Nýtt Helgafell - 01.10.1958, Qupperneq 32
78
HELGAFELL
UNDIR
SKILNINGS TRÉNU
Fóstbræður glíma við 18 söngkonur.
Er blaðamenn ræddu fyrir nokkrum dögum við
forráðamenn Fóstbræðra og söngstjórann, Ragn-
ar Björnsson, sagði Gunnar Guðmundsson, for-
maður Fóstbræðra: Við stöndum í mikilli þakk-
arskuld við söngkonurnar, sem með okkur syngja
hin vandasömu verk, en hér er um að ræða 18
úrvals söngkonur. Fóstbræður hafa ánægju af
því að glíma við sem fjölbreyttust viðfangsefni,
sagði Gunnar.
Mbl., 27. apríl, ’58.
Víðsýni.
Sá sem valdi kvæðin í þetta bindi, verður að
ljúka þessu forspjalli með játningu. Þegar hann
var að ákveða hvað rúm skyldi fá í bókinni, hafði
hann ekki aðeins eilífðina í huga . . . heldur og
nútímann.
Einar Ól. Sveinsson:
Forspjall að íslands þúsund ár.
Smámunalegur.
Coty gleðst jafnan fölskvalaust yfir börnum
sínum og barnabörnum og hann hefur ætíð haft
glöggt auga fyrir því, hve smámunimir skipta
miklu máli.
Mbl., 3. 6. ’58.
(Leturbr. Helgaf.)
Umskiptingar.
För þessi var farin á vegum Norræna félagsins
og gerð eftir fyrirmynd félagsskapar, sem starf-
ar víða um lönd og hefur verið nefndur „Tilraun
til unglingaskipta“, en heitir á ensku: „Experi-
ment in International Living".
Alþbl., 18. 7. ’58.
Uxar nytjast illa.
„Ég var með 215 á fóðrum í vetur, kýr 58,
kálfar frá í fyrra um 80, nokkrar kvígur og svo
tveggja ára uxar, geldir.“
Tíminn, 28. 6. ’58.
Sigursæl uppgjöf.
„Massu er einmitt ágætt dæmi um þunglama-
legan, hugsandi og hæggerðan lögreglumann, sem
gefst ekki upp fyrr en honum hefur tekizt að
upplýsa málin, sem hann fjallar um“.
Mbl., 14. 2. '58.
Fóru á mis við ódauðleikann.
Sauðnautin, sem hingað komu dóu öll að lok-
um. . . . Ársæll Árnason mun þeirrar skoðunar,
að þeim hefði betur farnast, ef þeim hefði ver-
ið sleppt lausum á æskilegum stað.
Frjáls þjóð, 10. 5. ’58.
Eðlileg viðbrögð.
Jórdaníustjórn hefur slitið stjórnmálasambandi
við Nasserstjórnina vegna þess að hin síðar-
nefnda hefir viðurkennt stjórn Jórdaníu.
Mbl., 22. 7. ’58.
Svo fólkið kæmist ekki út.
Ennfremur höfðu þeir [þjófarnir] haft á broít
með sér allar dyr . . . Alþbl., 1. 5. ’58.
Ekki langt til efsta dags.
í gær lauk í hæstarétti munnlegum málflutn-
ingi í máli réttvísinnar og valdstjórnarinnar gegn
brennumönnunum sjö. . . . Dómsdagur hefur
ekki verið ákveðinn. Mbl.
Tylliboð.
Til sölu. Fokheld jarðhæð við Sólheima. Kaup-
andi getur gengið inn í miðstöð á kostnaðarverði.
Mbl. 10. 6. ’58.
Öðru vísi en íslenzka krónan.
Allir þig hylltu ævinnar stund,
alls staðar giltu þín göfugu pund.
Úr eftirmælum í Mbl.
Sívaxandi kröfur um æðri menntun.
Málari óskast strax. Helst maður sem kann
eitthvað að draga til stafs. Auglýsing í Vísi.
Ör mannfjölgun.
Landið Alsír er talið vera 2 milljónir og 120
þúsund ferkílómetrar. íbúafjöldi er hins vegar
lítill miðað við það stóra svæði eða aðeins um
8 milljónir manna.
Morgunblaðið, 15. maí,
6. bls. 1. dálkur.
í Alsír búa 10 millj. manna.
Sama tölublað,
19. bls. 1. dálkur.
Sneið til Shakespeaies.
En ef Islendingar hefðu trúað á valdið, ef ís-
lendingar hefðu metið rétt þjóða í fallbyssum
og reiknað gildi þjóða eftir kjötþunga, þá væru
engir íslendingar til, þá hefðu liér aldrei verið
samdar þær bókmenntir sem Englendingum var
um megn að skapa.
Magnús Kjartansson, Þjóðv. 6. 8. ’58.
(Leturbr. Helgaf.)