Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2007, Page 20
Menning
föstudagur 14. september 200720 Menning DV
Þjóðmál
komin út
Hausthefti tímaritsins Þjóð-
mála er komið út. Meðal efnis
er grein Guðbjargar H. Kolbeins
þar sem rakin er viðskiptasaga
regnboga-
fyrirtækisins
Dagsbrún-
ar, Gunn-
laugur
Júlíusson
fjallar um
þær hörm-
ungar
sem Maó
formaður
kallaði yfir
Kínaveldi
á nær 40 ára valdaferli sínum,
Björn Jón Bragason segir frá
samstarfi stjórnvalda og hjálp-
arsveitar skáta um loftvarn-
ir í Reykjavík á árum heims-
styrjaldarinnar síðari og Birgir
Tjörvi Pétursson fjallar um
eignarrétt á náttúruauðlindum.
Þýðingar
Málþing um þýðingar fer fram í Háskóla Íslands á morgun:
Urðu heimsbókmenntirnar til á Íslandi?
Ógn glæpasögunnar, sálarfræði
þýðingarinnar og spurningin hvort
heimsbókmenntirnar hafi orðið til
á Íslandi er á
meðal þess
sem rætt verð-
ur á málþingi um þýðingar í Odda í
Háskóla Íslands á morgun. Þingið,
sem ber yfirskriftina Hvað er fyrir
handan? er hluti af Bókmenntahá-
tíðinni í Reykjavík sem staðið hefur
alla vikuna og markar lok hátíðarinn-
ar að þessu sinni.
Þingið hefst klukkan tíu og stíg-
ur Jón Karl Helgason fyrstur í pontu
þar sem hann flytur erindi með yf-
irskriftinni Frumsamdar þýðing-
ar: Hugleiðingar um íslenskar sam-
tímabókmenntir og útgáfu. Sænski
þýðandinn John Swedenmark ræð-
ir svo um málstirðan málstað, Karl-
Ludwig Wetzig um íslenskar bók-
menntir og ógn glæpasögunnar,
erindi Gauta Kristmannssonar nefn-
ist Urðu heimsbókmenntirnar til á
Íslandi? og Silje Beite Loken er síðust
í röðinni fyrir hádegishlé með erind-
ið Hin frjóu hjálparráð, eða: Vandinn
að þefa uppi góðar orðabækur.
Silvia Cosimini hefur leikinn eftir
hádegir þar sem hún ræðir um þýð-
ingar Laxness á ítölsku. Erindi Krist-
ofs Magnusson þar á eftir heitir Hér
er Þjóðverji, um Íslending, frá höf-
undi til þýðanda, yfirskriftin hjá
Tapio Koivukari er Ég heiti Tap-
io. Ég er ljón og svo ber Victoria
Cribb á borð bollaleggingar um
leiðina frá íslensku til ensku.
Eftir kaffi fjallar Guðbergur
Bergsson um sálarfræði þýð-
ingarinnar, Eric Boury
veltir fyrir sér hvar megi vitja sann-
leikans, Steinunn Sigurðardóttir ræðir
um samvinnu höfundar og þýðanda.
Kim Lembek reynir loks að svara því
hvort Gunnar hafi stokkið eða fallið af
hesti sínum við Markarfljót áður en
ítalska skáldið Claudio Pozz-
ani slær lokatóninn.
Þingið stendur til kl. 16
og eru allir velkomnir.
Þjóðleikhús-
ráð skipað
Menntamálaráðherra hef-
ur skipað Þjóðleikhúsráð og
gildir skipunin frá 15. sept-
ember 2007 til 14. september
2011. Ráðið er þannig skipað:
Ingimundur Sigfússon for-
maður, skipaður án tilnefn-
ingar; Halldór Guðmundsson
varaformaður, skipaður án
tilnefningar, Kolbrún Halldórs-
dóttir, skipuð án tilnefningar,
Randver Þorláksson, tilnefnd-
ur af Félagi íslenskra leikara,
og Ásdís Skúladóttir, tilnefnd
af Félagi leikstjóra á Íslandi.
Varamenn eru Ólafur Þ. Step-
hensen, Helga Vala Helgadóttir,
Andri Snær Magnason, Edda
Arnljótsdóttir og Brynja Bene-
diktsdóttir.
Vinjettur VII
Út er komin bókin Vinjettur
VII eftir Ármann Reynisson. Þar
er meðal annars að finna fjölda
Grænlandssagna sem eru upp-
lifanir höfundar frá því áhuga-
verða landi, þrjár portrettsögur
af litríku fólki og nokkrar sögur
af Pourqoui pas?-sjóslysinu
við Straumfjörð á Mýrum árið
1936. Þá er skyggnst inn í ver-
öldina handan raunveruleik-
ans með sögum um drauma,
hugskeyti og tvífara. Sögurnar
eru bæði á íslensku og ensku
en áður hefur komið út þýsk
útgáfa á Vinjettum V, tvítyngd
á þýsku og íslensku. Þeir sem
vilja eignast eintak af Vinjettum
VII er bent á síðuna armannr.
com.
Óvitar á bók
Hjá Vöku-Helgafelli er komin út bókin Óvitar eftir Guðrúnu Helgadótt-
ur. Leikritið samdi Guðrún Helgadóttir á áttunda áratugnum og síðan
þá hafa Óvitar oftsinnis verið settir á svið um allt land. Auk leikritsins
geymir bókin söngtexta sem Davíð Þór Jónsson samdi sérstaklega fyrir
uppfærslu Leikfélags Akureyrar á verkinu í haust.
xxxxxx
xxxxxx
Guðbergur Bergsson
guðbergur fjallar um
sálarfræði þýðingarinnar á
þinginu á morgun.
FORMAÐURINN SEM
ELSKAÐI OFBELDI
Metsöluhöfundurinn
Jung Chang Jung Chang
er meðal þekktustu
höfunda heims en hún
sendi frá sér bókina Villtir
svanir í byrjun níunda
áratugarins. Hún er nú
stödd hér á landi vegna
bókmenntahátíðar.