Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2007, Page 4
föstudagur 14. september 20074 Fréttir DV
InnlendarFréttIr
ritstjorn@dv.is
Flaut á
drullunni
„Svo virðist sem rútan
hafi flotið ofan á drullunni
og staðnæmst þar,“ segir
Pétur Guðmundsson,
aðalvarðstjóri hjá lögreglunni
á höfuðborgarsvæðinu. Hópur
kvenna frá Akranesi komst í
hann krappan rétt fyrir klukkan
fimm í gærmorgun. Rúta,
sem var að flytja þær í flug til
Frankfurt, keyrði inn í þrjátíu
metra breiða skriðu sem hafði
fallið á þjóðveginn við Mógilsá.
Betur fór en á horfðist og
slösuðust tvær konur lítillega.
Þær héldu þó áfram för sinni
áleiðis til Keflavíkur og komust
tímanlega í flugið. Töluverðar
tafir urðu á meðan á hreinsun
stóð og hleypti lögreglan bílum
í gegn í hollum.
Skall í götuna
Karlmaður var fluttur á slysa-
deild Landspítalans við Fossvog
eftir að hann missti stjórn á mót-
orhjóli sínu snemma í gærmorg-
un og skall í götuna. Slysið átti
sér stað á Gullinbrú við Fjall-
konuveg í Grafarvoginum en lög-
reglan fékk tilkynningu um slysið
rétt fyrir klukkan átta. Að sögn
varðstjóra hjá lögreglunni á höf-
uðborgarsvæðinu liggja tildrög
slyssins ekki fyrir. Hann sagði að
engar tafir hefðu orðið af þeim
sökum en vegfarendur sem áttu
leið um á þessum tíma sögðust
hafa verið óvenju lengi að kom-
ast út úr hverfinu í gær.
Sigurður Júlíus Hálfdánarson, dæmdur morðingi, strauk af Vernd aðfaranótt mánu-
dags og gekk laus í nokkra daga. Hann var ekki talinn hættulegur og því var ekki lýst
eftir honum. Það var líka gert til verndar tvíburabróður hans sem var einnig dæmd-
ur fyrir morðið. Strokið getur haft áhrif á reynslulausn Sigurðar.
HarðSvíraður
morðingi gekk lauS
Dæmdur morðingi, Sigurður
Júlíus Hálfdánarson, strauk
af áfangaheimili Verndar við
Laugateig 19 aðfaranótt mánu-
dagsins síðasta þar sem hann
hafði dvalið síðustu 4 mánuði.
Hann hlaut 16 ára fangelsisdóm
fyrir hrottafengið morð af ásettu
ráði og átti innan við hálft ár eftir af
afplánun sinni þegar hann strauk.
Í tæpa viku gekk hann laus án
þess að lýst væri eftir honum með
formlegum hætti. Það var ekki
gert þar sem ekki var talin hætta á
ferðum við það að hann gengi laus
og til verndar tvíburabróður hans,
Ólafi Hannesi Hálfdánarsyni, sem
sjálfur hlaut dóm fyrir aðild að
morðinu.
Sigurður náðist síðla kvölds
á miðvikudag er hann nálgaðist
heimili vina sinna á Kjalarnesi. Þá
hafði lögregla komist á snoðir um
ferðir hans í gegnum hans nán-
ustu sem aðstoðuðu lögregluna
við hafa uppi á honum. Sigurður
hafði lofað að gefa sig sjálfur fram
en sveik þau loforð. Hann var und-
ir áhrifum er hann var handtekinn
og samkvæmt lögum getur strokið
haft áhrif á reynslulausn hans.
Hrottafenginn glæpur
Bræðurnir voru dæmdir í
Hæstarétti 2. apríl 1998, þá 25 ára
gamlir, fyrir glæp sem átti sér stað í
Heiðmörk hálfu ári fyrr, 2. október
1997. Þá réðu þeir í félagi Lárusi Á.
Lárussyni bana með hrottafengn-
um hætti. Tvíburabræðurnir óku
með Lárus upp í Heiðmörk þar
sem þeir ákváðu að ræna hann.
Talið er að Lárus hafi komist út úr
bifreiðinni en þeir bræður hafi elt
hann uppi. Sigurður barði Lárus
margsinnis með 13 kílógramma
steinhnullungi í höfuðið þar sem
hann lá varnarlaus á jörðinni eftir
spörk og högg þeirra bræðra. Þar
sem Lárus lá særður á jörðinni óku
tvíburabræðurnir tvívegis yfir lík-
ama hans og höfuð með þeim af-
leiðingum að hann lést. Þeir náðu
veski Lárusar og höfðu 8 þúsund
krónur á brott með sér.
Ólafur fékk 12 ára fangelsisdóm
fyrir aðildina en bróðir hans var
dæmur til að sitja í fangelsi 4 árum
lengur. Saman voru þeir dæmd-
ir til að greiða rúmar 9 milljónir í
miskabætur og sakarkostnað. Ól-
afur hefur lokið afplánun en Sig-
urður átti innan við hálft ár eftir
þegar hann strauk.
Farinn að blómstra
Valtýr Sigurðsson, forstjóri
Fangelsismálastofnunar, er miður
sín eftir flótta Sigurðar. Hann segir
Sigurð hafa brugðist miklu trausti.
„Þetta er mjög sorglegt. Við höfðum
unnið mikið með honum í átt að
bata og hann var kominn á síðasta
sprettinn í afplánun sinni. Það skref
getur verið erfitt fyrir marga að þurfa
skyndilega að standa sína plikt á
Vernd og fara eftir mjög hörðum
reglum. Yfirvofandi er alltaf sú
staðreynd að ef þeir standa sig ekki
fara þeir aftur inn í fangelsi. Ég veit
ekki hvað brást hjá viðkomandi
en það er ljóst að hann var að
bregðast trausti. Síðast en ekki síst
var hann að bregðast sjálfum sér,“
segir Valtýr. Fyrrverandi samfangi
Sigurðar á Vernd, sem ekki vill láta
nafns síns getið, er verulega hissa á
stroki Sigurðar þar sem honum hafi
verið farið að ganga vel í afplánun
sinni. Þeir hafa tvívegis átt samleið
í afplánun, fyrst árið 2001 og síðan í
sumar á Vernd, og fann viðmælandi
DV mikinn mun á Sigurði. „Ég bara
skil þetta ekki. Mér fannst honum
farið að ganga svo vel og hann var
farinn að blómstra. Ég sat með
honum líka fyrir rúmum 5 árum
og þá var hann miklu harðari og
sýndi ekki eins mikla iðrun og hann
gerir í dag. Þetta kom mér virkilega
á óvart og í mínum huga var hann
síðasti maðurinn til að flýja,“ segir
samfanginn.
Strauk af ótta
Eftir handtöku var Sigurður
færður aftur á Litla-Hraun þar sem
hann verður vistaður áfram. Þráinn
Bj. Farestveit, forstöðumaður
Verndar, segir að legið hafi í loftinu
um nokkurt skeið að Sigurður færi
aftur í fangelsi og það geti verið
ástæða þess að hann hafi flúið.
„Langur tími í fangelsi mynstrar
menn. Vilji hans var til staðar að
klára afplánunina hjá okkur en það
þýðir ekki endilega að menn ráði
alltaf við það. Hann hafði fengið
áminningu hjá okkur fyrir að fylgja
ekki settum reglum og ég held að
hann hafi verið orðinn meðvitaður
um að hann yrði færður aftur
í afplánun á Litla-Hrauni. Það
er ekki víst að hann hafi náð að
horfast í augu við þá staðreynd,“
segir Þráinn. Fyrrverandi samfangi
Sigurðar er ekki jafnsannfærður
um ástæðuna. Hann telur líklegra
að Sigurður verið farinn að óttast
frelsið. „Neysla getur hafa haft
áhrif á hann en ég tel þunglyndi
mun líklegra. Hann var búinn að
sitja inni svo rosalega lengi. Ég hef
sjálfur upplifað mikinn kvíða við að
losna út eftir langan tíma og þá tapa
menn öryggistilfinningunni. Ég hef
horft upp á menn sem vita ekkert
í hvorn fótinn þeir eiga að stíga af
ótta við frelsið. Það kæmi mér ekki á
óvart að hann hafi vísvitandi brotið
af sér til þess að verða ekki sleppt.“
Ekki talinn hættulegur
Aðspurður segir Valtýr ástæðu
þess að ekki var lýst eftir Sigurði
formlega vera meðal annars mat
sérfræðinga að hann væri ekki
hættulegur samfélaginu. Jafnframt
segir hann að forðast hafi verið að
birta mynd af honum í fjölmiðlum
þannig að tvíburabróðir hans,
Ólafur, gæti áfram um frjálst
höfuð strokið. „Við ákváðum að
auglýsa ekki eftir honum af krafti.
Að vissu leyti má segja að hann sé
hættulegur en sérfræðingar mátu
ekki hættu á ferðum við að hann
gengi laus. Hann ætlaði að koma
inn sjálfviljugur en stóð ekki við
það. Það var ekki talið hjálpa til
við leitina að auglýsa eftir honum
með myndum. Við óttuðumst að
það gæti komið sér illa fyrir bróður
hans og þannig myndum við fá
inn fjölda ábendinga um ferðir
tvíburabróðurins, sem eins og gefur
að skilja lítur mjög svipað út,“ segir
Valtýr.
Aðspurður segist Þráinn
sammála því að ekki hafi verið
hætta á ferðum við strok Sigurðar.
Hann telur þó að hætta hefði getað
skapast þar sem hann hafi verið
kominn út í neyslu. „Ég held að
hann hafi alls ekki verið hættulegur.
Auðvitað er það svo þegar menn
eru komnir í ástand fíkniefna eða
áfengis geta þeir orðið umhverfi
sínu hættulegir. Ég held að við
hefðum endað á því að lýsa eftir
honum,“ segir Þráinn.
Hefur áhrif á afplánunina?
Í íslensku réttarkerfi geta fangar
sótt um reynslulausn eftir að hafa
afplánað 2/3 af dómi. Sigurður átti
eftir aðeins nokkra mánuði fram að
því að verða látinn laus. Valtýr telur
líkur á því að fljótti hans nýlega
geti haft áhrif á reynslulausn hans
en hversu mikil áhrif á eftir að
koma í ljós. Hann segir lögin skýr í
þessum efnum. „Við munum fara
mjög gaumgæfilega yfir það hvað
brást á lokaferlinu. Við þurfum að
kanna hvað kom upp á. Það er skýrt
í lögum að svona lagað getur haft
áhrif á reynslulausn. Við eigum eftir
að taka ákvörðun um þetta og þá
kemur í ljós hvort reynslulausnin
verði afturkölluð og þá hve lengi,“
segir Valtýr. „Lögin eru ekki í þá
veru að annaðhvort sitji menn 2/3
eða allan tímann. Þegar hann sækir
um reynslulausnin verður þetta
skoðað en samkvæmt laganna
bókstaf getur þetta haft áhrif.“
TrauSTi HaFSTEinSSon
blaðamaður skrifar: trausti@dv.is
„Það kæmi mér ekki
á óvart að hann hafi
vísvitandi brotið af
sér til þess að verða
ekki sleppt.“
Leiddur fyrir dómara Í apríl 1998 voru Ólafur og
sigurður dæmdir í 12 og 16 ára fangelsi í Hæstarétti.
Ólafur hefur afplánað dóminn að fullu en sigurður
átti innan við hálft ár eftir þegar hann strauk.
Morð í Heiðmörk fyrir
10 árum myrtu tvíbura-
bræðurnir Lárus á
hrottafenginn hátt í
Heiðmörk. Þeir voru undir
áhrifum ýmissa lyfja er þeir
frömdu verknaðinn og
höfðu með sér 8 þúsund
krónur úr veski hins myrta.
Fimmtán fá að
veiða við Noreg
Fimmtán íslensk skip hafa
fengið heimild til að veiða
samanlagt 35 þúsund tonn af
síld í norskri lögsögu.
Úthlutunin byggist á
samkomulagi íslenskra og
norskra stjórnvalda um
veiðar úr norsk-íslenska
síldarstofninum sem náðist
í byrjun árs. Skipin verða
að veiða aflann norðan 62°
norðlægrar breiddar og meira
en tólf sjómílur frá grunnlínum.
Fimm skipanna eru frá
Vestmannaeyjum en hin víðs
vegar af landinu.
reykjanesbær
í Sandgerði
„Þetta getur valdið misskiln-
ingi,“ segir Ólafur Þór Ólafsson,
bæjarfulltrúi í Sandgerði. Póst-
númerið 235 Keflavíkurflugvöllur
verður hér eftir 235 Reykjanes-
bær samkvæmt tilkynningu frá
Íslandspósti.
Bæjarráð Sandgerðisbæjar
leggur á það áherslu að póst-
númer bæjarins gildi alls staðar
innan bæjarmarka en Flugstöð
Leifs Eiríkssonar sem og stærst-
ur hluti flugbrauta vallarins eru
innan Sandgerðis. Því er ljóst
að hluta pósts sem koma þarf
til flugvallarins þarf að koma til
Sandgerðisbæjar.