Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.2007, Qupperneq 4

Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.2007, Qupperneq 4
föstudagur 7. september 20074 Fréttir DV Á fleygiferð við grunnskóla Tveir ökumenn voru sviptir ökuréttindum á staðnum í Kefla- vík í gær. Báðir höfðu gerst sekir um of hraðan akstur í grennd við skóla þar sem hámarkshraði er þrjátíu kílómetrar á klukkustund. Annar mældist á sextíu og fimm kílómetra hraða og hinn á sextíu og sex. Á miðvikudaginn var einn sviptur ökuréttindum fyrir sama brot, en hann mældist á sjötíu og tveggja kílómetra hraða. Lög- reglan í Keflavík hvetur ökumenn til að virða hraðamörk, ekki síst með tilliti til skólabarna. InnlendarFréttIr ritstjorn@dv.is Sandur úti um allt Sandur þakti hluta Tungu- vegs í Reykjavík eftir að tengi- vagn vörubíls valt á veginum, við Sogavog, á ellefta tímanum í gærmorgun. Bíllinn var í malar- flutningum. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni í Reykjavík urðu engin slys á fólki. Kranabíll var fenginn á staðinn svo unnt væri að rétta vagninn við. Vinnueftir- litinu var tilkynnt um óhappið, en sá ekki ástæðu til að koma á staðinn. Sérsveit en engar lamb- húshettur sérsveitarmenn leggja lögregl- unni á höfuðborgarsvæðinu lið á miðbæjarvakt í nótt og aðfaranótt sunnudags. að sögn Jóns bjartmarz hjá embætti ríkislögreglustjóra verða sérsveitarmennirnir búnir á sama hátt og aðrir lögreglumenn. Vegfarendur í miðborginni munu því ekki sjá lambhúshettuklædda sérsveitarmenn á vappi. „Þetta tengist því að vera með herta og sýnilega löggæslu í miðbænum,“ segir hann. fjórir sérsveitarmenn verða á vakt á hvoru kvöldi. Vilhjálmur Birgisson undrast launamuninn: Óskiljanleg laun stjóranna „Ég skil ekki hvernig hægt er að verðleggja manneskjur fyrir svona upphæðir, ég skil ekki þessar ótrúlegu tölur,“ segir Vilhjálmur Birgisson, for- maður Verkalýðsfélags Akraness. Sigurður Einarsson, stjórnarfor- maður Kaupþings, og Hreiðar Már Sigurðsson, forstjóri bankans, eru launahæstu stjórnendur fyrirtækja á öllum Norðurlöndum. Þetta kemur fram í úttekt sænska viðskiptablaðs- ins Affärsvärlden. Þar kemur fram að Sigurður og Einar voru með um 800 milljónir króna í laun og aðrar tekjur á síðasta ári. Þetta dugar stjórnend- unum til að vera launahæstir allra stjórnenda á Norðurlöndum. Olli-Pekka Kalliasvou, forstjóri Nokia, er rétt rúmlega hálfdrættingur á við Sigurð og Hreiðar Má. Fyrirtæki hans er þó það stærsta á Norðurlönd- um. „Það er óhætt að segja að þessar fréttir gefi byr undir báða vængi um að nóg sé til af peningunum í þjóðfé- laginu, sem ætti að geta lyft upp þeim skammarlegu launum sem verka- menn þjóðarinnar verða að sætta sig við,“ segir Vilhjálmur Birgisson og er greinilega ósáttur við launamuninn. Vilhjálmur Egilsson, forstjóri Sam- taka atvinnulífsins, segir að launa- samningar geti verið mjög sveiflu- kenndir ár frá ári. „Það þarf að skoða marga þætti samninga, þar á meða bónusa og annað slíkt,“ segir Vil- hjálmur sem telur fréttir sem þessar ekki mjög djúpstæðar. Hreiðar Már Sigurðsson tekjuhæsti stjórnandi Norðurlanda á síðasta ári samkvæmt affärsvärlden. Vilhjálmur Birgisson formaður Verkalýðsfélags akraness furðar sig á háum launum íslensku stjóranna. Stefán Pálsson, formaður Samtaka hernaðarandstæðinga, er ánægður með hvernig mál hafa þróast eftir að konur tóku við völdum í utanríkisráðuneytinu. Sá Íslendingur sem var lengst við friðargæslu í Írak sem upplýsingafulltrúi erlenda herliðsins þar var fimmtán mánuði á græna svæðinu í Írak. FRIÐARSINNINN FAGNAR ÁKVÖRÐUN INGIBJARGAR „Greinilegt er að málin eru að þró- ast í rétta átt eftir að konur fóru að sinna starfi utanríkisráðherra,“ segir Stefán Pálsson, formaður Samtaka hernaðarandstæðinga. Hann fagn- ar þeirri ákvörðun Ingibjargar Sól- rúnar Gísladóttur utanríkisráðherra að binda enda á afskipti Íslands af stríðsrekstrinum í Írak. Stefán segir það mikið gleðiefni að stjórnvöld hafi ákveðið að senda eina íslenska friðargæsluliðann heim með þessum hætti. „Það verða hins vegar margir fyrir vonbrigðum með hversu linkulega var tekið til orða í stjórnarsáttmálanum, um að menn hörmuðu sjálfan stríðsrekst- urinn þar sem nú sé viðurkennt að hluti af starfi friðargæsluliða sé í raun hernaður. Við hörmum að sjálfsögðu öll hvernig stríðið hefur þróast.“ Síðust af þremur Herdís Sigurgrímsdóttir hefur verið upplýsingafulltrúi hjá erlenda herliðinu í Írak síðan í apríl. Hún er þriðja manneskjan til að starfa við friðargæslu í Írak sem upplýs- ingafulltrúi frá Íslandi og jafnframt sú síðasta. Enginn tekur við starfi hennar, samkvæmt ákvörðun Ingi- bjargar Sólrúnar. Starfs síns vegna hefur Herdís haft majórstign, tign háttsetts her- foringja, meðan hún hefur verið við störf í Írak. Börkur Gunnarsson er einn þriggja íslenskra friðargæsluliða sem sinnt hafa starfi upplýsingafull- trúa í Írak, og það lengur en nokk- ur annar. Börkur starfaði í 15 mán- uði sem upplýsingafulltrúi í Írak og segir starfið hafa verið eins og hvert annað starf. Hlutverk hans hafi verið að koma upplýsingum til fjölmiðla eins og annarra upplýs- ingafulltrúa. Börkur vann á græna svæðina svokallaða, víggirtu svæði í Bagdad líkt, og Herdís Sigurgríms- dóttir sem væntanleg er til landsins um næstu mánaðarmót. Hann seg- ist aldrei hafa lent í nokkurskonar hættu í starfi sínu, þessa 15 mánuði sem hann vann með vestræna her- liðinu í Bagdad. Misjöfn viðbrögð Óhætt er að segja að fólk hafi missjafnar skoðanir á ákvörðun ut- anríkisráðherra. Eins og kom fram í gær í fréttum DV mun Herdís Sigur- grímsdóttir núverandi friðargæslu- liði koma heim tveimur vikum áður en samningur hennar rennur út, samkvæmt ákvörðun Ingibjagar Sól- rúnar Gísladóttur utanríkisráðherra. Geir H. Haarde forsætisráðherra, sagði í Kastljósi Sjónvarpsins í fyrra- kvöld að þetta væri ákvörðun sem hann hefði sjálfur ekki tekið, væri hann í sporum Ingibjargar Sólrúnar. John Craddock, yfirhershöfðingi Atl- antshafsbandalagsins, lýsti líka mikl- um vonbrigð- um á blaða- manna- fundi í fyrradag með að Íslending- ar hættu þátttöku sinni í Írak. Stefán Pálsson sér framfarir í utanríkisstefnu Íslendinga eftir að konur tóku við af körlum í utanríkisráðuneytinu. KolBrún Pálína Helgadóttir blaðamaður skrifar: kolbrun@dv.is ingibjörg Sólrún Kallar eina íslenska friðargæsluliðann í Írak heim. DV Sport fimmtudagur 6. september 2007 15 Sport Fimmtudagur 6. september 2007 sport@dv.is Eiður byrjaður að æfa ísland vann austurríki 91–77 í lokaleik sínum í B-deild evrópukeppni landsliða. Bls 16 Magnús Gylfason, þjálfari Vík-ings, og Guðjón Þórðarsson, þjálf-ari ÍA, voru í gær ávíttir og knatt-spyrnudeildir liðanna dæmdar til að greiða sekt er nemur tíu þúsund krónum eftir að dómur aganefndar KSÍ féll. Að mati nefndarinnar létu arnefnd KSÍ en þeir voru einungis áminntir og ekki kom til sektar vegna ummæla þeirra. Magnús Gylfason sagði eftir leik Breiðabliks og Víkings að dómarinn hafi verið „hreint út sagt lélegur“ og ingar hefðu verið þrettán inni á vell-inum“ og átti þar með við að honum fyndist dómarinn og annar aðstoðar-dómarinn vera heldur hliðhollir KR- Þjálfarar í Landsbankadeild karla Magnús og Guðjón ávíttir af aganefnd öruggur sigur Enskir fá ekki séns F r j á l s t , ó h á ð d a g b l a ð fimmtudagur 6. SEPtEmBEr 2007 d agBlaðið víSir 138. tBl. – 97. árg. – vErð kr. 235 >> Íslenska landsliðið í körfubolta vann öruggan sigur á Austurríki, 91–77, þar sem Jakob Örn Sigurðarson fór fyrir íslenska liðinu. Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu undirbýr sig af krafti fyrir leikinn gegn Spánverjum. Eiður Smári vonast til að geta tekið þátt í leiknum. Ísland vann Austurríki utanríkisráðherra bindur enda á friðargæslu íslendinga í írak: Segir rukkurum stríð á hendur >> Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra ætlar að koma í veg fyrir að draugaskuldir geti fylgt fólki eftir áratugum saman. DV hefur greint frá tilraunum Úlfars Nathanaelssonar til að rukka tveggja áratuga gamlar skuldir. fréttir >> Þeir láta sér ekki bregða við smámuni e instaklingarnir sem stunda jaðarsport. Hvort sem menn stökkv a út úr flugvélum, kafa niður á hafsbotn eða klifra á þurru lan di hefur spennan mikið að segja. Endalokin á þátttöku Íslendinga í friðargæslu í Írak þýða að einn upplýsingafulltrúi er kallaður heim tveimur vikum fyrr en til stóð. Herdís Sigurgrímsdóttir majór er síða sti íslenski friðargæsluliðinn í Írak. „Heppilegt að hafa einn mann úti til að kalla heim,“ segir Steingrímur J. Sigfússon, formaður vinstri-grænna. Sjá bls. 2. HERDÍS KÖLLUÐ HEIM Klippti á bremSur >> Tvö grunnskólabörn voru hætt komin e ftir að skemmdar- vargur klippti á bremsur reiðhjóla þeirra vi ð Melaskóla. Foreldrar hafa verið varaðir við og kennara r hvetja börnin til að gæta sín. Herdís kvödd heim síðasti Íslendingurinn sem vinnur sem upplýsingafulltrúi hjá erlenda herliðinu í Írak er á heimleið. DV 6. SePteMBer 2007
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.