Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.2007, Side 38
föstudagur 7. september 200738 Helgarblað DV
Sverrir Þór Sverrisson, sjónvarpsmaður
Allsberir dvergar með bjór
„Draumurinn minn er að vera með svona allsbera dverga sem bera í mig
bjór á meðan ég ligg í hengirúmi. Mig hefur alltaf dreymt um það. Það er
bara eitthvað svo krúttlegt við svona allsbera dverga og svo er líka svo fyndið
að sjá þá bara svona á typpinu.“
Unnur Birna Vilhjálmsdóttir, nemi
Góð heilsa og lífshamingja
„Mig dreymir það sem alla dreymir um en því miður ekki allir fá uppfyllt.
Mig dreymir um góða heilsu og lífshamingju fyrir mína nánustu. Það hljómar
kannski svolítið hefðbundið en þetta er það sem öllu máli skiptir í lífinu.“
Hrafnhildur Halldórsdóttir,
umsjónarmaður morgun-
útvarps Rásar 2
Hundrað ára í golfi
„Draumurinn minn er að verða hundrað ára og geta
ennþá spilað golf. Það er stórkostlegt. Ég byrjaði að spila
golf fyrir einu og hálfu ári og þetta er það skemmtileg-
asta sem ég hef gert. Golfið sameinar útiveru og hreyf-
ingu og maður hittir og spjallar við góða vini. Getur það
orðið betra?“
Friðrik Ómar Hjörleifs-
son, tónlistarmaður
Heilsan skiptir
öllu máli
„Draumurinn minn er að hafa góða
heilsu, vera hamingjusamur og geta starf-
að við tónlistina mína þar til ég syng mitt
síðasta. Maður hlýtur að komast að því
sem gamall maður að heilsan er það sem
skiptir öllu máli. Hún er undirstaða þess
að maður geti gert það sem maður vill og
þess vegna reyni ég að stuðla að því að
vera við góða heilsu.“
Helga Braga Jónsdóttir, leikkona
Friður og jöfn skipting
„Draumurinn minn er friður á jörðu og að allir fái notið alls þess sem jörðin hefur upp á bjóða.“
Friður á jörðu, góð heilsa, jöfnuður og lífshamingja er meðal
þess sem viðmælendur DV segjast helst af öllu dreyma um.
HVER ER
ÞINN?