Nýtt Helgafell - 01.10.1958, Qupperneq 30

Nýtt Helgafell - 01.10.1958, Qupperneq 30
76 HELGAFELL hefur líka orðið raunin á, því að ég hef ekki orðið þess var að nokkur maður hafi mis- skilið þennan leikdóm, annar en Kristján Al- bertsson. Ég vil taka það fram, að mér hefur ekki til hugar komið, að þessi „vinar“-kveðja Kr. Alb. til mín stafaði af illkvitni hans í minn garð, heldur blátt áfram af furðulegum mis- skilningi hans, enda hefur hann staðfest þetta álit mitt fyllilega í samtali okkar og bréfi til mín fyrir skömmu. Ég hafði sem sé ekki sett orðin „drengilegt samkomulag“ innan gæsa- lappa! Hér var því ekki um að villast: Sig- urður Grímsson talaði hér í fyllstu alvöru! Ef þessi fornvinur minn ætti ekki hlut að máli, mundi mér finnast eiga hér vel við sag- an um dr. Charles Clarke, einn af mestu lærdómsmönnum Breta á sinni tíð. Hann sat eitt sinn með nokkrum góðum vinum sínum og lét óspart fjúka gamanyrðin um menn og málefni. En er hann sá einn af góðborgurum staðarins nálgast þá félaga, þagnaði hann skyndilega og sagði svo: My boys, let us be grave: liere comes a fool“. Sigurður Grímsson * * * Ofanskráð athugasemd Sigurðar Grímsson- ar er skrifuð í tón, sem mun vera einsdæmi í íslenzku tímariti. En stundum verður fleira Svar fró að Sera’ en Sott IbVkir — og v - »■' - verður sú afsökun að duga, Kristjam i v ■ • „ , , . bæði Nym Ilelqaíelli, sem at- Albertssym. , ..... hugasemdina 'birtir, og mer, sem læt tilleiðast að svara henni. Úr því að Sig. Gr. „nennir ekki“ að tilfæra þau orð í Ieikdómi sínum um Litla lcojann, sem mér komu spánskt fyrir sjónir, þá skal ég gera það. Leikurinn gerist á eyðieyju, þar sem skip- reika fólk, hjón og vinur þeirra, hafa náð landi. Vinurinn hefur haldið við eiginkonuna árum saman og segir nú eiginmanninum frá því og mælist til að mega halda uppteknum hætti, og að þeir sofi hjá konunni sína vik- una hvor. Sig. Gr. skrifar: „Þetta kemur eig- inmanninum að vísu svo hastarlega á óvart, að honum liggur við lömun, en af því að liann er maður „rökfastur“ og hneigður til heimspekilegra ályktana, þá lætur hann til- leiðast, og er þegar samin einskonar reglu- gjörð um tilhögun samþykktarinnar, vitan- lega með fullu samþykki eiginkonunnar. — Frakkar eru menn víðsýnir í svona málum, og því hefði mátt ætla, að allt félli í ljúfa löð við þetta drengilega samkomulag.“ Ég hef auðvitað ekki sagt, að Sig. Gr. væri „gjörsamlega siðblindur“ né neitt slíkt — en aðeins leyft mér að spyrja, hvort orðið „drengilegt“ væri hér ekki viðhaft í talsvert nýstárlegri merkingu. Ég gat ekki betur séð, en að nokkur aðdáun skini út úr orðum leik- dómarans fyrir því, sem hann kallaði „víð- sýni“ Frakka í „svona málum“. Þó má vera, að ég hefði skilið ummæli hans sem miður smekklega gamansemi, ef ekki hefðu þessi orð á eftir farið: „Einhver orðasveimur var um það fyrir frumsýninguna, að siðferðið í leiknum væri ekki upp á það bezta. í viðtali við Morgunblaðið 4. þ. m. hafa leikararnir einróma þvemeitað þessu og er ég þeim jyllilega sammála“ (auðkennt hér). Hvar er gamantónninn í þessum orðum? En nokkuð í orðalagi, sem til þess geti bent, að þau séu ekki fyllsta alvara — og þá hitt allt líka? En auðvitað er skylt að trúa því, sem leik- dómarinn nú segir. Honum þykir ekki drengi- legt að lána eiginkonu sína, hvernig svo sem á stendur — hann hefur fulla skömm á öllu víðsýni í „svona málum“. Er svo góðfús lesandi beðinn að skera úr því, hvorum sé um að kenna, að ég misskildi Sigurð Grímsson. Kristján Albertsson.

x

Nýtt Helgafell

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt Helgafell
https://timarit.is/publication/1049

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.