Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.2007, Page 25

Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.2007, Page 25
DV Ferðalög föstudagur 7. september 2007 25 U m s j ó n : B a l d u r G u ð m u n d s s o n . N e t f a n g : b a l d u r @ d v . i s á ferðinni Veiðimet í Eystri-Rangá Veiðimet hefur verið slegið í eystri-rangá þetta sumarið en þegar hefur verið veiddur 4.661 lax og er þá metið frá sumrinu 2004 slegið, segir á heimasíðu lax-a.is. bara á miðvikudaginn náðust 193 laxar á land í einu versta veðri sumarsins. Þeir sem til þekkja eru alveg hissa á því hvað ætlar að veiðast mikið í eystri-rangá þetta sumarið og spá því að veiðin fari yfir 6.000 laxa. Heill mánuður er eftir af veiði sumarsins svo það er aldrei að vita nema sá spádómur rætist. Ganga í Brynjudal sunnudaginn 9. september næstkomandi verður farin ganga á vegum ferðafélags Íslands í brynjudal í botni Hvalfjarðar. brynjudalur er fallegur og gróðursæll dalur og er hann umgyrtur háum fjöllum á báða vegu. Í dalnum er að finna ótal perlur á borð við gil, flúðir og fossa. farið verður frá mörkinni 6 klukkan 10.00. Áætlaður göngutími er fimm til sex klukkutímar og fararstjórn er í höndum Leifs Þorsteinssonar. frekari upplýsingar um gönguna er að finna á fi.is. Fjölskyldu- ferð Helgina 14. til 16. september verður farin fjölskylduferð ferðaklúbbsins 4x4 í setur. Lagt verður af stað á föstudeginum klukkan 19.00 frá select við Vesturlandsveg. Á laugardeginum verður skipulögð dagskrá við allra hæfi með leikjum fyrir börn og full- orðna. slegið verður upp grillveislu um kvöldið og svo tekur við kvöldvaka með tilheyrandi varðeldi, söng og leikjum. frekari upplýsingar og skráning á f4x4.is en síðasti skráningardagur er 12. september. Hvað er maríufiskur? fyrsti fiskur sem manneskja veiðir er gjarnan nefndur maríufiskur. Þetta er vel þekkt orð sem hægt er að rekja í heimildum aftur til 17. aldar. maríufiskurinn var fyrsti fiskur sem sjómaður veiddi á ævinni. sinn fyrsta fisk átti sjómaður að gefa fátækustu konunni í verstöðinni þegar komið var í land. ef maríufiskur unglings var góðfiskur, sem er þorskur, ýsa eða lúða, var framtíð hans á sjónum sögð björt. Þessi siður er rakinn aftur til kaþólskrar trúar og var litið á maríufiskinn sem nokkurs konar heitfisk. Heitið var á maríu mey til fiskiheilla. Heimild: www.visindavefur.hi.is Gylfi Jón Gylfason, yfirsálfræðingur á Fræðsluskrifstofu Reykjanesbæjar, er mikill veiðimaður. Gylfi segir hér magnaða sögu af frænda sínum og veiðifélaga, sem er einstakt ljúfmenni en stundum nokkuð seinheppinn. INNBROT OG ÓNÝTT NESTI Fyrir um 10 árum fór Gylfi Jón ásamt veiðifélögum sínum til rjúpnaveiða í Mývatnssveit. Þetta var á fyrsta degi rjúpna og því var mikil tilhlökkun í hópnum. Þar sem hver bjó á sínu landshorni komust þeir ekki allir á áfangastað á sama tíma en frændi Gylfa Jóns kom manna síðastur. „Guðmundur, frændi minn, var aðeins seinn fyrir, en við sættumst á að hann myndi hitta okkur þar sem höfðum um árabil lagt bílunum okkar. Við sögðum honum að þar myndi hann finna bílinn og í honum væri nesti sem hann mætti gæða sér á,“ segir Gylfi Jón og útskýrir að þeir hafi ekki viljað að hann tefðist enn frekar við að smyrja sér nesti. Aumingjalegt nesti „Þegar frændi kom að bílastæðinu var hann mjög svangur og fann bíl sem hann taldi sig þekkja. Hann fór inn í bílinn, setti hann í gang og hóf leitina að nestinu sem við höfðum lofað honum. Milli sætanna fann hann tvö háöldruð súkkulaðistykki, volgan bjór og eitthvað smotterí sem hann át upp til agna. Honum þótti nestið hálfaumingjalegt en lét sig hafa það,“ segir Gylfi Jón en í þann mund sem Guðmundur kláraði nestið kom maður upp að bílnum. „Guðmundur byrjaði á að skamma manninn fyrir ónýtt nesti. Súkkulaðistykkið hafi verið náhvítt og bjórinn volgur. Maðurinn varð hálfhnípinn á svip og frændi ekki síður þegar í ljós kom að maðurinn var ekki á okkar vegum. Guðmundur hafði brotist inn í bíl hjá bláókunnugum manni og klárað nestið hans,“ segir Gylfi Jón og hlær. „Frændi sem er hvers manns hugljúfi sættist við manninn. Seinna bar hann því við að við hefðum gefið honum misvísandi upplýsingar um tegund bílsins. Hann sakaði okkur um að hafa sagst vera á gömlum Toyota Hælúx, en hann er sá eini í okkar hópi sem hefur nokkurn tímann átt slíkan bíl.“ Skítugt handklæði Það er siður hjá þeim félögum að baða sig í Stórugjá í Mývatnssveit. Engin undantekning var gerð í þetta skiptið. „Við skelltum okkur í kærkomið bað en frændi fór manna fyrstur upp úr og byrjaði að þurrka og þrífa af sér leðjuna sem myndast umhverfis gjána. Við tíndumst upp úr einn af öðrum en þegar síðasti maður kom upp úr baðinu fann hann hvergi silkimjúka, fannhvíta handklæðið sitt. Frændi minn er góður veiðimaður en ekki sérlega skipulagður. Hann hafði gleymt að taka með sér handklæði. Þegar upp um hann komst, stóð hann, tandurhreinn á handklæðinu í leðjunni. Hann rétti manninum handklæðið með eftirfarandi huggunarorðum: „Þetta er allt í lagi, ég notaði það bara öðrum megin.“ Te og kaffi Þeir félagar veiddu vel þessa helgi en manna best veiddi frændinn. Hann var í góðu skapi og bauðst til sjá um að hita kaffið og elda matinn áður en þeir legðu af stað heim. Eigandi handklæðisins, jafnan kallaður Sorinn, er mikill tedrykkjumaður en hefur óbeit á kaffi. Guðmundur fékk skýr fyrirmæli um að setja kaffið ekki í tebrúsann, sem var sérstaklega merktur með bláu bandi. Hann mætti manna fyrstur inn á Skútustaði og kveikti undir pottunum eins og um var samið. „Þegar við mættum á svæðið, örþreyttir og svangir, mættum við pottréttinum í dyragættinni. Kokkurinn var hvergi sjáanlegur en fannst sæll og glaður í heita pottinum þar sem hann malaði í símann og drakk kaffið sem var að sjálfsögðu í tebrúsa Sorans,“ segir Gylfi Jón en bætir við að matarskammturinn hafi verið naumur í þetta skiptið. Gylfi segir Sorann seinþreyttan til vandræða en Guðmundur frændi sé eini maðurinn sem geti komið honum úr jafnvægi. „Þegar Sorinn, foxillur spurði frænda hvers vegna hann hafi sett kaffið í tebrúsann hann, svaraði hann sallarólegur; „Mér er ekki vel við að brjóta þau prinsipp sem aðrir setja sér í veiði. En ég geri það.“ Gummi frændi, ekki í umræddri ferð „svipurinn er hins vegar sá sami.“ Gylfi Jón Gylfason með þann stóra úr geirdalsá. Suðurlandsbraut 4. Reykjavík. - www.veidihollin.is - Sími 533 1115 - 893 7654 eða frá þér í ár? Viltu spara 25% af verði eins besta útivistar og veiðifatnaðar sem völ eru á fyrir unglinga, konur og karla, kynntu þér þá pöntunarþjónustu okkar. www.veidihollin.is. sem og allt annað færðu hjá okkur í skot og stangveiði. Allt það besta frá Veiðilandi færðu hjá okkur. Verðum með notaðar byssur í endursölu, skráðu byssuna hjá okkur .

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.