Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.2007, Qupperneq 47

Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.2007, Qupperneq 47
Meistarinn DV Helgarblað föstudagur 7. september 2007 47 „Ég hef oft matreitt gæs þannig að ég er alveg á heimavelli þar,“ segir Brynja Þrastardóttir, matgæðingur vikunnar. „Og reyndar gagnvart allri villibráð er ég nokkuð á heimavelli. Ég er mjög dugleg að prófa að elda mat eins og krónhjört, dádýr og hreindýr náttúrlega,“ segir Brynja. Aðspurð hvort hún, eða eiginmaðurinn, sé svona dugleg í skotveiðinni segir Brynja það ekki vera svo. „Nei, nei, ekkert svoleiðis. Ég fæ rjúpuna og gæsina hjá skotveiðimönnum en þessar meiri framandi skepnur eins og dádýr kaupi ég bara úti í búð. En ég er uppalin við það að fá alltaf rjúpu á jólunum og það er uppáhaldsmaturinn minn. Þá fór maður meira að spá í villibráð eftir því sem maður varð eldri.“ Brynja segist þó alveg elda hefð- bundnari mat líka. „Það er ekki svo flott að ég eldi hreindýr á mánudög- um. En mér finnst miklu skemmti- legra að elda villibráðina.“ Fyllt gæs 1 gæs, hamflett sveskjur rúsínur fersk epli salt pipar gæsin fyllt með sveskjum, rúsínum og eplum og saumað fyrir Krydduð með salti og pipar sett í pott og steikt í ofn í rúman klukkutíma á ca 180°. Sósa Hjarta, fóarn og lærin steikt á pönnu, kryddað með salti og pipar sett í pott og vatn með soðið í u.þ.b. klukkutíma tek síðan lærin, hjartað og fóarnið upp úr pottinum og bæti soðinu, sem hefur komið í pottinn úr ofninum, saman við set bláberjasultu út í og þykki með sósujafnara og slatta af rjóma rétt áður en ég ber sósuna fram set ég slatta af ferskum bláberjum út í. Meðlæti með gæs brúnaðar kartöflur eplasalat ferskur aspas, grænn Ferskur aspas steiktur á pönnu upp úr smjöri og kryddað með svört- um pipar. Látið malla á pönnuni smá stund. Eplasalat 4 gul epli Vínber 1 peli rjómi 2–3 msk majones smá sykur eplin flysjuð og skorin í bita, látin liggja í sítrónuvatni (svo þau verði ekki brún) Vínberin líka skorin í bita rjóminn þeyttur með smá sykri, majonesinu bætt út í rjómann síðan er öllu blandað saman Svo er gott að fá ekta súkkulaði- búðing í eftirrétt. Súkkulaðibúningur 400 g suðusúkkulaði 3 blöð matarlím 2 pelar rjómi (þeyttur) 8 egg Þeyta eggjarauður og eggjahvítur sitt í hvoru lagi bræðið súkkulaðið yfir vatnsbaði og bætið út í eggjarauðurnar matarlímið bleytt í köldu vatni og síðan brætt yfir gufu og sett út á súkkulaðið og eggjarauðurnar eggjahvítunum bætt í allt saman og síðast rjómanum gott að hafa svo þeyttan rjóma með búðingnum Brynja skorar á vinkonu sína, „flikkuna“ (saman í vin- kvennahópnum Sænsku flikk- unum) Emmu Guðnadóttur, að vera næsti matgæðingur. Emma kann víst marga góða eftirrétti. Zinfandel frá Bandaríkjunum Það veit í raun enginn hvaðan þetta skrítna nafn kemur en líkur benda til þess að upp-runa þrúgunnar megi rekja til Króatíu. Þrúgan barst frá Vín í austurríki til bandaríkjanna á þriðja áratug 19. aldar og var fyrst plantað í Kaliforníu áratug síðar. Vinsældir þrúgunnar jukust hratt og undir lok 19. aldar var hún útbreiddasta þrúga bandaríkjanna. fjórðungur vínræktarlands í banda- ríkjunum fer undir zin- fandel og yfir 200 vínfram- leiðendur rækta þrúguna. Útbreiðslan er mest í Kali- forníu en þrúgan er ræktuð í öllum helstu vínræktar- svæðum landsins. Lengi var talað um zinfandel sem banda-rísku þrúguna og talið að hún ætti sér ekki nána ættingja í öðrum löndum. genarannsóknir á síðustu áratugum hafa hins vegar leitt í ljós að zinfandel er sama þrúga og nefnist primitivo í evrópu og crljenak kastelanski í Króatíu. Vitað er að zinfandel barst mun fyrr til bandaríkjanna en primitivo til Ítalíu en margt bendir til að hún hafi flust frá ströndum Króatíu til púgliu- héraðs á Ítalíu. Í Króatíu hafa einnig fundist þrúgutegundir sem greinilega eru náskyldar zinfandel og primitivo. fræðimenn telja því fullvíst að upprunann megi rekja til Króatíu en engin skynsamleg skýring hefur fundist á nafngiftinni. Zinfandel-vín eru að jafnaði ávaxtarík og krydduð, bragðmikil og afar alkóhólrík, oft yfir 15%. Iðulega má greina dökk ber, plómur og málm. Zinfandel-vín hafa þróast og batnað mikið á síðustu arum. fínni zinfandel- vín geta verið mjög kraftmikil en um leið fíngerð, afar bragð- mikil og alkóhólrík með góðu tanníni sem tryggir að góð zinfandel-vín geta elst vel og lengi. PálMi jónaSSon vínsérfræðingur DV Beringer Clear Lake Zinfandel 2004 Vín frá beringer hafa notið mikillar hylli hér á landi um langt árabil en vínhúsið var stofnað 1876 af bræðrun- um Jacob og frederick beringer. Þeir fluttu frá mainz í Þýskalandi og fundu í Napa Valley kjöraðstæður til víngerðar. Þetta vín er úr þrúgum sem ræktaðar eru í Clear mountain Vineyard. dumbrautt með heitum pipar í nefi, svörtum kirsuberjum, sólberjum, píputób- aki og tópasi. Villiber í munni, hindber, jarðarber, kirsuber, lakkrís og eikað eftirbragð. Heitt í nefi, enda 14,5%, og með fínu tanníni. fantagóður zinfandel-bolti. 1.820 krónur. Gnarly Head Old Vine Zin 2005 Nafnið vísar í aldraðan kræklóttan vínviðinn sem er 35 til 80 ára gamall. eins og mörg zinfandel-vín er þetta alkóhólríkt (14,5%) en þótt það sé kennt við zinfandel er þetta blanda úr zinfandel (77%) og petite sirah (23%) sem vel að merkja er óskyld shiraz-þrúgunni. eikarvanillan kemur úr franskri, amerískri og ungverskri eik. Í nefi er mikið af sultaðri plómu, tóbaki, vanillu, málmi og svörtum pipar. sætar, sultaðar plómur í munni, mikill ávöxtur, dökk ber, krækiberjasaft og lakkrís en vanilla og svartur pipar í eftirbragði. öðruvísi karakter. 1.490 krónur. Dancing Bull Zinfandel Kalifornía 2005 erik Cinnamon er yfir víngerðinni hjá rancho Zabaco sem hefur sérhæft sig í zinfandel. Víngerðin er hluti af risafyrirtækinu gallo, sem bræðurnir ernest og Julio gallo stofnuðu 1933, tveimur mánuðum eftir að faðir þeirra hafði myrt móður þeirra og svipt sjálfan sig svo lífi. Julio sá um víngerðina en ernest um markaðssetninguna. Julio lést 1993 en ernest fyrr á þessu ári. fyrirtækið framleiðir ríflega milljarð flaskna á ári. dancing bull angar af hráu kjöti, málmi, svörtum pipar, dökkum kirsuberjum og kerfli. bragð af dökkum berjum, brómberjum, plómum, kirsuberj- um og pipar. ekki mjög spennandi en batnaði við öndun. gott verð. 1.290 krónur. Villibráðin skemmtilegust Brynja Þrastardóttir Matgæðingurinn d V m yn d Á sg ei r
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.