Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.2007, Page 17

Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.2007, Page 17
DV Helgarblað föstudagur 7. september 2007 17 VORUM ALDREI UMKOMULAUS ERfItt Að AfLA pEnIngAnnA Elvar Jakobsson og Erna Agnarsdóttir hafa und- ir höndum gögn og bréfaskriftir sem staðfesta að Barna- og unglingaheimilið að Kumbaravogi sótti um námsstyrki fyrri þau, eftir að þau fóru frá Kumbara- vogi. Styrkir voru veittir til sérkennslu sem þau segj- ast aldrei hafa fengið. Kristján Friðbergsson, forstöðumaður á Kumb- aravogi, segir þessa styrki hafa farið áfram til viðkom- andi menntastofnunar. „Eftir því sem mig minnir fóru þessir styrkir til skólanna,“ segir Kristján. Styrkina hafi hann sótt um fyrir skjólstæðinga sína þegar þeir voru við nám í Fjölbrautaskóla Suðurlands, Hlíðardals- skóla og fleiri menntastofnunum á Suðurlandi. Kristján segir þó að minni sitt bresti nokkuð í kjöl- far þess að hann fékk blóðtappa við heila og þurfti að gangast undir flókna aðgerð. „Þeir eru örugglega til sem muna þessa hluti betur en ég,“ segir hann. Lánastarfsemi Menningarsjóðs Spurður um Menningar- og líknarsjóð Kumbara- vogs lýsir Kristján því svo að þegar fyrri eiginkona hans lést vegna krabbameins hafi hann selt megnið af eign- um þeirra og sjóðnum hafi verið komið á laggirnar með þeim peningum. „Þessi sjóður var sniðinn fyrir ungmenni sem dottið höfðu út úr skólakerfinu og áttu litla sem enga mögu- leika á því að brjótast til menntunar af eigin rammleik.“ Sáralítið hefur verið veitt úr sjóðnum hér innanlands og segir Kristján að styrkir hafi mestmegnis farið til Portúgals, Rúmeníu, Búlgaríu og fleiri landa þar sem fátækt hefur hindrað ungt fólk í að mennta sig. „Reyndar lánuðum við einnig sumum barnanna fyrir íbúðakaupum, en það voru hefðbundin lán með veði í húsnæðinu,“ segir Kristján. Hann bætir því við að eftir að skjólstæðingar hans hafi átt kost á námslánum hafi þeir ekki fengið frekari aðstoð úr sjóðnum. Fjáröflun var erfið Kristján segir að vissulega hafi verið erfitt að afla fjár til þess að reka heimilið. Samkvæmt bréfaskrift- um og gögnum sem Erna Agnarsdóttir hefur safn- að saman lýsir Kristján börnunum sem „tornæmum og svo umhverfissködduðum að greind þeirra nýtist vart“. Kristján vill síður tjá sig um þessi ummæli, en segir að þarna hafi verið á ferðinni álit sálfræðings, sem far- ið hafi offari í lýsingum sínum. „Þetta voru allt saman sérstaklega góðir krakkar og ég man ekki eftir neinum tiltakanlegum vandræðum með þau,“ segir Kristján. Börnin hafi mörg hver komið úr erfiðum bakgrunni og það hafi sett mark sitt á þau. „Þau hafa hins vegar náð ótrúlega langt í lífinu.“ Óbreyttur hugur Kristján bendir á að megnið af þeim börnum sem hjá honum dvöldu komi enn þann dag í dag í jólaboð á Kumbaravogi. Hann segir að samband sitt við hóp- inn sé sterkt og bendir því til stuðnings á það að Erna Agnarsdóttir hafi starfað á Kumbaravogi alveg þangað til á þessu ári. „Það er ekki útilokað að fólk þurfi að leita útrás- ar og gera upp sína fortíð,“ segir Kristján þegar hann er spurður um reiði sem upp hefur komið í hans garð vegna upplýsinga sem nú hafa komið í dagsljósið. Hann segir hug sinn til „barnanna sinna“, eins og hann kallar hópinn sem var á Kumbaravogi, vera óbreyttan. Kristján býr enn þann dag í dag á Kumbaravogi, 77 ára að aldri. „Þetta venst ágætlega. Upphaflega ætlaði ég aðeins að vera hér sumarlangt. Nú eru liðin meira en fjörutíu ár.“ Kristján Friðbergsson, forstöðumaður á Kumbaravogi, segir að erfitt hafi verið að afla peninga til starfseminnar. Hann minnir að námsstyrkir, sem fengust eftir að börn yfirgáfu heimilið, hafi runnið til þeirra skóla sem þau gengu þá í. Kristj- án segir sálfræðing hafa farið geyst í greiningum sínum á börnunum og ítrekar velvild sína í garð þeirra. Menningar- og líknarsjóður Kumbaravogs starfrækti húsnæðislánastarfsemi og lánaði skjólstæðingum sínum fé til íbúðakaupa. „Þessi sjóður var sniðinn fyrir ungmenni sem dottið höfðu út úr skólakerfinu og áttu litla sem enga möguleika á því að brjótast til menntunar af eigin rammleik.“ Í okkar hópi er viðskiptafræðingur, dósent við Háskóla Íslands, sölu- stjóri, múrari og pípulagningamað- ur, Elvar hefur verið aðstoðarhótel- stjóri á virtu hóteli í Hamborg og ég er menntaður sjúkraliði.“ „Við vorum nú ekki meira fram- tíðarvandamál en þetta!“ segir Elvar brosandi. „Það sem bjargaði okkur var að við vorum ekki umkomulaus. Við áttum öll fjölskyldur og ættingja sem biðu okkar,“ og Erna bætir við: „Nú er ekki ótrúlegt að einhver skrifi sögu barnaheimila fyrri tíma. Ef sú manneskja fengi bara þær skýrslur sem við höfum undir hönd- um – hvernig börn skyldi hún sjá fyrir sér þá? Ekki börn sem áttu eft- ir að standa sig í lífinu, svo mikið er víst. Lýsingarnar á okkur í þessum skýrslum eru eins og við höfum ver- ið meira og minna þroskaheft.“ Börnin farin, heimakennsla greidd Það sem vakti þó einna mesta reiði hjá þeim Elvari og Ernu við lest- ur skýrslnanna var að Kristján fékk laun sem kennari þeirra í hjálpar- kennslu eftir að þau voru farin af heimilinu. „Ég lauk námi frá Hólum í Hjalta- dal átján ára, námi sem ég greiddi fyrir sjálfur að öllu leyti,“ segir Elvar. „Faðir minn var að auki rukkað- ur fyrir aukalegu meðlagi með mér meðan ég dvaldi á Kumbaravogi og látinn greiða fatapeninga. Við feng- um aldrei ný föt, heldur var okkur úthlutað fatnaði frá hjálparstofnun- um öll árin.“ Það sem þeim ofbauð þó mest við lestur skýrslnanna er bréf Kristj- áns Friðbergssonar, dagsett 5. febrú- ar 1974, þar sem hann telur upp þau börn sem njóti hjálparkennslu hans. Meðal þeirra er Erna Agnarsdóttir: „Ég lauk unglingaprófi árið 1971 frá Hlíðardalsskóla svo ég skil nú ekki hvaða hjálparkennslu ég hefði átt að vera í á Kumbaravogi!“ segir hún. „Árið 1974, þegar farið er fram á pen- ingagreiðslur til að standa straum af heimakennslu fyrir mig var ég orðin átján ára og komin í nám við Fjöl- brautaskólann á Suðurlandi, í und- irbúningsdeild fyrir hjúkrunarnám. Er það ekki fjárdráttur frá ríkinu þeg- ar það greiðir fyrir eitthvað sem ekki var? Ég veit ekki hvað þetta kallast annars...“ Menningar- og líknarsjóður Kumbaravogs Kumbaravogi hf var breytt í einka- hlutafélag í júlí árið 1997. Það er nú rekið sem dvalar- og hjúkrunarheim- ili og samkvæmt upplýsingum úr fyr- irtækjaskrá hefur ársreikningi fyrir árið 2006 ekki verið skilað. Menning- ar- og líknarsjóður Kumbaravogs er sjálfseignarstofnun með staðfesta skipulagsskrá, en úr þeim sjóði töldu einhver barnanna á Kumbaravogi sig geta sótt um styrk í. „Ég skrifaði Kristjáni tvisvar en hann svaraði þeim bréfum aldrei,“ segir Elvar. Erna segist hins vegar hafa fengið lán úr sjóðnum og henni er kunnugt um að fleiri hafi fengið lán þar. „Þau lán voru á sömu vöxtum og önnur bankalán og á tímabili voru vextirnir meira að segja hærri en almennir bankavextir,“ segir hún. „Menningar- og líknarsjóðurinn er rekinn af Kristjáni Friðbergssyni, Halldóri Jóni Kristjánssyni og Guðna Geir Kristjánssyni, en um tilgang hans annan en til útlánsstarfsemi er mér ekki kunnugt.“ annakristine@dv.is, sigtryggur@dv.is Elvar og Erna elvar Jakobsson og erna agnarsdóttir voru bæði á Kumbaravogi sem börn og unglingar. Þau hafa nú fengið í hendur bréfasam- skipti forstöðumannsins, Kristjáns friðbergssonar, við yfirvöld. Í bréfunum er þess farið á leit að yfirvöld styrki Kristján til heima- kennslu sem elvar og erna segjast aldrei hafa fengið. Kumbaravogur Kristján friðbergsson forstöðumaður barna- og unglingaheimilisins að Kumbaravogi baðst undan því að tjá sig opinberlega um starfsemina. Hann segir engu að síður að erfitt hafi verið að afla fjár fyrir starfsemina.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.