Nýtt Helgafell - 01.10.1958, Side 15

Nýtt Helgafell - 01.10.1958, Side 15
LÍFSGLEÐI í SUÐURSVEIT 6Í inni. Þá var sýslurnaður í Skaftafellssýslu Guðlaugur Guðmundsson og sat á Kirkju- bæjarklaustri. Hann var geysilegt yfirvald, stórbrotinn og geðríkur og uppstökkur, strangur upp á réttinn og harðhuga, gáfu- rnaður og málsnjall. Ymsar sögur bárust austur yfir sandana af réttarhöldum á Klaustri, en ekki veit ég, hvað satt var í þeim öllum. Hreppstjóranum í Suðursveit barst víst einhver pati af tunnutökunni í Borgarhöfn og mun hann hafa hvíslað lienni að sýslu- manni, þegar hann kom austur. Sýslumað- ur brást reiður við skipaði sakamönnun- um að koma á tilteknum degi og stund til réttarhalds að Kálfafelli. Þar var þá þing- staður Suðursveitar og þingin liáð í stofu Sigurðar, og þar skykli nú heldur en ekki réttur settur. Þetta leit ískyggilega út fyrir augum al- múgans. Tunnutakan var óumdeilanlega þjófnaður, fyrst hún varð uppvís, og Guð- laugur laus við linku að gefa afbrotamönn- um upp sakir eða dæma þá vægari dóm- um en lög stóðu til. Kannski yrði saka- mannaflutningur út að Kirkjubæjar- klaustri til frekari réttarrannsóknar og síðan tukthús í Reykjavík fyrir þjófnað á strandgózi. Það skall nú hurð nærri hæl- um, þegar skeytið hvarf úr hvalnum í tíð Arna sýslumanns. Réttarhaldsdaginn ríður sýslumaður í hlað á Kálfafelli með fylgdarmann og lausa hesta. Það gaf hlaðreiðinni meiri tign. Sigurður stóð úti á stéttinni og hjá hon- um Sigurður yngri sonur hans. Sýslumað- ur vindur sér af baki, svipþungur og valds- mannslegur og spyr stutt og hart: „Hvar eru mennirnir?“ „Hvaða menn?“ spyr Sigurður mjúklega. „Bændurnir í Borgarhöfn. Eg hef boðað þá hingað til réttarhalds.,, „Veiztu hver á stofuna?“ spyr Sigurður og glottir. Sýslumanni verður orðfall, en Sigurður fylgir fast á eftir og segir: „Þú yfirheyrir þá ekki hér í dag út af þessu skítti, og þér er bezt að fara, vesalingur!“ Þá dettur öll reisn af sýslumanni, ogliann segir: „Við skulum þá ekki tala meir um þetta, Sigurður minn. Og þar með lauk málinu. En Sigurður bregður sér austur fyrir bæjarhúsin. Þar híma sökudólgarnir, titrandi undir vegg, með yfirheyrslur Guðlaugs á forgrunni í útsýninu og tukt- hús í Reykjavík í baksýn og þar á bak við ævilangan þjófsstimpil á mannorðinu. Sigurður talar til þeirra og segir: ,,Ykk- ur er óhætt að koma, vesalingar. Ykkur verður ekkert gert,. Laugi er hættur við allt saman. Þetta verður ekki nefnt meira.“ Mig grunar, að þá bændur í Skaftafells- sýslu hefði verið hægt að telja á einum fingri, sem hefðu haft hug til að standa svona upp í hárinu á Guðlaugi sýslumanni.

x

Nýtt Helgafell

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt Helgafell
https://timarit.is/publication/1049

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.