Sagnir - 01.06.1995, Page 60
Gmnnmynd kirkjutóftar að Gásmn í Eyjafirði.
öld.
hvað á henni sést. Hann heldur þvi fram
að innsiglið sýni einfaldaða mynd staf-
kirkju í norskum stíl og Borgundarkirkja
í Noregi tekin sem samanburðardæmi.
Litið er svo á að um hliðarmynd af kirkj-
unni sé að ræða.26 Ekki virðist fara milli
mála að klausturkirkjan á Reynistað hafi
á þessum tíma verið alfarið úr timbri ef
ntarka má þessa mynd.
Ef til vill voru klausturkirkjur landsins
á sínum tíma of margar og fjölbreytilegar
til að hægt væri að setja þær undir einn
hatt. Ætla mætti að þær hafi, margar
hverjar, verið með lagi latnesks kross eins
og dómkirkjurnar, þótt kirkjurnar á
klaustrunum hafi verið smærri í sniðum.
Slík tilhögun væri í raun i fullu samræmi
við kirkjulegt hlutverk dómkirknanna
þar sem á þær var litið sem móðurkirkjur
í sambandi við helgihald og aðra trúar-
iðkun og þvi ekki ólíklegt að það hafi
einnig verið svo í
byggingarlegu tilliti.
Klaustrin komust
næst biskupsstólun-
um í hinu kirkjulega
stigveldi, sem og
fjölda vígðra manna
á staðnum. Hvers
vegna skyldi það
ekki hafa verið tjáð
með áþreifanlegum
hætti í byggingarlagi
klausturkirknanna?
Ætla rná að flestar
klausturkirkjumar
hafi verið úr timbri
en innsiglismyndir
Þingeyra og Reyni-
staðar taka af öll tví-
mæli um að svo hafi
verið þar á 15. öld. Klausturkirkjan, sem
lýst er á Skriðu 1598, gefur þó tilefni til
að ætla að timbur hafi ekki verið eina
byggingarefni slíkra kirkna og erfitt er að
fyllyrða eitt né neitt um byggingarlag.
Aðrar kirkjur
Flokkur annarra kirkna er mjög stór og í
raun væri hægt að greina þær í kirkjur á
höfuðbólum, minni kirkjur og bænhús.
Vegna þess hversu skammt rannsóknir
eru komnar verður einungis stiklað á
stóru og til sögunnar nefndir nokkrir
kirkjugrunnar sem grafnir hafa verið
upp, að viðbættri rannsókn sem gerð
hefur verið á kirkjunni að Laufási í Eyja-
firði út frá rituðum heimildum.
A verslunarstaðnum Gásum við Eyja-
fjörð hefur álitleg kirkjutóft verið grafin
upp og segja má að hún sé í anda kirkna
á höfuðbólum að stærð. A miðöldum
voru Gásir stærsti
verslunarstaður á
Norðurlandi, ef ekki
á landinu öllu, og
vegna §ölda búða-
tóftanna má með
nokkrum rétti segja
að þarna sé um þétt-
býliskirkju að ræða.
Kirkjan hefur verið
að innanmáli um 24
álnir á lengd en um 7
á breidd en þar af er
kórinn um 5x5 áln-
ir.27 Hér er væntan-
lega um danska alin
að ræða sem er 62,7
cm og umreiknuð í
metrakerfi er kirkja
þessi um 15 m að
lengd og rúmlega 4 á
breidd um kirkju-
skipið. Hún situr i
hringlaga kirkjugarði
og gengið er inn að
sunnanverðu.
58 SAGNIR