Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2007, Blaðsíða 24
H
eimilisþrifin
eru ekki endi-
lega mesta eftir-
læti fólks en það
er með léttum
leik hægt að gera
þau að gleðistund. Hugsið ykkur
bara hvað það sparar mikinn tíma
og peninga að þurfa ekki að fara
á líkamsræktarstöð til að grenna
sig. Nóg að setja upp gulu gúmmí-
hanskana, heita vatnið í fötu, góða
plötu á „fóninn“ – og hókus, pókus:
kílóin fjúka! Ekki kannski á einum
degi eða tveimur – en allavega á
einhverjum mánuðum.
Hin óborganlega bók Aðlaðandi
er konan ánægð, sem gefin var út
árið 1945, fjallar í sérstökum kafla
um hvernig hægt er að gera hús-
verkin að leikfimi.
Fyllumst öfund út í
mittisgrannar yngismeyjar
„Of mikil þykkt um maga og mitti
stafar oft af því, að við höfum ekki
rétta líkamsstellingu. Við hniprum
okkur saman í hnút og látum rifin
síga niður, en fyllumst svo öfund,
er við sjáum mittisgrannar yngis-
meyjar. Hvorki tíminn né barns-
fæðingar orsaka þetta „mittisleysi“,
sem margar kvarta yfir. Þér gætuð
verið eins grönn og ung stúlka ef
þér réttuð vel úr yður, teygðuð yður
eins og þér hafið lengdina til. (Sko,
allt letinni að kenna! Svo er verið að
kenna elsku börnunum um þenn-
an skort á grönnu mitti. Skammist
ykkar!)
Ekki hnipra yður saman
Þegar þér eruð að þvo gólf, sópa,
ryksuga, hengja út þvott eða eitt-
hvað annað að starfa, skulið þér
ekki beygja yður eða hnipra saman,
heldur nota tækifærið og rétta úr
yður við verkið, gerið þessi störf og
önnur heimilisstörf sem til þess eru
fallin, að leikfimi. Hvað sem hverj-
um kann að finnast, er það gott fyr-
ir vaxtarlagið. Það er góð aðferð til
þess að finna, hvaða vöðvum helst
þarf að teygja úr, svo að líkams-
stellingin sé rétt: Stillið yður upp
við þilið, þannig að hælar og bakið
snerti vegginn. Setjið fæturna svo-
lítið í sundur og beygið hnén ofur-
lítið, uns þér náið þeirri réttu stell-
ingu að hryggurinn sé beinn, laus
við allan „söðul“ (sbr. söðulbak).
Réttið nú handleggina upp og látið
„mittis-vöðvana“ færast upp og inn
en hrygg og hnakka stöðugt hvíla
upp við vegginn. Finnið þér ekki,
hvernig mittið eins og færist inn?
(Jú hú, heldur betur. Það bara fær-
ist og færist!)
En takið eftir því, að ég sagði að
beygja ætti hnén aðeins ofurlítið, en
halda bakinu beinu. Smátt og smátt
munið þér ósjálfrátt setja út brjóst-
kassann (eins og hann á að vera) og
draga magann inn (eins og vera ber).
Þessa æfingu er auðvelt að gera oft
á dag og þér munið komast að raun
um að hún bætir vaxtarlagið og ger-
ir yður auðveldara að bera yður vel.“
(Þetta þýðir auðvitað að nú fara
allar konur að skúra vinnustaðinn
nokkrum sinnum á dag. Þannig
næst hámarksárangur!)
Samantekt úr bókinni
Aðlaðandi er konan ánægð.
föstudagur 14. september 200724 Helgarblað DV
Skúraðuf þér spikið
Minnisblaðið nauðsynlegt
drengnum finnst engu að síður
að mamma hans eigi að skúra
áður en hún fer í búðina og líka
eftir að hún kemur heim.
Straujað í grenningarskyni
Við brennum ekki miklu meðan
við straujum, en þó fimmtíu til
sextíu kaloríum á klukkustund
og það er nú betra en ekkert!
Tvennt í einu: um leið og við
þrífum eldhúsvegginn teygjum
við á líkamanum og getum
mögulega fengið minna mittismál
fyrir vikið.
Heima hjá þessari er
allt hreint Það sést nú
bara á vaxtarlaginu hvað
þessi kona er myndarleg
húsmóðir.
Suðurlandsbraut 4. Reykjavík. - www.veidihollin.is - Sími 533 1115 - 893 7654
eða frá þér í ár?
Viltu spara 25% af verði eins besta útivistar og veiðifatnaðar sem völ eru
á fyrir unglinga, konur og karla, kynntu þér þá pöntunarþjónustu okkar.
www.veidihollin.is.
sem og allt annað færðu hjá okkur í skot og stangveiði.
Allt það besta frá Veiðilandi færðu hjá okkur.
Verðum með notaðar byssur í endursölu, skráðu byssuna hjá okkur .
Hversu gott getur lífið orðið? Er það ekki hámarkshamingja að
uppgötva að með því að þrífa heimilið og vinnustaðinn nokkrum
sinnum á dag hrynja kílóin af okkur? Þessa visku sækjum við í
sextíu ára gamla bók en aldrei er góð vísa of oft kveðin. Þótt hér sé
eingöngu rætt um mittismál kvenna, vekjum við sérstaka athygli á
að fátt er flottara en sjá karlmann með ryksugu eða að skúra...