Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2007, Blaðsíða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2007, Blaðsíða 31
DV Sport föstudagur 14. september 2007 31 © GRAPHIC NEWS Keppni ökumanna í Formúlu 1 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 = 13 14 15 16 17 Constructors’ championship Lewis Hamilton Fernando Alonso Kimi Räikkönen Felipe Massa Nick Heidfeld Robert Kubica Heikki Kovalainen Giancarlo Fisichella Alexander Wurz Nico Rosberg Mark Webber David Coulthard Jarno Trulli Ralf Schumacher Takuma Sato Jenson Button Sebastian Vettel McLaren McLaren Ferrari Ferrari BMW BMW Renault Renault Williams Williams Red Bull Red Bull Toyota Toyota Super Aguri Honda SRT 92 89 74 69 52 33 21 17 13 12 8 8 7 5 4 2 1 Stig 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 = McLaren-Mercedes Ferrari BMW Renault Williams Red Bull Toyota Super Aguri Honda STR Spyker 181 143 86 38 25 16 12 4 2 0 0 Staðan fyrir Belgíu-kappaksturinn – aðrir ökumenn eru með núll stig © GRAPHIC NEWS Belgíu-kappaksturinn Spa Rivage Bus Stop Pouhon Fagnes Stavelot Eau Rouge Les Combes Kemmel 1. beygja 20. b. 10. beygja 15. b. 8. b. 17. b. La Source Rásmark Lykilbeygjur 14. umferð: 16. september Lengd brautar: 6,976 km Keppnisfyrirkomulag: 44 hringir – 306,944 km Gír / km hraði Tímatökusvæði 2 64 6 290 6 297 6 330 3 140 3 152 5 290 3 140 3 170 5 250 5 245 6 305 6 297 2 90 0 100 2 3 1 0 © GRAPHIC NEWS Opnasta Formúlu 1 tímabil í 30 ár Það hefur ekki gerst frá árinu 1977 að órir ökumenn ha unnið að minnsta kosti þrjár F1 keppnir á tímabili. McLaren og Ferrari berast um titilinn í keppni ökumanna, með óra efstu menn. Ferrari gerir sé enn vonir um að vinna keppni ökumanna þar sem 23 stig aðskilja Ferrari og McLaren. Heimild: Infostrada, FIA Lewis Hamilton 92 stig Kimi Raikkonen 74 stig Felipe Massa 69 stig Ástralía Malasía Spánn Mónakó Kanada Bandaríkin Bretland Tyrkland Evrópa Ungverjaland Ítalía Frakkland Barein Fernando Alonso 89 stig 1977 2005 2000 1996 1993 1987 1986 1983 1979 1974 1973 Mario Andretti 4, James Hunt 3, Jody Scheckter 3, Niki Lauda 3 Fernando Alonso 7, Kimi Räikkönen 7, Juan Pablo Montoya 3 Michael Schumacher 9, Mika Häkkinen 4, David Coulthard 3 Damon Hill 8, Jacques Villeneuve 4, Michael Schumacher 3 Alain Prost 7, Ayrton Senna 5, Damon Hill 3 Nigel Mansell 6, Alain Prost 3, Nelson Piquet 3 Nigel Mansell 5, Alain Prost 4, Nelson Piquet 4 Alain Prost 4, Nelson Piquet 3, René Arnoux 3 Alan Jones 4, Gilles Villeneuve 3, Jody Scheckter 3 Carlos Reutemann 3, Emerson Fittipaldi 3, Ronnie Peterson 3 Jackie Stewart 5, Ronnie Peterson 4, Emerson Fittipaldi 3 KEPPNI ÖKUMANNA TÍMABIL ÞAR SEM ÞRÍR EÐA FLEIRI ÖKUMENN HAFA UNNIÐ AÐ MINNSTA KOSTI ÞRJÁR KEPPNIR 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 3 sigrar 3 sigrar 3 stig 4 sigrar 1 1 1 Aftur verður keppt á Spa- brautinni um helgina eftir endurbætur. Spa er uppá- haldsbraut margra öku- manna, enda flöt og með margar hraðar beygjur sem reyna á hæfni ökumanna. VINNUR RÄIKKÖNEN AFTUR Á SPA Í BELGÍU? Formúlu 1-keppni helgarinnar fer fram í Spa í Belgíu. Ekki var keppt á Spa í fyrra vegna þess að hún uppfyllti ekki ákveðnar reglur. Síðan þá hefur brautin farið í gegnum miklar endurbætur. Síðast var keppt á brautinni árið 2005. Kimi Räikkönen, þá ökumað- ur McLaren og núverandi ökumað- ur Ferrari, fór með sigur af hólmi. Räikkönen hefur unnið tvær síðustu keppnir á Spa. Einn annar ökumað- ur sem enn er að keppa hefur unn- ið á Spa, það er David Coulthard sem vann árið 1999 á McLaren-bíl. Ralf Schumacher, sem ekur fyrir Toyota, á besta tíma sem náðst hefur á Spa, 1:51,453. Brautin er hins vegar töluvert breytt og því lítið að marka fyrri tíma. Michael Schumacher, bróðir Ralfs, hefur oftast hrósað sigri á Spa, eða fimm sinnum talsins. Í raun eru sigrar hans sex talsins en árið 1994 var hann dæmdur úr leik eftir að keppni lauk og breska ökumanninum Damon Hill var dæmdur sigur. Ummæli öku- manna fyrir Belgíu- kappaksturinn Fernando Alonso – McLaren „Ég er mjög spenntur yfir því að keppa aftur á Spa, það er uppáhaldsbrautin mín. Hún er mjög krefjandi, löng og með mismunandi aðstæður, þú þarft að vinna vel með þínu liði til að ná góðu jafnvægi. Það tala allir um Eau Rouge-beygjuna, og það er frábær beygja, en mér finnst allur hringurinn sérstakur, hún reynir mjög á og er frábær áskorun fyrir ökumenn. Þú þarft að halda einbeitingu allan tímann og ég er staðráðinn í að fara og berjast til sigurs. Síðasta helgi á Ítalíu var mjög sérstök fyrir mig og liðið. Bíllinn var mjög hraður og við munum reyna að taka það með okkur til Spa. Baráttan um heimsmeistaratitilinn er mjög spennandi, eftir þessa keppni eru aðein þrjár eftir. Það er því mikilvægt að ná góðum úrslitum hér, en staðan er sú sama hjá Lewis (Hamilton), Kimi (Räikkönen) og Felipe (Massa). Það er nóg eftir, mitt markmið er að vinna eins mikið og hægt er og ég vona að endirinn á tímabilinu verði spennandi fyrir aðdáendur.“ Kimi Räikkönen – Ferrari „Við munum berjast á meðan enn er stærðfræðilegur möguleiki á sigri. Við megum ekkert gefa eftir. Við tókum góða æfingu á Spa í júlí og ég er 100 prósent tilbúinn líkamlega, eftir síðasta kappakstur tók ég nokkrar verkjastillandi og ég náði að slaka aðeins á. Spa er mín uppáhaldsbraut. Það er æðislegur staður þar sem ég elska að keppa og ég er ánægður með breytingarnar á brautinni. Það eru nokkrar hraðar og krefjandi beygjur, þar sem hægt er að nýta eiginleika bílsins. Við munum gera allt til að sigra. Ég hef verið í efsta sæti hér tvisvar í síðustu tveimur keppnum og mun reyna að ná því aftur á sunnudaginn.“ Lewis Hamilton – McLaren „Spa er braut sem allir tala um og það er góð ástæða fyrir því. Ég elska þessa braut. Eau Rouge-beygjan er frábær. Hún er hröð og ég hlakka til hennar á hverjum hring. Hún er klárlega hluti af þeim unaði sem fylgir því að vera Formúlu 1-ökumaður. Ég keppti hérna árið 2005, fyrri keppnin fór fram í bleytu og sú síðari í þurrki. Ég hef því góða reynslu héðan og vann báðar keppnir. Við æfðum hér í júlí og unnum góða vinnu með Bridgestone. Nú bíð ég bara eftir því að keppa hér í Formúlu 1-bíl í fyrsta sinn. Staðan í heimsmeistarakeppninni er mjög spennandi og fólk talar um pressu en það gefur mér bara aukinn vilja. Ég er klárlega ekkert stressaður. Það eru fjórar keppnir eftir og ég mun taka hverja fyrir sig og gera mitt besta til að vinna þær allar.“ Felipe Massa – Ferrari „Spa er stórkostleg braut. Ég hef alltaf kunnað vel við mig hér og ég geri ráð fyrir að bíllinn okkar verði nógu góður til að berjast til sigurs. Brautin er mjög áhugaverð. Sumar beygjur, til dæmis Eau Rouge, er hægt að taka á miklum hraða. Heilt yfir er uppbygging brautarinnar mjög góð, með mörgum hröðum beygjum og örum stefnubreytingum. Það eru atriði sem ég kann vel við.“ Efstu þrír eftir síðustu keppni á Spa Kimi räikkönen vann síðast þegar keppt var á spa, fernando alonso varð annar og Jenson button þriðji. Hvað gerir Alonso? fernando alonso vann nokkuð öruggan sigur á monza- brautinni um síðustu helgi og er aðeins þremur stigum á eftir Lewis Hamilton.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.