Sagnir - 01.06.1995, Qupperneq 47

Sagnir - 01.06.1995, Qupperneq 47
í baðstofunni á Kálfafellsstað lá Sigríður Björnsdóttir í rúmi nieð nýfætt barn sitt í fanginu. A rúmstokknunr sat séra Vigfús sem kominn var til að skíra annað óegta- fætt barn hennar. Það skijáfaði í ^aður- penna prestsins þegar hann skrifaði á minnisblað sitt, Anno 1797, 5ta júní fæddur drengur óegta. Foreldrar Sigríður Bjömsdóttir frá Reynivöllum. Guðs- maðurinn leit upp ffá pappírum sínum. Hann hikaði við að spyija um faðerni drengsins. Það var nánast óhugsandi að þeim Guðmundi og Sigríði hefði tekist að hittast á laun síðari hluta sumars eða í haust sem leið en séra Vigfúsi tókst ekki að beija niður kvíðann yfir svarinu. Loks ræksti hann sig og bar upp spurninguna. Sigríður leit af baminu og í augu prests- ins. „Eg lýsi Þorvarð bróður minn svo sannan foður að þessu bami sem ég er móðir.“ Þögnin í baðstofunni var alger þegar séra Vigfús bar spurninguna upp á nýjan leik og fékk sama svar. Klukkustund síðar reið maður úr hlaði á Kálfafellsstað með bréf upp á vasann til Jóns Helgasonar sýslumanns austur í Hoffelli í Hornafirði. A Breiðamerkursandi vall Jökulsá undan jöklinunt illfær og illskeytt. A vestur- bakka jökulfljótsins staldraði pósturinn við um stund áður en hann stýrði vönum hesti sínum út í þungan strauminn. Hann þrýsti fótunum að síðum hestsins, slakaði á taumi trússhestsins, og bað til guðs að kláramir kæmust klakklaust yfir. Skömmu síðar kröfsuðu þeir sig upp á austurbakka árinnar og pósturinn varpaði öndinni léttar. Hann herti á hestunum og innan skamms reið hann út í Stemmu. Hún var ekki jafn vatnsmikil og straumhörð og Jökulsá en gat verið varasöm. Austan árinnar greikkuðu klár- arnir sporið og stefndu heim að lágreist- unt húsunum undir Steinafjalli. I efri bænum á Reynivöllum lá Sigríður Bjömsdótdr í rúmi sínu. Fyrir henni lá fátt annað en dauðinn. Líkam- inn var orðinn alsettur sárum sem illþefj- andi vessar seytluðu úr. Fingur hennar og tær vom af, andardrátturinn rykkjóttur og snörlandi. Heimilisfólkið furðaði sig á hversu lengi hún hafði hfað en eitthvað hélt lífinu í þessari guðsvoluðu mann- eskju. Hún lá í rúmi sínu dag eftir dag og hlustaði eftir mannaferðum. Þijú löng ár voru liðin frá því hún ól bam í baðstof- unni á Kálfafellsstað og lýsti Þorvarð bróður sinn föður þess. Síðan þá hafði hún verið dæmd til að höggvast í Borgarhöfn, dæmd til að drekkjast á al- þingi og loks hafði kónginum þóknast að milda dóminn í ævilanga þrælkunar- vinnu í tugthúsinu i Reykjavík. Það var þýðingarlaust að flytja hana suður, dauð- sjúka af holdsveiki, um það höfðu helstu dánumenn sveitarinnar vottað. Þess vegna fékk hún að rotna í friði heima á Reynivöllum. Bræður hennar höfðu hka verið dæmdir. I Borgarhöfn til að höggv- ast og aftur á alþingi, en kóngurinn hafði líka breytt þeirra dómi í ævilanga þrælk- un. Þeir áttu hins vegar að flytjast með haustskipum til Danmerkur. Sýslu- maðurinnjón Helgason hafði misst emb- ætti sitt og verið sektaður um háar fjár- upphæðir vegna meðferðar hans á máli þeirra systkina og Sveins og Rannveigar á Felli. Svo hafði hann hrækt á dóm- araborðið að dómsuppkvaðningu lok- inni. Konan reyndi að hreyfa höfuðið en megnaði það ekki. Hún óskaði þess að dauðadómum væri enn framfýlgt, þá væri þetta stríð löngu búið og hún þyrfti ekki að liggja hér hjálparvana, rotnandi kjötstykki sem öllum bauð við. Að utan heyrði hún riðið í hlaðið og siðan óminn af samræðum fólks. Nokkur tími leið áður en faðir hennar gekk upp í baðstofuna til hennar, hokinn og hæru- skotinn. Hann settist á rúmstokkinn og tók um fingralausa hönd hennar, eini maðurinn sem snerti hana án viðbjóðs núorðið. „Skipið er farið,“ sagði hann og rödd- in skalf, „það kom bréf með póstinum. Þeir eru farnir utan.“ Titringur fór um líkama konunnar. Það var þá búið. Vitandi af þeim í tugt- húsinu í Reykjavík var alltaf hægt að halda í vonina unr að einn daginn kæmu þeir gangandi eftir sandinum, heim að Reynivöllum. Ofær um að ráða við titringinn i likamanum gaf konan föður sínum bendingu og hvíslaði að honum nokkrum orðum. Skömmu síðar mátti sjá hvar Sigríður Bjömsdóttir var borin út úr bæjargöng- unum á Reynivöllum og komið fyrir í lautu skammt fram undan bænum. Heinrilisfólkið fylgdist nreð af bæjarhlað- inu, þögult en sneri svo til vinnu sinnar á ný eftir bendingu húsbóndans. Sigríður lá með lokuð augun góða stund enda var birtan næstum augum hennar ofviða. Henni tókst loks að halda þeinr opnum og horfa til hinrins. Innan í líkamanum, þrútnum af bjúgi og rotn- andi holdi, barðist hún fýrir frelsi sínu, fýrir að komast til barnanna sinna, litlu drengjanna tveggja nreð hinrinbláu aug- un. Hún hafði fýrir löngu tekið út sína refsingu nrargfalda. Með einhveijum undraverðum krafti tókst henni að rísa upp á sára olnbogana og horfa á fann- breiður Öræfajökuls og svartan og sprunginn jaðar Breiðanrerkuijökuls. Ur augunr hennar streynrdu tár. Síðla kvölds lagði mjóa reykjarsúlu til himins við Reynivallabæinn. Eldur log- aði í fatnaði og jarðneskum eigum Sig- ríðar Björnsdóttur en í kvöldkyrrðinni glunidu hanrarshögg Björns ríka þar sem hann barði saman líkkistu dóttur sinnar. Heimildir: Alþingisbœkur íslaticis XVII. Reykjavík 1990. Einar Bragi Sigurðsson: Þá var öldin önnur II. Darraðardatisinn í Suðursveit og Jleiri þœttir. Reykjavík 1974. Márjónsson: Blóðskömtn á íslandi 1270-1870. Reykjavík 1993. Þjóðskjalasafn íslands; Skjalasafn stiftamtmanns 1-31: Bréfabók 1799-1801. Þjóðskjalasafn Islands; Skjalasafn stiftamtmanns 111-103. Þjóðskjalasafn Islands; Skjalasafn sdftamtmanns 111-113. Þjóðskjalasafn Islands; Skjalasafn stiftamtmanns 111-114. Þórbergur Þórðarson: I Suðursveit. Þriðja prentun. Reykjavík 1984. SAGNIR 45
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Sagnir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.