trúverðugar umhverfis- og persónulýsingar eða koma á framfæri nýrri túlkun á sagnfræðilegu viðfangs- efni. Hann vill einnig miðla almennari sannleika sem ekki er bundinn einungis við sögulegar aðstæður atburða og pers- óna viðkomandi sögu. Um leið og slikt stefnumið setur mark sitt á ritverk fjar- lægist það óhjákvæmilega markmið sagn- fræðiverksins. 38 SAGNIR

x

Sagnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.