Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.2007, Síða 20
Menning
föstudagur 7. september 200720 Menning DV
Einstakt
tækifæri
Á morgun gefst í fyrsta sinn
tækifæri til að skoða verk lista-
mannsins Eggerts Pétursson-
ar frá upphafi ferils hans til
dagsins í dag. Þá verður opnuð
yfirlitssýning Eggerts á Kjar-
valsstöðum þar sem til sýnis
eru rúmlega fimmtíu verk, þar
af nokkur sem aldrei hafa verið
sýnd áður. Listamaðurinn er
kunnur fyrir málverk af fínlegri
en harðgerri náttúru landsins
og eru verkin unnin af einstakri
nákvæmni. Sýningu Eggerts
verður fylgt úr hlaði með vand-
aðri bók um listamanninn.
Opnunin verður kl. 16.
bækur
Bókmenntahátíð í Reykjavík hefst á sunnudaginn:
Fjölmennasta Bókmenntahátíðin
Nóbelsverðlaunahafinn John
Maxwell Coetzee frá Suður-Afríku
verður meðal ræðumanna við setn-
ingu Bókmenntahátíðar í Reykjavík
á sunnudaginn. Hátíðin, sem fer nú
fram í áttunda skipti, stendur alla
næsta viku.
21 höfundur
frá fjórum heims-
álfum tekur þátt
í hátíðinni í ár. Þeirra á meðal eru
bæði heimsþekktir verðlaunahöf-
undar og ungir og efnilegir rit-
höfundar sem þegar hafa skrifað
metsölubækur í sínum heimalönd-
um. Tíu erlendir útgefendur og
níu erlendir þýðendur á íslensk-
um/norrænum bókmenntum taka
jafnframt þátt í hátíðinni. Meðal ís-
lensku þátttakendanna eru margir
af ástsælustu höfundum landsins.
Bókmenntahátíðin í ár er sú viða-
mesta og fjölmennasta sem hald-
in hefur verið en sú fyrsta var hald-
in árið 1985. Samspil veraldarsögu,
skáldskapar og ævisagna er þema
hátíðarinnar að þessu sinni. Hátíð-
in verður sett við formlega athöfn í
glerskálanum við Norræna húsið
á sunnudaginn kl. 17 til 19. Auglýst
dagskrá Bókmenntahátíðar hefst í
Iðnó sama kvöld með upplestrum
íslenskra og erlendra höfunda. Tveir
af athyglisverðustu gestum hátíðar-
innar, Coetzee og Ayaan Hirsi Ali,
lesa úr verkum sínum strax á opn-
unarkvöldinu. Ali er þekktust fyrir
gagnrýni á stöðu kvenna í íslömsk-
um ríkjum og var kosin ein af 100
áhrifamestu persónum í heiminum
árið 2005 af tímaritinu TIME. Af öðr-
um erlendum gestum hátíðarinnar
má nefna Roddy Doyle, Jung Chang,
Daniel Kehlmann, Jonas Khemiri og
Nicola Lecca.
Alla hátíðarvikuna (að fimmtu-
degi undanskildum) munu fara
fram viðtöl við erlenda höfunda
kl. 12 til 13 og kl. 14 til 15 í Nor-
ræna húsinu og upplestrar frá kl.
20 í Iðnó. Nánari upplýsingar um
hátíðina er að finna á bokmennta-
hatid.is.
Fyrstu Tíbrár-
tónleikarnir
Fyrstu Tíbrár-tónleikar
starfsársins fara fram í Salnum
í kvöld þegar rússneska mezzó-
sópransöng-
konan Irina
Romishevsk-
aya, sem er í
fremstu röð
rússneskra
söngvara,
syngur við
undirspil
Jónasar
Ingimundarsonar. Romishevsk-
aya á nú þegar að baki glæstan
feril þar sem hún hefur tekist á
við afar fjölþætt viðfangsefni.
Þar má nefna Öskubusku í
samnefndri óperu Rossinis,
Rosinu í Rakaranum frá
Sevilla og Carmen. Á efnisskrá
eru meðal annars verk eftir
Vivaldi, Purcell, Rossini, Bizet
og Tschaikovski. Tónleikarnir
hefjast klukkan 20 og er
miðasala í síma 5 700 400 og á
salurinn.is.
Leiðrétting
Í viðtali við Guðjón Ped-
ersen Borgarleikhússtjóra í
síðasta helgarblaði DV var
ranglega sagt að Þórhildur
Þorleifsdóttir hefði sótt um
starfið þegar Guðjón var ráðinn
leikhússtjóri. Þórhildur var þá
sitjandi Borgarleikhússtjóri en
sóttist ekki eftir endurráðningu.
Þess vegna var einnig farið
rangt með þegar talað var um
að Guðjón hafi verið „tekinn
fram yfir“ Þórhildi. DV biðst
velvirðingar á mistökunum.
Vefbækur fyrir nema
Eftir undirritun samkomulags milli Eddu útgáfu og Kaupþings í
fyrradag um aðgang að vefnum vefbaekur.is gefst um áttatíu þúsund
nemendum kostur á að nýta sér bækurnar. Tengja þarf net hvers skóla
við vefbækurnar og mun sambandi verða komið á í mánuðinum.
Kaupþing greiðir fyrir aðgang að vefnum fyrir alla skóla landsins.
Thor er fljótur til dyra þegar
blaðamaður bankar upp á hjá honum
klukkan eitt á miðvikudegi. Viðmótið
er eins vinalegt og hægt er að hugsa
sér. Hann er klæddur í gallabuxur og
gallajakka, í ljósum, þverröndóttum
bol, gleraugu og rauður penni í
bandi hanga um hálsinn. Það glittir
í sokka í sama lit og penninn á milli
buxnaskálmanna og brúnu leðurinni-
skónna. Gráa hárið frjálslegt og teygir
anga sína í allar áttir eins og ávallt hjá
hinum aldna rithöfundi. Leiðir huga
undirritaðs alltaf að Einstein og Ólafi
Thors.
Það er ógrynni bóka í hillum og
stöflum í stofunni. Myndir af ætt-
ingjum og vinum líka áberandi. And-
rúmsloftið er hlýlegt og afslappað.
Kannski það sem kallað er heimilis-
legt. Kaffibolli bíður blaðamanns á
sófaborðinu. Ilmandi kaffi í könnu og
kexkökur með því í skál.
Í stjórn bókmenntahátíðar
frá upphafi
Það er mikið að gera hjá Thor
þessa dagana. Þar ber hæst Bók-
menntahátíð í Reykjavík, sú áttunda í
röðinni, sem hefst á sunnudaginn og
nánar er greint frá annars staðar hér
á opnunni. Upphaf hátíðarinnar má
rekja til samtals sem Thor og Einar
Bragi, skáld og fornvinur Thors, áttu
fyrir margt löngu. Líklega árið 1984 en
Thor segist ekki muna það nákvæm-
lega. „Við sátum heima hjá honum,
í rauðu húsi í miðborginni, og hann
átti hugmyndina að bókmenntahá-
tíð. Mér þótti þetta skemmtileg hug-
mynd. Einar var líka hugmyndaríkur
og stórmerkilegur maður. Svo fórum
við á fund Knuts Ødegård skálds, sem
var þá forstjóri Norræna hússins, og
brydduðum uppi á þessari hugmynd.
Hann laðaðist að þessu og þannig fór
þetta af stað. Þetta hefur verið mikil
sigling síðan,“ segir Thor en fyrsta há-
tíðin var haldin 1985.
Thor hefur verið í stjórn bók-
menntahátíðarinnar frá upphafi og
það er að heyra á honum að það gefi
honum töluvert að vinna að henni.
„Ég hef ansi gaman af því að sigla
með. Svo hefur yngra fólk bæst í hóp-
inn við að koma þessu í kring, svona
vormenn.“ segir Thor og hlær. „Þetta
er skemmtilegt og ferskt fólk.“
Thor segir margt og mikið vera í
boði á hátíðinni að þessu sinni, bæði
hvað varðar erlenda og íslenska rit-
höfunda. Aðspurður hvaða höfund-
um hann sé spenntastur fyrir að
heyra í nefnir Thor Nóbelsverðlauna-
hafann suðurafríska, John Maxwell
Coetzee. „En suma höfunda þekki ég
ekki og því nokkur eftirvænting í mér.
Þetta er mikið skáldaval og margþætt.
Ég trúi því að þetta verði viðburða-
rík vika og vonandi finnur hver fyrir
sig eitthvað við sitt hæfi, og kynnist
kannski einhverjum sem þeir verða
svo í föruneyti með áfram.“
Blómlegt bókmenntalíf
Þegar Thor er spurður hvort mikill
munur sé á fyrstu bókmenntahátíð-
inni og þeirri sem nú fari í hönd seg-
ir hann hverja hátíð með sínu móti.
„Það er alltaf mikið um að vera og
vandasamt að koma öllu saman og
leika því saman til farsældar. Við höf-
um oft fengið stórmerkileg skáld og
nú verður líka talsvert val af þýðend-
um. Það er ansi skemmtileg nýlunda,“
segir Thor og bætir við að hann sé
sannfærður um að það skipti miklu
máli fyrir Ísland og íslenskt bók-
menntalíf að halda hátíð sem þessa.
Blaðamanni leikur forvitni á að
vita hvort Thor lesi mikið af íslenskum
samtímabókmenntum. „Ég fylgist
dálítið með. Það er alveg ljómandi
fólk margt af því sem er að fást við
þetta,“ segir rithöfundurinn reyndi
og kveðst telja að það sé blómlegt um
að litast á þessum vettvangi á Íslandi
í dag. Thor segist þó ekki vilja nefna
nein nöfn í þessu samhengi. „Maður
er kannski ekki réttur dómari. Ég gæti
nefnt eftirlætishöfunda en ég fer ekki
í manngreinarálit sökum frændsemi
og vináttu,“ segir Thor og hlær. „Og
þó maður hafi mætur á ýmsum er
maður svo bundinn við það sem
maður er að fást við sjálfur. Það verða
aðrir að skera úr og flokka. En við
verðum að gá að því að halda okkar
máli og slá ekki slöku við þar. Það er
svo mikilvægt til þess að hafa öfluga
hugsun,“ segir Thor.
Hann segir sömuleiðis erfitt að
leggja mat á gæði íslenskra samtíma-
bókmennta, eða þeirra skáldsagna
sem komið hafa út síðustu tvo ára-
tugi eða svo, samanborið við þann
Guðsröddin í brjóstinu
Thor Vilhjálmsson rithöfundur hefur
lifað tímana tvenna. Ef ekki þrenna.
Hann er kominn á níræðisaldur en er
hvergi nærri hættur að láta til sín
taka. Óhætt er að kalla Thor guðföð-
ur Bókmenntahátíðar í Reykjavík
sem hefst um helgina. Blaðamað-
ur DV spjallaði við Thor á heim-
ili hans í Vogunum í vikunni.
Thor Vilhjálmsson rithöfundur „Ég er
alltaf með eitthvað í takinu. Og heilmikið.
Ég á hins vegar erfitt með að tala um það
sem ég er ekki búinn að gera og kannski
líka þegar ég er búinn að því.“
DV-MYNDIR STEFÁN
John Maxwell Coetzee Nóbelsverð-
launahafinn suðurafríski er einn þeirra
rithöfunda sem taka þátt í hátíðinni.