Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.2007, Qupperneq 33

Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.2007, Qupperneq 33
FÖSTUDAGUR 7. SepTembeR 2007DV Sport 33 Finnar hafa komið á óvart í undankeppni EM. Fyrrverandi Júgóslavíuþjóðirnar eru hins vegar erfiðar heim að sækja og Serbía þarf nauðsynlega á sigri að halda til að missa liðin fyrir ofan sig ekki of langt frá sér. Serbar urðu fyrir áfalli í vikunni þegar miðvörðurinn sterki Mladen Krstajic, leikmaður Schalke, meiddist og þurfti að draga sig úr hópnum. Það kemur hins vegar ekki að sök í þessum leik og Serbía vinnur 2–0. 1 á Lengjunni. Enginn efast um hæfileikana sem búa í liði Portúgals en það virðist hins vegar eitthvað vanta upp á stöðugleikann hjá liðinu. Liðið gerði til dæmis jafntefli við Armeníu í síðasta leik, sem þykja ekki viðunandi úrslit á þeim bænum. Pólverjar eru sýnd veiði en ekki gefin og eru efstir í riðlinum. Portúgal tekur sig saman í andlitinu eftir Armeníuleikinn og vinnur Pólland 3–1. Ronaldo skorar tvö. 1 á Lengjunni. Með sigri geta Skotar komist upp fyrir Ítali, ef Ítalir ná ekki að vinna Frakka í sínum leik. Þjálfari Litháen virðist ekki hafa mikinn áhuga á að kynna sér lið Skota því hann vissi ekki einu sinni hver þjálfari liðsins er. Það er harðnaglinn Alex McLeish. Skotar eru baráttujaxlar og vinna 1–0 sigur í leik þar sem nokkrar skuggalegar tæklingar líta dagsins ljós. Skotar bæta svo um betur og tækla einn leikmann Litháen til viðbótar eftir að dómarinn flautar til leiksloka. 1 á Lengjunni. Hörkuleikur fram undan milli þeirra liða sem mættust í úrslitum HM á síðasta ári. Það ríkja litlir kærleikar á milli þjóðanna, ekki síst eftir atvikið fræga þegar Zidane skallaði Materazzi í bringuna. Zidane er hættur en Materazzi er í liðinu og mun eflaust gera sitt til að fara í taugarnar á Frökkum. Spá DV er að leikurinn endi 1–1 og þrír leikmenn fái rautt spjald, tveir Frakkar og einn Ítali. X á Lengjunni. Wales eygir enn veika von um að komast í úrslitakeppni EM á meðan Þjóðverjar eru í góðum málum á toppi riðilsins. Þjóðverjar eru of stór biti fyrir Wales, þrátt fyrir að leikurinn sé í Bretlandi. Þjóðverjar hafa spilað sóknarbolta undanfarin ár, nokkuð sem lítið sást af á árum áður. 3–0 fyrir Þjóðverja þar sem Miroslav Klose, Bastian Schweinsteiger og Kevin Kuranyi skora mörkin. 2 á Lengjunni. Enginn landsliðsþjálfari í heimi er undir eins mikilli pressu og Steve McClaren, þjálfari Englendinga. England verður einfaldlega að vinna þennan leik ef hann á að halda starfi sínu. Meiðsli hafa sett strik í reikninginn hjá Englandi en þjóðin spáir ekkert í það og vill ekkert annað en sigur. England kemst í hann krappan í þessum leik og lendir undir. Michael Owen og John Terry koma Englendingum til bjargar og England vinnur ósannfærandi 2–1 sigur. 1 á Lengjunni. Forvitnilegt verður að sjá hvort Norður-Írar nái að halda áfram ótrúlegu gengi sínum í þessum riðli. Til þess þarf David Healy að spila vel. Hann hefur skorað ellefu af þrettán mörkum Norður-Íra. Lettar eru með slakt lið og hafa aðeins unnið einn leik. Það voru einmitt Íslendingar sem lágu í valnum þá, 4–0, og það eru einu mörkin sem Lettar hafa skorað í keppninni. David Healy verður á skotskónum og skorar tvö mörk í 2–0 sigri Norður-Íra. 2 á Lengjunni. Mikil eftirvænting er fyrir þennan leik. Fyrri leikurinn endaði með því að drukkinn Dani hljóp inn á völlinn og veittist að dómara leiksins. Svíum var dæmdur 3–0 sigur og fyrir vikið eru Danir í slæmum málum. Það verður barist til síðasta blóðdropa á Ullevi-vellinum og leikurinn verður stórkostleg skemmtun. 3–2 verða lokatölur, Svíum í vil. 1 á Lengjunni. Íslendingar eiga feikilega erfitt verkefni fyrir höndum. Ísland kom mjög á óvart í síðasta leik liðanna og tapaði aðeins 1–0 á Spáni. Ef Ísland tapar leiknum og Lettar ná að minnsta kosti stigi gegn Norður-Írum, þá verða Íslendingar í neðsta sæti riðilsins og DV vill benda á að við erum með Liechtenstein og Lettlandi í riðli. Úrslit síðustu leikja segja manni að Ísland tapi þessum leik. Þjóðernisstoltið hrópar hins vegar á að minnsta kosti eitt stig. 0–0 og X á Lengjunni. Tvær taplausar þjóðir sem mætast í Hollandi. Holland hefur í gegnum tíðina verið þekkt fyrir sóknarknattspyrnu en hefur hins vegar aðeins skorað átta mörk í sex leikjum hingað til. Marco van Basten og Ruud van Nistelrooy virðast hafa náð sáttum og sá síðarnefndi verður líklega í framlínu Hollands. Búlgarar eiga nokkra frambærilega knattspyrnumenn sem gætu ógnað hollensku vörninni. Holland vinnur 2–1. 1 á Lengjunni. Lið L U J T m St 1. pólland 9 6 1 2 15:7 19 2. Finnland 9 5 2 2 11:6 17 3. portúgal 8 4 3 1 16:6 15 4. Serbía 8 4 2 2 12:7 14 5. belgía 9 3 1 5 8:12 10 6. Armenía 8 2 2 4 4:8 8 7. Kasakstan 9 1 3 5 6:13 6 8. Aserbaidsjan 8 1 2 5 4:17 5 A-RIÐILL David Healy Norður-Írland 11 David Villa Spánn 7 Lukas podolski Þýskaland 7 Cristiano Ronaldo portúgal 6 Robert Colautti Ísrael 6 eduardo Da Silva Króatía 6 marcus Allback Svíþjóð 5 Zlatan muslimovic bosnía Hersegóv. 5 martin petrov búlgaría 5 Hakan Sukur Tyrkland 5 Alexander Kerzhakov Rússland 5 Shota Arveladze Georgía 5 Markahæstu leikmenn Dejan Stankovic Fyrirliði serbneska liðsins. Stankovic hefur spilað á Ítalíu frá 1998, fyrst með Lazio og svo Inter Milan. Hann er góður alhliða leikmaður, með góðar sendingar, góður skallamaður og getur skorað mörk. Hugo Almeida Almeida var lánaður til Werder Bremen frá Porto á síðustu leiktíð. Hann náði að heilla forráðamenn Bremen sem festu kaup á honum í sumar. Almeida er stór og sterkur framherji, 23 ára og á framtíðina fyrir sér. Hann er 191 cm á hæð og er fljótur. Barry Ferguson Ferguson er í guðatölu hjá stuðningsmönnum Glasgow Rangers. Hann er uppalinn Rangers-maður. Fór til Blackburn, lék þar í eitt ár, fékk heimþrá og fór aftur til Rangers. Gríðarlega mikilvægur fyrir landslið Skota, enda fyrirliði liðsins. Franck Ribery Þrátt fyrir að vera aðeins 24 ára hefur Ribery spilað með sjö félögum á ferlinum. Var keyptur til Bayern München í sumar og hefur slegið í gegn í Þýskalandi. Áræðinn og fljótur kantmaður sem gæti hrellt vörn Ítala. Thomas Hitzlsperger Hitzlsperger lék með Aston Villa í fimm ár. Ákvað að fara aftur til heimalandsins fyrir ári. Hann sér væntanlega ekki eftir því, enda varð hann meistari með Stuttgart og vann sér sæti í landsliðinu. Með frábæran vinstri fót og skoraði glæsilegt mark gegn Englandi á dögunum. Roberto Colautti Skæður sóknarmaður sem fæddur er í Argentínu. Colautti gekk í raði Maccabi Haifa árið 2004 og skoraði 32 mörk í 58 leikjum fyrir félagið. Þýska liðið Gladbach keypti kappann í sumar. Hann fékk ísraelskt ríkisfang í fyrra og hefur skorað sex mörk í sjö landsleikjum. David Healy Ótrúlegur markaskorari fyrir Norður-Íra þrátt fyrir að hafa aldrei náð að slá í gegn með félagsliði. Healy hefur skorað þrennu í tveimur leikjum í undankeppni EM og ellefu mörk samtals. Ekki er ólíklegt að hann skori að minnsta kosti tvö gegn Lettum. Zlatan Ibrahimovic Zlatan þarf vart að kynna. Hann átti í deilu við Lagerback landsliðsþjálfara en engu líkara er að þeir séu búnir að grafa stríðsöxina. Zlatan er ómetanlegur fyrir Svía og liðið þarf á honum að halda gegn Dönum. Joaquin Á góðum degi er Joaquin einn allra besti hægri kantmaður í heimi. Hann leikur með Valencia og ljóst er að vinstri bakvörður íslenska liðsins á erfitt verkefni fyrir höndum. Joaquin á einnig til að hverfa gjörsamlega í leikjum, þegar sá gállinn er á honum. Ruud van Nistelrooy Markamaskína af guðs náð. Átti í deilu við van Basten landsliðsþjálfara en var kallaður í landsliðið á nýjan leik fyrir síðasta landsleik Hollendinga. Nistelrooy er leikmaður sem varnarmenn mega aldrei taka augun af, því þá refsar hann þeim grimmilega. Holland 3-0 (h) Hv.-Rússl. 1-1 (ú) Búlgaría 2-1 (h) Albanía 0-0 (h) Rúmenía 1-0 (ú) Slóvenía SÍÐUSTU LEIKIR SPÁ DV STAÐANFYLGSTU MEÐ ÞESSUM Búlgaría 1-1 (h) Holland 1-0 (ú) Lúxemborg 0-0 (h) Albanía 2-0 (ú) Hv.-Rússl. 2-1 (h) Hv.-Rússl. Ísland 0-4 (ú) Lettland 1-2 (h) Svíþjóð 0-1 (ú) Spánn 1-1 (h) Liechtenst. 0-5 (ú) Svíþjóð Spánn 0-2 (ú) Svíþjóð 2-1 (h) Danmörk 1-0 (h) Ísland 2-0 (ú) Lettland 2-0 (ú) Liechtenst. Svíþjóð 2-0 (h) Spánn 2-1 (ú) Ísland 1-2 (ú) N-Írland 3-0 (ú) Danmörk 5-0 (h) Ísland Danmörk 0-0 (h) N-Írland 4-0 (ú) Liechtenst. 1-2 (ú) Spánn 0-3 (h) Svíþjóð 2-0 (ú) Lettland Lettland 4-0 (h) Ísland 0-1 (ú) N-Írland 0-1 (ú) Liechtenst. 0-2 (h) Spánn 0-2 (h) Danmörk N-Írland 0-0 (ú) Danmörk 1-0 (h) Lettland 4-1 (ú) Liechtenst. 2-1 (h) Svíþjóð 3-1 (h) Liechtenst. England 0-0 (h) Makedónía 0-2 (ú) Króatía 0-0 (ú) Ísrael 3-0 (ú) Andorra 3-0 (ú) Eistland Ísrael 3-4 (h) Króatía 0-0 (h) England 4-0 (h) Eistland 2-1 (ú) Makedónía 2-0 (ú) Andorra Wales 1-5 (h) Slóvakía 3-1 (h) Kýpur 0-1 (ú) Írland 3-0 (h) San Marínó 0-0 (h) Tékkland Þýskaland 4-1 (ú) Slóvakía 1-1 (ú) Kýpur 2-1 (ú) Tékkland 6-0 (h) San Marínó 2-1 (h) Slóvakía Ítalía 2-0 (h) Úkraína 3-1 (ú) Georgía 2-0 (h) Skotland 2-1 (ú) Færeyjar 2-0 (ú) Litháen Frakkland 0-1 (ú) SKotland 5-0 (h) Færeyjar 1-0 (ú) Litháen 2-0 (h) Úkraína 1-0 (h) Georgía Skotland 1-0 (h) Frakkland 0-2 (ú) Úkraína 2-1 (h) Georgía 0-2 (ú) Ítalía 2-0 (ú) Færeyjar Litháen 1-0 (ú) Færeyjar 0-1 (h) Frakkland 0-1 (ú) Úkraína 1-0 (h) Georgía 0-2 (h) Ítalía Portúgal 3-0 (h) Kasakstan 4-0 (h) Belgía 1-1 (ú) Serbía 2-1 (ú) Belgía 1-1 (ú) Armenía Pólland 1-0 (ú) Belgía 5-0 (h) Aserbaidsj. 1-0 (h) Armenia 3-1 (ú) Aserbaidsj. 0-1 (ú) Armenía Serbía 3-0 (h) Armenía 1-2 (ú) Kasakstan 1-1 (h) Portúgal 2-0 (ú) Finnland 2-3 (ú) Belgía Finnland 1-0 (h) Armenía 0-1 (ú) Aserbaidsj. 0-2 (h) Serbía 2-0 (h) Belgía 2-1 (h) Kasakstan Lið L U J T m St 1. Frakkland 7 6 0 1 15:2 18 2. Ítalía 7 5 1 1 13:6 16 3. Skotland 7 5 0 2 13:6 15 4. Úkraína 6 4 0 2 8:6 12 5. Litháen 7 2 1 4 4:7 7 6. Georgía 8 2 0 6 13:14 6 7. Færeyjar 8 0 0 8 2:27 0 B-RIÐILL Lið L U J T m St 1. Grikkland 7 6 0 1 12:5 18 2. bosnía Hersegóv. 7 4 1 2 14:14 13 3. Tyrkland 6 4 1 1 16:6 13 4. Noregur 7 4 1 2 17:6 13 5. Ungverjaland 7 2 0 5 7:14 6 6. malta 7 1 1 5 5:15 4 7. moldóva 7 0 2 5 4:15 2 C-RIÐILL Lið L U J T m St 1. Þýskaland 7 6 1 0 29:4 19 2. Tékkland 7 4 2 1 15:4 14 3. Írland 7 4 1 2 12:8 13 4. Slóvakía 7 3 0 4 16:13 9 5. Wales 6 2 1 3 8:9 7 6. Kýpur 7 2 1 4 10:16 7 7. San marínó 7 0 0 7 1:37 0 D-RIÐILL Lið L U J T m St 1. Króatía 7 5 2 0 16:4 17 2. Ísrael 8 5 2 1 17:7 17 3. Rússland 7 4 3 0 11:1 15 4. england 7 4 2 1 12:2 14 5. makedónía 7 2 1 4 6:7 7 6. eistland 8 1 0 7 2:15 3 7. Andorra 8 0 0 8 2:30 0 E-RIÐILL Lið L U J T m St 1. Svíþjóð 7 6 0 1 17:4 18 2. Norður-Írland 7 5 1 1 13:8 16 3. Spánn 7 5 0 2 13:6 15 4. Danmörk 6 3 1 2 9:5 10 5. Liechtenstein 8 1 1 6 5:21 4 6. Ísland 7 1 1 5 5:15 4 7. Lettland 6 1 0 5 4:7 3 F-RIÐILL Lið L U J T m St 1. Rúmenía 7 5 2 0 14:4 17 2. búlgaría 7 4 3 0 11:4 15 3. Holland 6 4 2 0 8:2 14 4. Albanía 7 2 3 2 8:6 9 5. Hvít-Rússland 7 2 1 4 10:15 7 6. Slóvenía 7 1 1 5 5:12 4 7. Lúxemborg 7 0 0 7 1:14 0 G-RIÐILL
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.