Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2007, Qupperneq 14
föstudagur 14. september 200714 Helgarblað DV
DV11095110907__0.jpg
DV11074110907
!!!Setja Interpol lógó-ið inn!!!
!!!Setja inn mynd af síðu 2 í DV á miðvikudag!!!
DV11224130907
DV11227130907
DV11230130907
Eftirlýstur fyrir mörg
Gunnar Stefán Möller Wathne er eft-
irlýstur af bandarísku fíkniefnalög-
reglunni, DEA, og alþjóðlegu lög-
reglunni Interpol fyrir aðkomu sína
að peningaþvætti á mörg hundruð
þúsund dollurum, andvirði tugmillj-
óna íslenskra króna. Peningarnir
sem Gunnar Stefán þvættaði voru
söluágóði af stórtækri LSD-fram-
leiðslu í Bandaríkjunum. Í tengslum
við það er Gunnar Stefán jafnframt
eftirlýstur fyrir þátt sinn í sölu og
dreifingu á verulegu magni af fíkni-
efnum. Þung viðurlög eru við glæp-
unum sem hann er eftirlýstur fyrir í
Bandaríkjunum, því hámarksrefsing
getur numið allt að tuttugu árum í
fangelsi fyrir bæði brot. Við það geta
bæst háar fjársektir.
Sonur einnar Wathne-systra
Gunnar fæddist 10. júní árið
1969 í Reykjavík. Móðir hans er Þór-
unn Wathne, sem ásamt tveimur
systrum sínum rekur stórfyrirtækið
Wathne Corp. á Manhattan í New
York. Systrunum hefur vegnað afar
vel í viðskiptum, en fyrirtæki þeirra
framleiðir meðal annars ferðatösk-
ur, handtöskur og skjalatöskur. Þá
framleiðir fyrirtækið ýmsar smávör-
ur á borð við skrautgripi og auglýs-
ingavörur. Þær hafa auðgast vel og er
fyrirtækið metið á milljarða króna.
Systurnar hafa heimsótt
Ísland reglulega, meðal
annars til þess að veiða lax
á sumrin. Þær hafa jafn-
an vakið athygli fjölmiðla,
enda afar samrýndar og
glæsilegar systur.
Gunnar fluttist ungur til
Bandaríkjanna. Hann inn-
ritaðist í Harvard-háskóla,
en flosnaði upp frá námi
áður en hann náði að ljúka
því. Sjálfur hefur hann ver-
ið áberandi í samkvæmis-
lífinu vestanhafs, myndir
hafa birst af honum í glans-
tímaritum og dagblöðum
þar í félagsskap valdamikils
og frægs fólks.
Glæsiferð með
Murdoch-syni
Gunnar Stefán kom hing-
að til lands skömmu fyrir
jólin 1999 ásamt um það bil áttatíu
manna hópi fyrrverandi nemenda
úr Harvard. Hópurinn nefnist Har-
vard Lampoon, eða grínfélag Har-
vard. Flestir meðlima eiga það sam-
eiginlegt að hafa haslað sér völl í
skemmtanaiðnaðinum. Hópurinn
kom hingað til lands í boði Gunn-
ars og var ekkert til sparað að gera
ferðina sem glæsilegasta. Með í för
voru meðal annars handritshöfund-
ar og framleiðendur The Simpsons-
, Friends-, Seinfeld- og Futurama-
þáttanna. Þá voru í ferðinni börn
ýmissa fyrirmanna, á borð við Krist-
in Gore, dóttur Als Gore, fyrrverandi
varaforseta Bandaríkjanna, og �ames
Murdoch, sonur hins umdeilda fjöl-
miðlajöfurs Ruberts Murdoch.
Sendiráð Bandaríkjanna stóð fyr-
ir móttöku fyrir hópinn og síðasta
kvöld ferðarinnar var haldin
glæsileg kvöldverðarveisla í
Iðnó þar sem Davíð Odds-
son, þáverandi forsætisráð-
herra, var heiðraður sér-
staklega og færðar gjafir.
Með forsetafrú
Bandaríkjanna
Gunnar Stefán hefur lát-
ið til sín taka í menningarlíf-
inu. Hann situr í stjórn og er
velvildarmaður bandaríska
ballettsins. Þá hefur
hann framleitt
söngleiki sem
meðal ann-
ars hafa ver-
ið settir upp á West End í London
Samkvæmt vefsíðu American
Russian Young Artist Orchestra, eða
rússnesk-amerísku ungsinfóníu-
hljómsveitarinnar, situr Gunnar
jafnframt í ráðgjafarnefnd hljóm-
sveitarinnar. Nefndina skipar auk
hans atkvæðamikið fólk úr viðskipta-
lífi og menningarlífi landanna. Til-
gangur stofnunar hljómsveitarinn-
ar var að tengja saman hæfileikaríka
unga tónlistarmenn í Bandaríkjun-
um og Rússlandi. Hljómsveitin hefur
fengið mikið lof í fjölmiðlum beggja
landa. Annar tveggja heiðursforseta
hljómsveitarinnar er sjálf Laura W.
Bush, forsetafrú Bandaríkjanna.
Þar að auki á Gunnar sæti í yfir-
stjórn Listaháskólans í Norður-
Karólínu, en í skólanum læra nem-
endur meðal annars dans, leiklist,
kvikmyndagerð og tónlist.
Efnafræðingur þvættir
eiturlyfjapeninga
Gunnar hefur ekki aðeins komist
í kastljós fjölmiðla vestanhafs vegna
þátttöku sinnar í menningarlífinu og
samkvæmislífinu. Margir fjölmiðl-
ar, bæði dagblöð og netmiðlar, hafa
fjallað um aðild hans að umsvifa-
miklu peningaþvætti í tengslum við
hagnað af fíkniefnasölu. Fyrir þátt
sinn í þessu máli er auðkýfingurinn
nú á lista DEA og Interpol yfir eftir-
lýsta flóttamenn.
Í bandaríska blaðinu San Fran-
cisco Chronicle var sagt frá peninga-
þvætti Gunnars Stefáns, sem tengist
manni að nafni William Leonard
Pickard. Sá var ákærð-
ur fyrir samsæri og
fyrir að
hafa haft
undir
höndum
nokkurt
magn
af
LSD. Efnin var hann grunaður um
að ætla að selja. Pickard var virtur
efnafræðingur við UCLA-háskólann
í Kaliforníu en öllum að óvörum varð
hann miðpunktur í sakamáli sem
tengdist einni stærstu LSD-verk-
smiðju í Bandaríkjunum.
Efnin framleiddi hann sjálf-
ur í félagi við �ohn Halpern
í Harvard-háskólanum, en
báðir áttu þeir það sam-
eiginlegt að hafa neytt
efnisins áður en þeir
kynntust. Þeir högnuð-
ust vel á starfseminni og
gegn greiðslu kom Hal-
pern Pickard í samband
við Gunnar Stefán til
þess að fjárfesta
og þvætta fyr-
ir hann pen-
ingana. Þeg-
ar málið
komst í há-
mæli var
Gunn-
ar
Stefán grunaður af lögregluyfirvöld-
um um peningaþvætti. Hann neitaði
þeim ásökunum, eftir því sem greint
er frá í San Francisco Chronicle.
Gunnar Stefán var sakaður um
að hafa sent eða millifært allt að
fimm milljónir dollara í peningum
til manna sem hann hafði komist
í samband við í Rússlandi og eru
grunaðir um að hafa tengsl við mafí-
una. Með þeim hætti huldi hann slóð
peninganna. Samkvæmt núgildandi
gengi nemur upphæðin, sem hann
er grunaður um að hafa millifært,
tæpum 320 milljónum króna. Í stað-
inn fyrir peningana sendu Rússarnir
nokkur hundruð þúsund dollara til
háskólans aftur. Á yfirborðinu var
hins vegar allt með felldu hjá Pick-
ard því peningarnir sem komu frá
Rússlandi voru notaðir til þess að
fjármagna virðingarstöðu fyrir hann
í nefnd innan skólans sem mótar
stefnuna og baráttuna gegn fíkni-
efnum.
Ekki lykilmaður
Málið teygir anga sína
til Kansas í Bandaríkjun-
um þar sem framleiðsla efn-
anna fór fram og Pickard var
handtekinn. Í vefútgáfu dag-
blaðsins The Topek Capi-
tal �ournal í Kansas er sagt
frá því að samskiptin við
Rússana sem áttu hlut í
peningaþvættinu hafi
stirðnað þegar umsam-
in millifærsla að upp-
hæð ein milljón dollara,
eða rúmar 63 milljónir
króna, hafi aðeins numið
um 750 þúsund dollur-
um, eða tæpum 48 millj-
ónum króna.
Steve Fry, blaða-
maður The Topek
Capital �ournal
sem fjallaði mik-
ið um málið, sagði
við DV að Gunn-
ar Stefán hefði
ekki gegnt lykil-
hlutverki í málinu.
„Hann var alltaf
hundruð milljóna pEningaþvætti
Gunnar Stefán Möller Wathne er eftir-
lýstur af bæði fíkniefnalögreglunni í
Bandaríkjunum og alþjóðalögreglunni
Interpol fyrir þátt sinn í peningaþvætti á
hundruðum milljóna króna. Peningarnir
voru söluágóði af LSD sem bandarískur
efnafræðingur við UCLA-háskóla fram-
leiddi. Þung viðurlög eru við glæpunum
sem Gunnar Stefán er eftirlýstur fyrir.
Talið er að hann sé búsettur í Moskvu nú
um stundir.
ValGEIr Örn raGnarSSon
blaðamaður skrifar: valgeir@dv.is
Gunnar Stefán Möller
Wathne gunnar stefán kom
til landsins árið 1999 og hélt
glæsilega veislu til heiðurs
davíð Oddssyni, þáverandi
forsætisráðherra. með í för var
meðal annars dóttir als gore.
Eftirlýstur gunnar stefán möller Wathne er
eftirlýstur af fíkniefnalögreglunni í bandaríkjunum.
Moskva talið er að gunnar
sé nú búsettur í moskvu.
laura W. Bush forsetafrú bandaríkjanna er heiðurs-
forseti sinfóníuhljómsveitar, en gunnar stefán er
skráður í sérstaka ráðgjafarnefnd hljómsveitarinnar.