Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.2007, Síða 34
föstudagur 7. september 200734 Sport DV
Stefán Logi Magnús-
son hefur spilað knatt-
spyrnu í sex löndum þrátt
fyrir að vera einungis 27
ára gamall. Hann fór til
Bayern München sautj-
án ára og var hjá félag-
inu í tvö ár áður en hann hélt
til Svíþjóðar. Meiðsli hafa sett strik
í reikninginn á ferli hans en í dag er
hann meiðslalaus og spilar með KR í
Landsbankadeildinni.
„Ég var í Víkingi til fimmtán ára
aldurs og fór svo í Fram þegar ég var
sextán ára. Þar var ég í sjö mánuði
en þá kom Bayern München inn í
myndina. Það var svolítið merki-
legt því ég fór ekki þangað á æfing-
ar til þess að sanna mig, heldur fór
ég bara út til þess að skrifa undir
samning við félagið. Ég bauð þeim
að koma út og æfa en þeir vildu það
ekki. Það voru fleiri lið á eftir mér á
þessum tíma en eftir að Bayern kom
inn í dæmið var aldrei spurning
hvert ég myndi fara.“
Agalaus í upphafi
„Ég veit ekki hvort ég var hroka-
fullur eða ekki en það tók sinn tíma
að læra það í Þýskalandi að maður
getur ekki bara sagt sínar skoðanir.
Maður þarf að bera virðingu fyrir
öðrum. Ég lenti í smá vandræðum
vegna þess agaleysis sem ég hafði
tamið mér og tíðkast á Íslandi. Þeg-
ar við Íslendingar erum unglingar
hugsum við öðruvísi en unglingar
erlendis. Þarna úti voru allt í einu
sektir fyrir að mæta of seint á æf-
ingu. Ekki það að ég hafi alltaf ver-
ið að mæta of seint, ég mætti tvisvar
of seint á æfingu á tveimur árum en
það voru samt mikil viðbrigði fyrir
mig að vera í þessum aðstæðum.
Eftir að ég hætti hjá Bayern
heyrði ég mikið af sögum um það
hvað ég átti að vera að gera þarna
úti. Flestar eru ósannar og sumar
eru hálfsærandi en þar sem ég veit
sannleikann skiptir ekkert annað
máli. Ein sagan var sú að ég hefði
verið rekinn frá Bayern München
fyrir það að stela æfingafatnaði.
Ég spyr nú bara á móti: Hvern-
ig getur maður verið rekinn fyrir
að stela einhverju sem er mín eign
og frítt frá félaginu? Fólk sem seg-
ir svona sögur verður það bara að
eiga það við sig. Hvað sem því líð-
ur eru svona sögur ekki til að hjálpa
manni hérna á Íslandi.“
Neitaði að mæta í morgunmat
og fór í keppnisbann
Stefán segir að það hafi verið erf-
itt fyrir ungling frá Íslandi að venj-
ast aganum sem ríkti í Þýskaland.
„Málið var að agaleysið sem ég átti
við að etja var meira þannig að ég
átti erfitt með að vakna á morgnana
í morgunmatinn hjá Bayern. Leik-
mennirnir hittust alltaf á morgn-
ana og borðuðu morgunmat á fé-
lagssvæðinu. Mér fannst þetta
alltaf algjörlega fáránlegt, að þurfa
að vakna sex til hálf sjö á morgn-
ana bara til þess að fara að borða
einhvern morgunmat hjá félaginu.
Síðan þurfti maður að fara heim og
bíða eftir því að æfingin byrjaði.
Það tók mig einhverja sex mán-
uði að komast inn svona hluti. Í
upphafi sagði ég við þá að þeir
gætu bara gleymt því að ég mætti
svona snemma í morgunmat. Það
hafði þau áhrif að þjálfarinn setti
mig í leikbann sem ég sat af mér
og tók út. Síðan kom ég aftur inn í
liðið. Núna þegar ég er eldri skil ég
það að þeir voru að reyna að kenna
manni að lifa sem atvinnumaður.
Aðrar sögur eru ekki sannar. Ég
átti að hafa lamið einhvern og fleira
og fleira. En þetta kenndi mér það
að maður á ekki að hlusta á sögur
sem aðrir eru að segja um mann.
Æfði með Oliver Kahn
Oliver Kahn var lengi einn besti
markvörður í heimi og fékk Stefán
Logi að æfa með honum hjá Bay-
ern München. Hann segir að erfitt
hafið verið að komast að Olla eins
og hann er kallaður. „Hann var ekki
auðveldasti maður í heimi til þess
að hafa samskipti við. Við vorum
nokkrir markmenn sem æfðum
með honum og á æfingunum sner-
ist allt um hann. Við fórum með
honum út allir saman, ég, Olli (Oli-
ver Kahn), einn annar og Sepp Mai-
er markmannsþjálfari. Síðan var
Olli tekinn í gegn í 40 mínútur til
klukkutíma áður en hann fór inn og
lyfti lóðum. Eftir það gátum við æft
okkur í tvo tíma.
Ég lærði svo sem lítið af Oliver
Kahn, ef ég væri Olli og væri á Ís-
landi væri ég álitinn hálfviti. Það er
enginn mannlegur þáttur hjá hon-
um. Hann talaði kannski við einn
mann, Lothar (Matteus) eða Sepp
VÍÐFÖRULL
MARKVÖRÐUR
Stefán Logi Magnússon er nú hjá Kr
í reykjavík eftir að hafa spilað víða um
heim.
Hefur staðið sig
vel stefán Logi
hefur staðið sig vel í
markinu hjá Kr í
sumar.