Sagnir - 01.06.1995, Qupperneq 58
sömu stærð og sú fyrri. Lauslega reiknað
yfir í metra út frá íslenskri alin væri
kirkja þessi um 25 m að lengd og tæpir
10 m á breidd en rúmir 17 m um stúk-
urnar, stöpullinn 8,5 x 8,5 m og kórinn
einnig 8,5 m að lengd. Öll þessi mál
yrðu nokkru stærri ef miðað væri við
Hamborgaralin sem jafngildir rúmum 57
cm13.
Þá er komið að síðustu kirkjunni í
Skálholti sem byggð var þar fýrir sið-
breytingu. Kirkjan, sem Arni Helgason
hafði upphaflega látið reisa en margoft
Grunnmynd rannsóknarsvœðisins í Skálhohi.
verið gert við, brann árið 1532.
Ögmundur Pálsson, biskup 1521-1540,
lét því gera nýja kirkju í hennar stað. Sú
kirkja mun hafa staðið til þess tíma er
Gísli Jónsson, þriðji lútherski biskupinn í
Skálholti 1558-1587, hófst handa við
nýja kirkju vegna þess hve sú gamla var
orðin léleg.14
I ljósi þessa lauslega „dómkirkna-
annáls" er nú rétt að velta fýrir sér hinum
uppgrafna grunni Skálholtsdómkirkju.
Þær rannsóknir sem gerðar hafa verið á
kirkjugrunninum benda til þess að hann
sé undan fleiri en einni Skálholtskirkju.
Hákon Christie gengur út frá því i
túlkun sinni á kirkjugrunninum að við
gerð þess krosskirkjugrunns sem sýnileg-
ur varð við uppgröftinn hafi orðið svo
mikið jarðrask að tæplega sé hægt að
henda reiður á þeim grunnum sem
væntanlega hafa staðið á undan þessum.
Christie telur grunninn því aðeins geta
gefið vísbendingu um síðustu stóru
miðaldakirkjuna sem í Skálholti hafi
staðið og nefnir Ögmundarkirkju í þvi
sambandi, sérstaklega vegna greinilegra
brunaleifa sem fundust í grunninum.
Hann útilokar þó ekki að næsta kirkja
hafi, eins og heimildir bendi til, staðið á
þessum grunni.b
I sinni túlkun telur Hörður Agústsson
víst að grunnurinn sé undan
kirkju þeirri sem Gísli biskup lét
reisa næst á eftir Ögmundarkirkju.
Að mestu hafi verið notast við
grunn Ögmundarkirkju við bygg-
inguna og sú kirkja hafi verið með
sarna sniði og af sömu stærð og
forverar hennar í nokkrar aldir.16
Ef mál þau sem til eru af hinum
fornu Jörundar- og Péturskirkjum
eru borin saman við
kirkjugrunninn i Skál-
holti kemur í ljós að stærð
dómkirknanna á Hólum og í
Skálholti á þessum tíma hefur
verið mjög áþekk. Það ætti að
vera óhætt að gera ráð fýrir
svipaðri stærð Skálholts- og
Hólakirkna a.m.k frá tímum
Arnakirkju í Skálholti, sem
eins og fram er komið þótti
stærri en fýrirrennari sinn.
Þessar kirkjur hafa því verið
allt að 50 m á lengd, rúmir 10
m á breidd um framkirkju en
um 20 m á breidd um stúk-
urnar. Auk upplýsinga úr rituðum heim-
ildum gefa innsigli Skálholtsbiskupanna
Sveins spaka Péturssonar (1466-1475) og
Stefáns Jónssonar (1491-1518)17 sterklega
til kynna að dómkirkja staðarins á bisk-
upsárum þeirra (Arnakirkja) hafi verið
þrískipa stafkirkja. Þessi einfaldaða kirkj-
umynd minnir verulega á uppsmíð þá
sem þekkt er úr norskum stafkirkjum.
Þrískipa kirkjur með háu miðskipi og
lægri hliðarskipum kallast basilikur á
tungumáli
bygging-
arlist-
innar. Slíkar byggingar eru víðast hvar úr
steini, sérstaklega dómkirkjur og klaust-
urkirkjur. Utbrotakirkjur em í raun ekkert
Dæmi um uppsmíð norskra stajkirkna.
annað en basilikur byggðar úr timbri.
Ólikt öðmm löndum kristninnar voru
dómkirkjur Islands úr timbri en að form-
inu til í anda höfuðkirkna úti í heimi.
Klausturkirkjur
Minna fer fýrir vitneskju um íslenskar
klausturkirkjur en dómkirkjumar enn
sem komið er. Að mestu styðst sá fróð-
ÆSSte.
h
Kapítulainnsigti Þingeyraklausturs frá 15. öld.
leikur við ritaðar heimildir en frá því em
þó undantekningar.
Svo vel vill til að varðveist hefur
kapitulainnsigli Þingeyraklausturs frá
15. öld og getur þar að lita stil-
færða mynd kirkju.18 Tæpast er
þetta torfkirkja en ekki er gott
að greina gerð þessarar kirkju
að öðru leyti en því að hún
virðist hafa nokkur lög af
krossböndum á gafli sínum og
einhvers konar turnspímr til
hliðanna. Bendir því flest til þess
að þarna fari einfölduð mynd
timburkirkju. Ut frá heimildum frá
Innsigli Sveins Péturssonar biskups í Skálholti
1466-1475.
56 SAGNIR