Sagnir - 01.06.1995, Page 45

Sagnir - 01.06.1995, Page 45
Erla Hulda Halldórsdóttir Dauðasök liggur við Sólin var sest bak við fannhvítan Öræfajökul í aprílmánuði 1795. Vestur undir Steina^alli lágu Reynivallabæimir, efri og neðri, dimmir og hljóðir í vornóttinni. A efri bænum settist kona upp í rúmi sínu, greip hendi milli fóta sér og andaði þungt. Hún reis á fætur, steypti yfir sig treyju, gekk hljóð- lega niður stigann úr baðstofunni og út úr lágreistum bænunt. Hún staðnæmdist á bæjarhellunni og skimaði eftir mannin- um sem hafði gengið út skömmu áður. Hann beið hennar neðan við túngarðinn þar sem þau sameinuðust í forboðnum ástarleik. Bróðir og systir, dauðasök ligg- ur við. A sólheitum júnídegi 1799 strituðu bændur á Breiðabólsstaðabæjum í Suður- sveit við vegghleðslu. Þeir unnu í þögn, aðeins heyrðist í fugli í ^allinu ofan bæj- anna, einstaka kindajarmur og baul í kú. Nú bættust við hröð hófaslög og glamur í beislistaumum. Bændurnir litu upp frá vinnu sinni og horfðu til Qalls. Maður reið hart vestur eftir götunni ofan bæj- anna, það glampaði á ríkmannleg reið- tygin og látúnshnappana á treyjunni. Þeir glottu við og gjóuðu augum hver á ann- an. Það þurfti ekki að segja þeim hver þar var á ferð, afsettur sýslumaðurinn Jón Helgason. Hann hafði ekki átt sjö dagana sæla síðan yfirvöld komust að málsmeð- ferð hans á ólifnaði Suðursveitunga. Ekki nóg með að hann hafði látið skötuhjúin á Felli óáreitt árum saman, aðeins hirt af þeim ríflegt sektarfé, heldur virtist sem hann hefði líka ætlað að koma þeim Reynivallasystkinum undan vendi rétt- vísinnar. Bændurnir réttu betur úr aumu bakinu og struku svitann af enninu. Það var svo sem ekki þeirra að dæma mis- gjörðir annarra. Sýslumaður fjarlægðist Breiðabólsstaðarbændur óðfluga og þeir sneru sér að vegghleðslunni á ný. Jón Helgason keyrði hest sinn áfram SAGNIR 43

x

Sagnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.