Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2007, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2007, Blaðsíða 8
Engir skólaliðar hafa verið í Haga- skóla til að fylgjast með gangi mála á göngum skólans síðustu tvo daga. Um þá ganga fara á sjötta hundrað börn dag hvern, enda 556 nemend- ur í Hagaskóla. Erfiðlega hefur gengið að ráða fólk til starfa í grunnskólum Reykja- víkur og er nú svo komið að starfs- menn Hagaskóla sem DV hefur rætt við kvarta sáran undan miklu álagi og of fáu starfsfólki. Fimm skólaliðar hafa verið ráðn- ir til starfa hjá Hagaskóla en síðustu daga hefur borið svo við að enginn þeirra hefur verið við vinnu. Sesselja Ingibjörg Jósefsdóttir, skólastjóri Hagaskóla, segir að tveir þeirra eigi við langvarandi veikindi að stríða og ofan á það bætist að mikil veikindi að undanförnu hafi sett strik í reikn- inginn. „Skólaliðarnir skiptast niður á stór svæði, þar á meðal íþróttarhús- ið. Ég vildi gjarnan hafa þrjá skóla- liða til viðbótar í skólanum,“ segir Sesselja, sem telur ástandið í skól- anum þó ekki mjög slæmt. Aðstoðarskólastjóri í mötuneytinu Þegar blaðamaður og ljósmyndari frá DV litu við í Hagaskóla í gær var Kristín Jóhannsdóttir aðstoðarskólastjóri að störfum í mötuneytinu. Þar var hún að hjálpa til þegar börnin komu í mat. Sesselja Ingibjörg segir hins vegar hefð fyrir því í skólanum að allir hjálpist að. Hún segir þetta góða leið til að kynnast nemendunum. „Okkur er annt um börnin og við reddum hlutunum.“ Ósátt við fræðslustjóra Þeir starfsmenn sem DV ræddi við í gær lýstu mikilli óánægju sinni með hvernig málum er komið í skól- anum. Þeir segjast vera undir miklu álagi vegna þess hversu fátt starfs- fólkið er. Fræðslustjóri lýsti því yfir á dögunum að búið væri að manna skólann það vel að það vantaði inn- an við 20 prósent starfsfólks. Það þýðir að starfsmenn skólans fá ekki greiddar álagsgreiðslur vegna und- irmönnunar, þær miðast einmitt við að það vanti 20 prósent starfs- manna eða meira. Starfsfólk Haga- skóla er mjög ósátt við ummæli fræðslustjóra því upplifun þess er á skjön við þessa tilkynningu því álag- ið sé mikið. Vantar fólk víða Hagaskóli hefur ítrekað aug- lýst eftir skólaliðum en án árang- urs. Inni á vef menntasviðs má sjá að sjö aðrir grunnskólar í Reykjavík auglýsa eftir skólaliðum. Skólastjóri Hagaskóla bendir á það að þetta séu ekki einu störfin sem erfitt sé að manna þessa dag- ana,. „Það vantar starfsfólk í flest láglaunastörf í dag,“ segir Sesselja Ingibjörg. föstudagur 14. september 20078 Fréttir DV Vandræðaástand hefur myndast í Hagaskóla undanfarna daga. Erfiðlega hefur gengið að ráða skólaliða og nú bregður svo við að allir þeir sem voru ráðnir eru frá vegna veikinda. Ástandið er ekki mjög slæmt segir Sesselja Ingibjörg Jósefsdóttir skólastjóri sem vildi þó hafa þrjá skólaliða í viðbót. ENGIR SKÓLALIÐAR EFTIR Kolbrún PálínA HelgAdÓttIr blaðamaður skrifar: kolbrun@dv.is „Okkur er annt um börnin og við reddum hlutunum.“ Annríki í mötuneytinu Yfir 300 börn borða heitan mat í hádeginu í Hagaskóla dag hvern en 556 nemendur eru í skólanum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.