Sagnir - 01.06.1995, Page 70

Sagnir - 01.06.1995, Page 70
vestræni, austræni, og dínarski kynflokk- urinn. Ekki er ljóst hvaða kyn hann á við en hann tengir vestræna kynið við Mið- jarðarhaf, austræna kynið við Alpafjöll og dínarska kynið tengir hann Austurríki og Balkanlöndum. Telur hann yfirburði norræna kynstofnsins ótvíræða. Lýsir hann þeim sem tilheyra stofninum sem hávöxnum glæsifólki sem sé „Skarpgáfað og jafnframt hugmyndaauðugt, djarft og framagjarnt, en hafi þó jafnaðarlega góða forsjá, drottnunargjarnt og vel til forustu fallið.“27 Hann heldur áfram og segir að venjulega eru þessir menn „lítið trú- ræknir, vilja fara sinna ferða, trúa frekar á mátt sinn og megin, en ríkisvaldið eða ríkissjóðinn."28 Næst norræna kyninu kemur hið vest- ræna, eigninleikar þess felast einkum í listfengi og söng en að öðru leyti , jafnast það tæpast við norræna kynið“ Austræna kynið telur hann vera „þröngsýnna, hug- myndasnauðara og metnaðanninna en norræna kynið og ódjarfara". Þeir eru betri þegnar en foringjar. Dínarska kynið segir hann vera hraust, vígdjarft og gott foringjaefni en „hafa tæpast svo mikið andans atgjörfi sem norræna kynið“.29 Þrátt fýrir að varla finnist maður af al- gerlega hreinum kynstofni segir Guðmundur augljóst að Islendingar séu að mestu af norrænu kyni.30 Hann telur ennfremur að mikilvægasti arfur þeirra ætti í raun að vera sá að vera af góðu fólki kominn. Að endingu segir Guðmundur:31 A síðust árum hefir og víða sú skoðun komið í ljós, að menning og gifta þjóð- anna sje að mestu bundin við norrænt kyn og að afturforin sje vís, ef það hverfúr og blóð þess blandast svo, að það njóti sín ekki. Þannig er það ofar- lega í Bandaríkjamönnum að banna Suður-Evrópuþjóðum að flyþa inn í landið, en menn af norrænu kyni eru þeim kærkomnir. Þeir em besta varan, sem Norðurálfan býr til, segja þeir. Tveimur árum síðar ritaði hann í sarna rit um umfangsmiklar mælingar sem hann hafði gert á eitt þúsund íslenskum karl- mönnum; hæð þeirra, limaburði, höfuð- lagi, beinvexti og fleira. Þetta vom sams- konar mælingar og gerðar voru í erlend- um ættgengisrannsóknum. Guðmundur telur nauðsynlegt að mæla menn reglulega, til dæmis með fimmtíu ára millibili. Þannig væri hægt að kanna „hvort kynið sje að batna eða spillast, hvort lifnaðarhættir manna sjeu í ijettu lagi eða ekki, hvort börnin nái eðlilegum þroska o.s. frv.“32 Sannað væri að góðir og illir eiginleikar gengu í erfðir og þess vegna væri mögulegt fyrir hveija þjóð að bæta kyn sitt. Samfara mælingunum skýrði hann frá samanburði þeirra við athuganir sínar á Landnámu þar sem hann telur, eins og margir aðrir, að landnámsmenn hafa verið mjög kynsæla menn af höfðingja- ættum. Utkoma þessara rannsókna studdi enn frekar fyrri hugmyndir um ágæti Is- lendinga sem áttu því að þakka að hafa „orðið fýrir þeim fágætu forlögum að lifa hjer einangruð í þúsund ár og að Konur af mismunandi kynþáttum. Talið frá vinstri, kona af norrænu kyni, þá kona frá Eystrasaltsríkjunum og loks samísk kona. 68 SAGNIR

x

Sagnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.