Sagnir - 01.06.1995, Síða 41

Sagnir - 01.06.1995, Síða 41
Helgi Ingólfsson Sagnfrœðin sem skáldskapur Eru sögulegar skáldsögur sagn- fræðinni til framdráttar eða til hnjóðs? Hvar liggja mörk sögu- legs skáldskapar og sagnfræði? Þegar farið var á leit við mig að svara slíkum spurn- ingum lagði ég höfuðið í bleyti. Fyrri spurningin er i mínum vatnsósa huga næsta marklaus. Að minu áliti halda skynsamir menn þessum tveimur sviðum skýrt aðgreindum, því að hvort fyrir sig á sér tilvistarrétt á eigin forsendum. Síðari spurningin er hins vegar öllu athyglis- verðari og mun ég í þessum ritstúf eink- um leitast við að svara henni. Sögulegur skáldskapur er öldum eldri en sagnfræðin. Grikkir að fomu eru oft taldir ffumkvöðlar vestrænnar vísinda- hugsunar, en löngu áður en vísindaiðkun þeirra hófst rituðu þeir sagnakvæði á borð við Hómerskviður. IUíonskviða getur frá margvíslegu sjónarhorni talist sögulegur skáldskapur, því að hún var rituð á 8. öld f.Kr. en greinir frá atburð- um sem áttu sér stað um 1200 f.Kr. Sagnfræðin sem sérstök fræðigrein leit hins vegar ekki dagsins ljós fyrr en með Heródótosi á 5. öld f.Kr. og vísindaleg sagnfræði kemur raunar ekki fram fyrr en kynslóð síðar með Þúkydídesi. Sögulegur skáldskapur hefúr verið til frá aldaöðli og stundum hefur mönnum verið tamt að líta á hann sem sagnfræði. Þannig töldu Grikkir Ulíonskviðu að meira eða minna leyti sannsögulega. Svipuðu m£i gegndi einnig lengi vel um Islendinga á meðan Islendingasögurnar vom áhtnar sannar. En í raun eru þessar frægu fornsögur okkar lítið annað en sögulegar skáldsögur. Þær gerast flestar á 10. öld, en em ekki færðar á skinn fyrr en á 13. og 14. öld: Hversu fastheldið sem samfélag er á hefðir sínar og hversu góð sem munnleg geymd reynist þar, þá hlýtur óhjákvæmilega að koma í hlut rit- höfundarins að skálda í eyður ef aldir hafa liðið á milli atburðatima og ritunar- tíma. Sem nútímaleg bókmenntagrein komu sögulegar skáldsögur ekki að marki fram fyrr en á 19. öld og er greinin því ung að ámm. Ef sagnfræðingar amast við henni, þá er það vegna þess að þeir gera ekki nógu skýran greinarmun á sagnfræði og sögulegum skáldskap. Sagnfræðin er fræðigrein en sögulega skáldsagan bók- menntaform. Eigi að síður er skyldleiki með þeim svo að líkja má þeim við tvær hálfsysmr sem mönnum er gjarnt að mgla saman. Sagnfræðin á að foður for- tíðarkærleik og sannfræðina að móður. Sögulega skáldsagan á sama föður, en móðir hennar er miklu fremur fagur- fræðin en sannfræðin. Að vísu láta marg- ir höfundar sögulegra skáldverka sann- fræðina sig miklu varða en hún getur i raun aldrei orðið meira en stjúpmóðir sögulegu skáldsögunnar, því að ef hún tekur yfirhöndina glatar verkið bók- menntalegu gildi sínu. En hvar liggja þá mörk sagnfræði og sögulegra skáldsagna? Astæða þess að þau em svo óljós stafar af tvennu. I fyrsta lagi er sagnfræðin að verulegu leyti huglæg, þrátt fyrir alla viðleitni til hlutlægni, og í öðm lagi vísar sögulega skáldsagan í rík- um mæli til hlutvemleika, þótt skáld- skapur sé eðli sínu samkvæmt huglægur. Lítum fyrst á sagnfræðina. I hugum flestra sagnfræðinga snýst fræðigrein þeirra um sannfræði, hlutlægni og túlk- un. „Hvað er satt i fortíðinni“, spyr sagnfræðingurinn sig „og hvernig kem ég þeim sannleika best til skila fordóma- laus og trúr öllum hlutlægnireglum?“ Skoðum vinnubrögð sagnfræðingsins stig af stigi. Efniviður hans er vitaskuld heimildirnar sem geta stundum reynst svo snúnar að greina þarf hismið frá til að komast inn að sannleikskjarnanum - því að heimildafölsun i ýmsum tilgangi þekkist á öllum tímum og auk þess bjag- ast heimildir oft í aldanna rás af óviðráð- anlegum orsökum. Auk þess eru varð- veittar heimildir að sjálfsögðu aldrei nema brot af öllu því sem var til í fortíð- inni og sú takmörkun setur sagnfræð- ingnum skorður. Honum er fyrirmunað í sjálfu sér að veita fullkomna heildarmynd af sögunni. Setjum svo að sagnfræð- ingnum takist að komast að hinu sanna í heimildunum (ef slíkt er mögulegt), þá bíða hans enn stærri vandamál. Hvernig getur hann komið í veg fyrir að eigið gildismat, siðavitund, stjórnmálaskoðanir, trúarskoðanir o.s.frv. liti umfjöllun hans um hinar sögulegu staðreyndir? Eru það ekki einmitt þessir huglægu þættir sem ollu því að hann fjallaði um tiltekið sögulegt fyrirbæri en ekki annað? Allir sagnfræðingar kannast við það að láta stýrast af áhugasviði sínu og leitast við að fást við það. Fæstir vaða þeir með kruml- una ofan í hinn tröllaukna gullakassa sög- unnar og láta hendingu ráða viðfangs- efninu. Þegar sagnfræðingurinn hefur valið sér efni til rannsóknar (oftast út frá huglægum forsendum), þá verða enn ljón á vegi. Hvernig ber að leggja út af hinum sögulegu staðreyndum? Hvernig getur sagnfræðingurinn verið viss um að túlkun hans reynist rétt en sé ekki lituð af skoðunum hans, afstöðu og lifssýn? Sum vandamál tengd túlkun eru inn- byggð í fræðigreinina, t.d. spurningin um hvað teljist gilt orsakasamhengi sögu- legra atburða eða hvað ákvarði mikilvægi þeirra. Urn orsakasamhengi í sögunni eiga sagnfræðingar sér enga raunvísinda- lega mælikvarða og verða að sumu leyti að styðjast við sameiginlega afstöðu (consensus) innan greinarinnar. Mikil- vægi sögulegra atburði ákvarðast að nokkru af heimildunum sem varðveist hafa, en ekki síður af hefðinni, þ.e. því vali sem farið hefur fram hjá fyrri sagn- fræðingum. Af framansögðu má sjá að huglægt mat ræður miklu um hvernig sagnfræð- ingar framreiða söguna, jafnvel þótt þeir reyni ætíð að stjómast af hlutlægni. I núnum huga er besti sagnfræðingurinn sá sem skáldar fortíðina á trúverðugastan hátt. Skáldar, segi ég, þvi að ef einhveij- um sagnfræðingi tekst að komast í gegn- SAGNIR 39
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Sagnir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.