Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.2007, Side 42
föstudagur 7. september 200742 Helgarblað DV
Gull oG eðalsteinar íshokkíleikmannsins
Íshokkíleikmaður-
inn Jónas Breki er
einn efnilegasti
hokkíleikmaður
þjóðarinnar en
hann hefur undan-
farin fjögur ár búið
í Kaupmannahöfn
þar sem hann spilar
hokkí með fyrstu
deildar liðinu Amag-
er Jets ásamt því að
læra gullsmíði hjá
öðrum þekktasta
gullsmiði Dana, Ole
Lyyngard. Breki,
eins og hann er
oftast kallaður,
segir ekkert mál
fyrir sig að
samræma hokkíið
og gullsmíðanámið
enda sé hann bara
vanur því að hafa
nóg að gera.
Jónas Breki Magnússon er einn af bestu
íshokkíleikmönnum þjóðarinnar
en undanfarin fjögur ár hefur Breki,
eins og hann er oftast kallaður, búið
í Kaupmannahöfn ásamt kærustu
sinni, Guðrúnu Finnbogadóttur, og
eins árs gamalli dóttur þeirra henni
Ísabellu Brekadóttir. Auk þess að
spila íshokkí með fyrstu deildar liði
í Danmörku og íshokkílandsliði
Íslands er Breki í gullsmíðanámi
í Köbenhavns tekniske skole og á
námssamningi hjá öðrum þekktasta
gullsmiði Danmerkur á eftir sjálfum
Georg Jensen.
Fékk áhugann í tíunda bekk
Áhuginn á gullsmíðinni vaknaði
þegar Breki valdi sér skartgripagerð
sem valfag síðasta árið í Foldaskóla.
„Ég fékk alveg delluna eftir þetta
námskeið en ákvað að reyna ekk-
ert að komast á samning fyrr en ég
væri hættur í hokkíinu því ég vildi
náttúrulega fyrst og fremst verða at-
vinnumaður í hokkí. Ég setti því all-
an skólann og námið á smápásu,“
segir Breki en í dag hefur hann náð
að samræma gullsmíðina og hokkí-
ið. „Ég var að skipta um hokkílið
og var að skrifa undir samning hjá
Amager Jets sem er í fyrstu deild-
inni. Ég er náttúrulega búinn að
vera í hokkí síðan ég var tíu ára og
hef æft af fullu kappi síðan ég var
sextán ára svo ég er bara vanur því að
hafa nóg að gera,“ segir hann en bætir
því jafnframt við að hann hafi putta-
brotið sig í síðasta leik og sé því í smá-
fríi frá hokkíinu eins og er.
Fékk námið stytt í þrjú ár
„Ég fluttist til Danmörkur árið 2003
en ég og Gúrý, kærastan mín, höfðum
hætt saman í hálft ár og hún flutt til
Danmerkur í millitíðinni. Þegar við
byrjuðum svo aftur saman ákvað ég
bara að flytjast út til hennar og fara
að spila hokkí og fara svo í nám,“ segir
Breki sem nú er á fyrsta ári í gullsmíði.
„Ég er í Köbenhavns tekniske skole
sem er eini skólinn sem kennir
gullsmíði hér úti. Í Listaháskólanum
er reyndar hægt að læra eitthvað
sambærilegt en eftir það ertu bara
orðinn skartgripahönnuður eða
eitthvað slíkt en þú lærir ekki að verða
gullsmiður. Vanalega tekur þetta
nám fjögur ár en ég náði að stytta
það niður í þrjú því ég hafði verið í
Finnlandi frá 2000 til 2001 að spila
hokkí og komist í gullsmíðanám þar á
gullsmíðaverkstæði. Ég fékk það svo
Íslenska fjölskyldan í Kaupmannahöfn
Jónas breki, guðrún og Ísabella.
Ævintýralegir skartgripir breki
smíðar skart fyrir bæði stelpur og stráka.