Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2007, Side 38

Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2007, Side 38
föstudagur 14. september 200738 Helgarblað DV FRAMTÍÐIN HVAÐ BER Í SKAUTI SÉR? Sigríður Klingenberg, spámiðill Við þorum, getum og viljum „Tóma hamingju ef við viljum. En til þess þurfum við að hugsa aðeins lengra, huga að framtíðinni. Það er mikilvægt að hver rækti sinn eigin garð því þá verður heimurinn miklu frjórri. Maðurinn er farinn að sá fleiri og fal- legri fræjum og þar af leiðandi er upp- skeran mun betri. Ég hef tekið eftir því að fólk er mun jákvæðara nú en það var fyrir nokkrum árum. En auðvitað tek- ur tíma að stoppa allt þetta stríðsbrölt og ýmsan vitleysisgang sem tíðkast víða. En framtíðin er sérstaklega björt fyrir Ísland. Hagvöxtur mun aukast og við þurfum ekkert að hafa áhyggjur af hrakfaraspám sem berast okkur utan úr heimi. Ísland vex hratt. Við erum bjart- sýnasta fólk í heimi. Við þorum, getum og viljum og meðan við trúum því að við getum allt fær ekkert okkur stöðvað. Halelúja, Amen!“ Örn Árnason, leikari Þarf að grafa upp vetrarúlpuna „Spaugstofan er að byrja aft- ur eftir smá frí svo það er allavega Spaugstofan um helgina. En svo þarf ég þarf að fara að grafa upp vetrarúlpuna því ég faldi hana ein- hvers staðar í vor. Núna er hins vegar að byrja að verða svo kalt að ég þarf að fara að hafa uppi á þessari þykku fínu vetrarúlpu minni. Takk fyrir að minna mig á það,“ segir leikarinn Örn Árnason um það hvað framtíðin hans beri í skauti sér. Samúel Örn Erlingsson, bæjarfulltrúi Batnandi mannskepna og hestar í himnaríki „Ég sé framtíðina í rósrauðum bjarma, með batnandi mannlífi og batnandi mannskepnu,“ segir Samúel Örn Erlingsson, bæjarfulltrúi og íþróttafréttamaður, aðspurð- ur hvað framtíðin beri í skauti sér. „Ég er með sól í hjarta og hlakka til framtíðarinnar. Ég sé bara það jákvæða og ís- lenska hestinn í hæstu hæðum, líka í himnaríki,“ segir Sam- úel Örn og hlær dátt. Heimir Karlsson, dagskrárgerðarmaður Í bítið á Bylgjunni Bíður eftir tímavél „Það er alveg á hreinu að væri til tímavél í dag og mér byðist að fara aftur til fortíðar eða til framtíðar, myndi ég án efa fara inn í framtíðina, svona eins og 500 ár! Það þarf ekki að vera svo fjarlægur draumur að ferðast fram og aftur í tíma. Vísindunum hefur fleygt fram með ótrúlegum hraða á undanförnum árum og nú er svo komið að vísindamenn telja vísindalegar forsendur fyrir því að smíða tímavél, en það sem standi í vegi fyrir því sé verkfræðiþekkingin, hún sé ekki komin nógu langt enn! Getur verið að handan við hornið verði tímavélin raunveruleg? Höfum við þegar fengið heimsókn úr framtíðinni? Ber framtíðin fortíðina í skauti sér? Heillandi viðfangsefni sem fremstu vísindamenn heims eru raunverulega að rannsaka og gera tilraunir með.“ Þóra Tómasdóttir, dagskrárgerðarkona Nýting mannsheilans „Aukin nýtni á mannsheilanum í framtíðinni mun leiða til að við losnum úr viðjum þyngdaraflsins. Það gefur okkur þar með talsvert svigrúm til að leysa úr stórum vandamálum, líkt og hlýnun jarðar, misrétti kynjanna og launamisrétti.“ Bryndís Torfadóttir, framkvæmda- stjóri SAS Áhyggjur af hlýnun jarðar „Ég hef lifað svo miklar breytingar að mér finnst stundum að lífinu verði vart lifað hraðar en í dag, en ég skynja samt feril enn meiri breytinga og að menntun fólks verði enn aðgengilegri og meiri fyrir hvern einstakling. Mestar áhyggjur hef ég samt af hlýnun jarðar og verndun ósonlagsins Kröfur mannfólksins aukast hraðar og hraðar um betri og enn betri lífsskilyrði og hér er ég hrædd um að í framtíðinni munum við lifa innihaldslausara lífi hvert með öðru þar sem við höfum hreinlega ekki tíma til að rækta nein sambönd né fjölskyldulíf.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.