Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.2007, Síða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.2007, Síða 36
Enska landsliðið á tvo heimaleiki fram undan í undankeppni EM gegn Ísrael á laugardag og Rússlandi fjór- um dögum síðar. Jafnvel þótt Eng- land fái ekki sex stig út úr þess- um mikilvægu leikjum ætlar Steve McClaren landsliðsþjálfari ekki að hætta með liðið og gera líkt og Kevin Keegan gerði um árið þegar hann hætti í miðri undankeppni. Ef hið versta gerist, að England tapi báð- um leikjunum, er England nánast fallið úr leik um laust sæti á EM árið 2008. „Jafnvel þótt við töpum er enn tölfræðilegur möguleiki á að komast áfram. Þótt hann verði þá agnarsmár mun Steve halda áfram með liðið,“ hefur The Sun eftir heimildarmanni innan knattspyrnusambands Eng- lands. „Hann er ekki þannig maður að hann hætti í miðjum klíðum,“ hélt heimildarmaðurinn áfram. Keegan hætti eftir frægt tap í síðasta landsleik Englands á Wembley 1–0 gegn Þýskalandi fyrir sjö árum. Sven Göran Eriksson var ráðinn í hans stað og England komst með naumindum á HM árið 2002. Eriksson hætti eftir HM fjórum árum síðar og McClaren tók við eftir að enska knattspyrnusamabandinu var neitað af mörgum stórum bitum á þjálfaramarkaðnum. Hins vegar hefur tíð McClarens verið þyrnum stráð og liðið ekki fundið taktinn. Hann hefur verið harðlega gagnrýndur heima fyrir og mörgum finnst liðið einfaldlega ekki nógu gott. Hins vegar hefur McClaren aldrei getað valið sitt sterkasta lið vegna meiðsla lykilmanna og það er engin undantekning á því. Wayne Rooney, David Beckham, Frank Lampard og Steven Gerrard eru allir meiddir og þá er Peter Crouch í leikbanni. Engu að síður er búist við því að Gerrard verði með þrátt fyrir að hafa brotið á sér tána. McClaren er með heila þjóð á bakinu en hann hefur kvatt landa sína til að styðja við bakið á liðinu. Hann hefur einnig sagt að stuðningsmenn andstæðinganna fái ekki að vera fyrir aftan annað markið eftir að stuðningsmenn Þýskalands hrópuðu og kölluðu allan leikinn á Paul Robinson í nýlegu 1–2 tapi Englands gegn Þýskalandi. McClaren er með 45 þúsund pund í vikulaun, um 6 milljónir króna. Hann er með samning til ársins 2010 en klásúla er í samningnum um að það sé hægt að reka hann og hann fái aðeins eins árs laun fyrir það. Rúmlega 270 milljónir króna. Hver verður í markinu? McClaren hefur haldið tryggð við Paul Robinson, markvörð Tottenham, sem aðalmarkvörð Englands. Hins vegar hefur Robinson gert sig sekan um mörg mistök í undanförnum leikjum, nú síðast gegn Þýskalandi. McClaren hefur ekki útilokað að gera breytingar og er jafnvel búist við því að David James komi inn í liðið. „Ég get ekkert sagt um hver verði aðalmarkvörður í næstu leikjum. Hann er skiljanlega vonsvikinn en það eru allir markverðir eftir að hafa fengið mark á sig. Hann mun koma til baka, hann hefur alltaf gert það eftir að hafa fengið slæm mörk á sig,“ sagði McClaren eftir leikinn gegn Þjóðverjum. James hefur spilað vel með Ports- mouth á meðan Robinson hefur verið í basli líkt og Tottenham í upphafi ensku deildarinnar. Einnig koma aðrir markverðir til greina, Ben Foster, Scott Carsons, Chris Kirkland og Robert Green eru allir frambærilegir markmenn. Hins vegar virðist valið standa á milli James og Robinsons. föstudagur 7. september 200735 Sport DV MEÐ HEILA ÞJÓÐ Á BAKINU Robinson - James Robinson James Landsleikir 37 34 Mínútur á vellinum 2,972 2,373 Mörk fengin á sig 17 30 Haldið markinu hreinu 14 6 Varin skot 61 82 staðan í Riðlinum Lið L U J T M St 1. Króatía 7 5 2 0 16:4 17 2. Ísrael 8 5 2 1 17:7 17 3. Rússland 7 4 3 0 11:1 15 4. England 7 4 2 1 12:2 14 5. Makedónía 7 2 1 4 6:7 7 6. Eistland 8 1 0 7 2:15 3 7. Andorra 8 0 0 8 2:30 0 dAgUR SVEinn dAgbJARTSSon blaðamaður skrifar: dagur@dv.is Hvor verður í markinu? Valið virðist standa á milli þeirra davids James og pauls robinson. gæti verið með steven gerrard er tábrotinn en gæti þó verið með á laugardaginn. Englendingar taka á móti Ísraels- mönnum á Wembley-vellinum á laugardag. Fjórum dögum síðar koma Rússar í heimsókn og jafnvel þótt liðið tapi báðum leikjunum ætlar Steve McClaren ekki að hætta sem landsliðsþjálfari. Ekki gengið vel undir stjórn steve mcCLaren hefur enska liðið ekki þótt sannfærandi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.