Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.2007, Page 6

Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.2007, Page 6
föstudagur 7. september 20076 Fréttir DV Búddamunkar taka gísla Búddamunkar í Mjanmar tóku hóp embættismanna í gíslingu í gær. Gíslunum halda munkarnir föngnum í klaustri sínu. Auk þessa báru þeir eld að bifreiðum mann- anna. Embættismennirnir höfðu komið í klaustrið til að biðjast af- sökunar á því að á miðvikudaginn höfðu stjórnarhermenn skotið úr byssum sínum yfir höfuð munk- anna sem voru í mótmælagöngu. Embættismennirnir höfðu einnig ætlað að biðja ábóta klaustursins að koma í veg fyrir að munkarn- ir tækju þátt í mótmælum vegna hækkandi eldsneytisverðs. erlendarFréttir ritstjorn@dv.is Pavarotti látinn Hinn heimsfrægi óperusöngv- ari Luciano Pavarotti er látinn sjötíu og eins árs að aldri. Frami hans og vinsældir byggðu á sam- spili frábærrar söngraddar, söng- tækni og einstaks persónuleika. Á síðasta áratug síðustu aldar lagði hann heiminn að fótum sér ásamt félögum sínum Plácido Domingo og José Carreras, en þeir komu fram sem tenórarn- ir þrír. Hann var einn mest seldi óperusöngvari sögunnar ásamt Maríu Callas, sem einnig er látin. Hillur verslana í Simbabve eru tómar og hveitiskortur er yfirvofandi í landinu. Á meðan almenningur hefur ekki til hnífs og skeiðar selja eiginkonur lögreglumanna nauðsynjavöru á svörtum markaði. Nú eru tíu vikur liðnar síðan Robert Mugabe, forseti Simbabve, neyddi fyrirtæki landsins til að lækka verð á öllum vörum og þjónustu. Þetta gerði Mugabe í þeim tilgangi að draga úr verðbólgu í landinu sem hann segir vera á sameiginlega ábyrgð einkageirans og vestrænna ríkisstjórna sem vilji steypa stjórn hans. Síðan þá hefur tvennt gerst í Simbabve; Verðbólgan leikur laus- um hala og eykst stjórnlaust og samkvæmt upplýsingum frá ríkis- stjórninni mun hveitiþurrð verða í landinu innan nokkurra daga. Simbabvemenn horfast í augu við yfirvofandi skort á matarföngum og vörum til heimilishalds. Líklegt er talið að reiði borgara landsins verði mætt af fullri hörku öryggis- sveita Mugabes. Verslanir tæmdar Þegar Mugabe fyrirskipaði verðlækkanirnar í júní síðast- liðnum voru verslanir tæmd- ar að undirlagi stjórnarinnar. Eigendur gátu ekkert aðhafst annað en að horfa á í hryll- ingi þegar hillurnar tæmdust. Fyrr en varði jókst framboð á heimilisvöru á svartamarkað- inum. Kjöt, kjúklingur, mat- arolía, mjólk, hveiti og flest annað fékkst eingöngu á upp- sprengdu verði. En verslanir stóðu meira og minna tómar. OK-stórmarkaðurinn í Mbare er svo tómur að þar hljómar bergmálið eitt. Fyrir utan OK-stór- markaðinn standa konur í röðum við söluborð. Þar er að finna sápu, tóbak eða matarolíu. Þetta eru eiginkonur lögregluþjóna. Þær eru afurð síð- ustu aðgerða ríkisstjórnarinnar, en undanfarið hafa þúsundir sölumanna verið handteknar og vörur þeirra gerðar upp- tækar í viðleitni Mugabes forseta til að stemma stigu við svartamarkaðsbraskinu. Lögregluþjónarnir slógu eign sinni á vörurnar og létu eigin- konur sína fá þær til að selja. Draga saman seglin Vöruframboð á svartamark- aðinum er að minnka og útlit fyr- ir að hann tæmist innan skamms. Fjöldauppsagnir eru væntanleg- ar hjá tveimur stærstu verslana- keðjum landsins. Umsvifamesta bakarí landsins hefur lokað einu stærsta útibúi sínu vegna skorts á hveiti á sama tíma og þrjátíu og sex þúsund tonn af hveiti bíða af- greiðslu í Mósambík, en stjórnvöld geta ekki greitt fyrir það. Að sögn framkvæmdastóra eins stórmark- aðs í Simbabve er mögulegt að matur hverfi að fullu og öllu í landinu. Foreldrar barna í heima- vistarskólum hafa áhyggj- ur af því að börn þeirra fái ekki mat og heyrst hefur að fangelsisyfirvöld séu hætt að fæða fangana, en fari þess í stað fram á að ættingjar komi með mat handa þeim. Allsnægtir yfirstéttarinnar En þessi raunveruleiki snertir yfirstétt landsins að engu leyti. Hún virðist lifa við ótrúlegt ríkidæmi. Ekki er langt síðan dóttir Joice Mu- juru, varaforseta landsins, gekk í hjónaband og var þar ekkert til sparað. Tekin var á leigu ein Boe- ing-breiðþota ríkisflugfélagsins, fyrir tíu þúsund bandaríkjadali, og flogið með alla brúðkaupsgesti til Viktoríufossa þar sem gist var á fimm stjörnu hóteli. Þetta á sér stað á sama tíma og verðbólga í landinu mælist sjö þúsund og sex hundruð prósent og fimm hundruð þúsund simbabveskir dalir samsvara einu bresku pundi á svarta markaðin- um. Áætlað er að einn fjórði hluti simbabvesku þjóðarinnar hafi flú- ið land og áttatíu prósent þjóðar- innar lifa undir fátæktarmörkum. Árið 1990 var hveitiuppskeran þrjú hundruð tuttugu og fimm tonn, en á síðasta ári sjötíu og átta þús- und tonn. Árleg hveitiþörf í Simb- abve er fjögur hundruð og fimmtíu tonn. Kolbeinn þorSteinSSon blaðamaður skrifar: kolbeinn@dv.is tómar matarhillur 200.000 simbabvedalir duga fyrir sjö brauðhleifum. robert Mugabe Á meðan almenningur sveltur lifir yfirstéttin í allsnægtum. ekki er langt síðan dóttir Joice Mu-juru, varaforseta landsins, gekk í hjónaband og var þar ekkert til sparað. tekin var á leigu ein Boeing- breiðþota ríkisflugfélagsins. Galdrabrenna í Suður-afríku Galdrabrennur tíðkast enn í Suður-Afríku. Tvær sextugar konur voru dregnar út af heimil- um sínum í KwaZulu-Natal-hér- aði. Bensíni var hellt yfir þær og síðan borinn eldur að. Ástæðan var sú að nemendur í Manhl- enga-skólanum höfðu dag einn brostið í tilviljanakenndan grát af ókunnum orsökum. Eftir að nemendurnir höfðu rætt málið komust þeir að þeirri niður- stöðu að konurnar tvær hefðu lagt ill álög á skólann. Konurnar létust báðar, önnur strax en hin skömmu síðar. Páfinn í Vínarborg Benedikt páfi sextándi sæk- ir Vínarborg í Austurríki heim í dag ásamt föruneyti sínu. Á laugardag mun hann heimsækja basilíkuna í Mariazell en þar er er átta hundruð og fimmtíu ára gamall áfangastaður pílagríma. Á sunnudag verður hann við- staddur morgunmessu í Vínar- borg og heimsækir klaustrið í Heiligekreuz, áður en hann fer heim á ný. Mikill undirbúning- ur hefur staðið yfir í Vínarborg vegna heimsóknar páfans. Hvirfilbylurinn Felix hefur tekið sinn toll á yfirferð yfir Mið-Amer- íku. Fjöldi látinna og þeirra sem er saknað er kominn yfir hundrað og fimmtíu manns í Níkaragva. Á sama tíma og Felix herjar á Níkaragva varð strönd Mexíkó fyrir barðinu á leifum hvirfilbyljarins Henríettu. Styrkur beggja hvirfilbyljanna er í rénun, en Felix hefur skilið eftir sig slóð rústaðra heimila, aurskriða og eyðilegra þorpa og tré sem rifn- að hafa upp með rótum liggja eins og hráviði þar sem hann hefur farið um. Kofaþyrpingar Miskito-indjána sem dreifðar eru um skóglendið við austurströnd landsins máttu sín lít- ils gegn veðurofsanum. Mesta tjón- ið er á einangruðum svæðum og talið er að tala látinna eigi eftir að hækka. Embættismenn í Hondúras segja að tveir hafi farist af völdum Felix. Þrjátíu þúsund manns hafa neyðst til að flýja heimili sín og tíu þúsund hafast við í skýlum á vegum hins opinbera. Um hundrað og fimmtíu Miskito-indjánum var bjargað úti fyrir ströndum landsins. Þar hengu þeir á baujum, bátum og rekaviði. Talið er að mun fleiri séu í svipaðri aðstöðu. Hvirfilbylurinn Henríetta gekk yfir Baja í Kaliforníu og Sonora- ströndina sem eru vinsælir ferða- mannastaðir. Henríetta náði aldrei þeim styrk sem Felix bjó yfir, en kostaði engu að síður níu manns lífið við vesturströnd Mexíkó. Þegar Henríetta kom til Bandaríkjanna í gær var mestur vindur úr henni. Styrkur fellibyljanna Felix og Henríettu er í rénun en tjónið eftir þá er gífurlegt: Á annað hundrað manns létu lífið níkaragva Þorp miskito-indjána er rústir einar eftir felix.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.