Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.2007, Qupperneq 14
Þingmaðurinn úr Vestmannaeyjum, sem þurfti að segja af sér vegna hneykslismála en sneri síðar
aftur á þing, er spilltasti stjórnmálamaður Íslands að mati tuttugu manna dómnefndar DV.
Álitsgjafarnir, sem allir hafa fylgst vel með þjóðmálum síðustu áratugi, völdu Árna spilltastan með
nokkrum yfirburðum. Geir H. Haarde, formaður Sjálfstæðisflokksins, þykir hins vegar
heiðarlegastur. Sömu nöfn komu ótrúlega oft upp, einkum þau er lentu á fyrrnefnda listanum.
föstudagur 7. september 200714 Helgarblað DV
xxxxxx ÁRNI JOHNSEN SPILLTASTUR ALLRA
10 SPILLTUSTU
Árni Johnsen
„Það þarf ekkert að ræða það frekar.
Hann er svo spilltur að honum er ekki
sjálfrátt.“
„Eftir fangelsisdóminn þarf enginn að
velkjast í vafa um siðferði hans.“
„Hann hefur bætt enn frekar í með orðum
sem hann hefur látið falla eftir að hann
sat af sér refsinguna.“
„Eini stjórnmálamaðurinn sem hefur
verið dæmdur fyrir spillingu.“
„Hann hefur ekkert lært.“
1
Alfreð Þorsteinsson
„Alfreð komst upp með það að reka
Orkuveituna sem sitt eigið fyrirtæki og
byggði hús fyrir fyrirtækið sem fór margfalt
fram úr áætlun og er svo verðlaunaður með
því að vera settur yfir byggingu háskóla-
sjúkrahúss.“
„Persónugervingur spillts kerfis.“
„Honum tókst svo vel til með
Orkuveituna að hann var settur yfir dýrustu
byggingarframkvæmdir ríkisins, stóra
spítalann við Hringbraut.“
Finnur Ingólfsson
„Makaði krókinn og fær aldrei nóg.“
„Finnur angaði alltaf af spillingu
þegar hann var ráðherra og er kominn
í hóp ríkustu manna landsins vegna
einkavæðingarinnar.“
„Það að Halldór Ásgrímsson og
Finnur hafi haldið að sá síðarnefndi
ætti möguleika á endurkomu sýnir firr-
ingu beggja.“
Gunnar I. Birgisson
„Hann er eins og mafíósi, bæði á velli og
í verki.“
„Þær sögur sem hafa gengið undanfar-
in ár eru rosalegar. Umfjöllun Mannlífs var
bara toppurinn á ísjakanum.“
„Hann er dugnaðarforkur sem fer iðu-
lega fram úr sér en finnst það í góðu lagi.“
Jón Baldvin
Hannibalsson
„Raðaði í kringum sig vanhæfum og
spilltum jámönnum.“
„„Ég er breyskur maður,” sagði hann eftir
að hafa játað að hafa misnotað aðstöðu sína
og keypt áfengi á sérkjörum til að veita í af-
mælisveislu vinar síns.“
„Ruglaði saman einkaveislum sínum og
veislum ríkisins.“
Halldór Ásgrímsson
„Hefur aldrei séð neitt athugavert
við það að sýsla með kvóta í eigin þágu
á sama tíma og hann hefur geirneglt
niður kvótakerfið.“
„Hlóð undir rassinn á framsóknar-
vinum sínum með sölu Búnaðarbank-
ans.“
Sturla Böðvarsson
„Svindlið í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins
fyrir vestan fyrir fimm árum toppaði allt.“
„Það á eftir að koma betur í ljós hvernig
hann hagaði sér í ráðherraembætti. Gríms-
eyjarferjan er bara eitt dæmi.“
„Sturla var góður við vini sína og menn
eiga lengi eftir að moka ráðherraflórinn
eftir hann.“
Davíð Oddsson
„Reiðiköstin í fjölmiðlafrumvarpsmálinu
og í deilum um RÚV endurspegluðu þrönga
hagsmunagæslu.“
„Hann hætti með smán eftir viðburðarík-
an feril og notaði síðustu dagana í ráðherra-
embætti til að skipa vinum sínum á jötu
hins opinbera þar sem þeir eru tryggir til
æviloka.“
„Lífeyrislaunahækkunin til pólitíkus-
anna er smánarblettur á ferli hans.“
Sólveig Pétursdóttir
„Yfirstéttarfasið og hrokinn leyndu
sér ekki í verkum hennar og tilsvörum.“
„Með því að setja upp lúxussalerni í
dómsmálaráðuneytinu kórónaði hún
vitleysuna.“
„Veruleikinn átti ekki upp á pallborð-
ið hjá henni.”
Stefán Valgeirsson
„Tákngervingur rotins kerfis.“
„Endurvakti gamla sjóðasukkið og hélt
heilli ríkisstjórn í gíslingu.“
„Þurfti ekki á ráðherradómi að halda því
hann var snillingur í því að ráðskast með
ríkispeninga á bak við tjöldin.“
2 3 4
5 6 7
8 9 10
Aðrir sem kitluðu listann:
Guðmundur Árni Stefánsson, Björn Ingi Hrafnsson, Sverrir Hermannsson, Steingrímur Hermannsson, Guðmundur Bjarnason (fyrrv. bæjarstjóri í Neskaupstað), Ólafur Ragnar Grímsson,
Kristinn H. Gunnarsson, Albert Guðmundsson, Eggert Haukdal, Kristján Möller, Guðlaugur Þór Þórðarson, Sighvatur Björgvinsson.