Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2007, Page 40
Ættfræði DV
ættfræði
U m s j ó n : K j a r t a n G u n n a r K j a r t a n s s o n
N e t f a n g k g k @ s i m n e t . i s
Í fréttum var þetta helst... 15. september 1967
Kanasjónvarp kveðið niður
,,Í dag 15. september á að takmarka
sjónvarp varnarliðsins á Keflavíkur-
flugvelli, samkvæmt yfirlýsingu Stones,
aðmíráls, yfirmanns varnarliðsins, hafi
tæknilegum undirbúningi verið lokið.‘‘
Þannig hljóðar fyrri hluti stuttrar, eins
dálks fréttar, á annarri síðu Morgun-
blaðsins, haustið 1967. Með þessum
ráðstöfunum gátu íbúar höfuðborg-
arsvæðisins ekki lengur horft á Kana-
sjónvarpið þótt Suðurnesjamenn gætu
það. Þessi stutta og yfirlætislausa frétt
greinir frá lyktum eins heitasta deilu-
máls þjóðarinnar á sjöunda og áttunda
áratug síðustu aldar: Deilunnar um
Kanasjónvarpið.
Bonanza og Ed Sullivan
Bandaríska varnarliðið fékk leyfi
til að reka litla sjónvarpsstöð á varn-
arsvæðinu á Keflavíkurflugvelli árið
1955. Árið 1961 var gefið leyfi fyrir
stærri stöð og öflugri útsendingum.
Í kjölfarið fór að bera á undarlegum
loftnetum á skorsteinum einstaka
húsa á höfuðborgarsvæðinu og sí-
fellt fleiri íbúar þess urðu viðræðu-
hæfir um bandaríska sjónvarpsþætti
á borð við Bonanza, Gunsmoke, The
Untouchables, Ed Sullivan Show og
Felix the Cat. Höfuðborgarsvæðið
var að sjónvarpsvæðast án þess að
nokkuð bólaði á íslensku sjónvarpi.
Íslenskt sjónvarp kom ekki til sög-
unnar fyrr en haustið 1966 og því hef-
ur oft verið haldið fram með sterkum
rökum að Kanasjónvarpið hafi ýtt úr
vör íslensku sjónvarpi sem ella hefði
ekki séð dagsins ljós fyrr en mörgum
árum síðar.
Á örfáum árum urðu nokkrar loft-
netshríslur á stangli að loftnetafrum-
skógi á húsþökum borgarinnar. Það
voru jafnvel komin loftnet á bragg-
ana. Á meðan fitnuðu sjónvarps-
kaupmenn glottandi á fjósbitanum.
Mikið vill meira
Síaukin útbreiðsla Kanasjón-
varpsins 1961–1966 átti meðal ann-
ars rætur að rekja í frjálslyndis-
stefnu Viðreisnarstjórnarinnar. Hún
hafði hafnað innflutningshöftum og
reyndi að nútímavæða hagstjórn-
ina. Hefðu höftin enn þótt sjálfsagt
stjórntæki, hefðu stjórnvöld getað
bannað innflutning á sjónvarpstækj-
um. En nú kom slíkt ekki til álita svo
sauðsvartur almúginn fór sínu fram
án þess að huga að „menningarlegu
sjálfstæði“ þjóðarinnar. Stórbætt lífs-
kjör ýttu einnig undir þessa þróun og
utanlandsferðir voru ekki lengur for-
réttindi námsmanna og stjórnmála-
manna. Í útlöndum uppgötvuðu sí-
fellt fleiri Íslendingar sjónvarp, bjór,
majones, rýmri verslunartíma og
svokallaða vínmenningu. Þjóðin var
í síauknum mæli að bera aðstæð-
ur sínar saman við aðstæður í ná-
grannalöndunum. Við máttum orðið
kaupa ávexti, útlent kex og sælgæti,
svo hvers vegna ekki að horfa á sjón-
varp? Og skipti þá máli hvaðan gott
kom?
Fjölnismenn 20. aldar
Árið 1964 áttuðu íslenskir menn-
ingarvitar sig á þessari hljóðlátu en
vafasömu menningarbyltingu og
hófu gagnbyltingu sem heppnaðist
fullkomlega. Þar fóru fremstir Þór-
hallur Vilmundarson prófessor sem
skrifaði bæklinginn Íslensk menn-
ingarhelgi; Sigurður A. Magnússon,
þá blaðamaður við Morgunblaðið,
sem skrifaði bæklinginn Sjónvarps-
málið, og Sigurður Líndal, lagapróf-
essor og sagnfræðingur, sem hélt
hápólitíska barátturæðu á fullveldis-
hátíð stúdenta 1. desember sem hét
Varðveisla þjóðernis. Fjórði Fjölnis-
maður 20. aldar var Hannes Péturs-
son skáld, en Ragnar í Smára fjár-
magnaði þjóðfrelsisbaráttuna og
lagði á ráðin – og þar munaði um
minna.
Gagnbylting menningarvita
Næsta skref fjórmenninganna
fólst í áskorun til Alþingis um að
sjónvarpsútsendingar varnarliðs-
ins yrðu einungis bundnar við her-
stöðina. Þeir fengu 60 helstu skáld,
kirkjumenn og forstöðumenn opin-
berra mennta- og menningarstofn-
ana til að skrifa undir áskorunina og
afhentu hana svo forseta sameinaðs
þings þann 13. mars 1964. Áskorunin
sem birtist í dagblöðum daginn eftir
kallaði á mikið fjölmiðlafár og fjölda
blaðagreina þar sem smíðað var orð-
ið „menningarviti‘‘ og mikið fjasað
um kommúnista og Jónana tvo, þann
óbreytta og séra Jón.
Kommarnir útilokaðir
„Afstaða okkar fjögurra kom skýrt
fram í áskoruninni til Alþingis,“ seg-
ir Sigurður Líndal þegar hann rifjar
þetta upp: „Að það væri „...vansæm-
andi fyrir Íslendinga sem sjálfstæða
menningarþjóð að heimila einni er-
lendri þjóð að reka hér á landi sjón-
varpsstöð er nái til meiri hluta lands-
manna.“
Þess er skemmst að minnast að
íslensk ríkisstjórn taldi bráðnauð-
synlegt að setja fjölmiðlalög til að
koma í veg fyrir einokunaraðstöðu
einstakra, íslenskra auðmanna á
fjölmiðlamarkaði. Hvað hefði sú rík-
isstjórn sagt um aðstæðurnar 1964
þegar eitt erlent stórveldi einok-
aði sjónvarpsútsendingar hér með
sjónvarpsdagskrá fyrir erlenda her-
menn?‘‘
Það er athyglisvert, Sigurður, að
flestir ykkar sem fóruð fyrir þess-
ari baráttu voruð lýðræðissinnar og
jafnvel hægrimenn – og það virðist
ekki vera einn kommúnisti í hópi
sextíumenninganna.
„Já, það er rétt. Kommarnir voru
í banni. Við vildum ekki flækja mál-
ið með því að fá einhvern komma-
stimpil á baráttu sem snérist um ís-
lenskt þjóðerni og menningu.‘‘
Hvers vegna sextíu einstaklingar?
„Vegna þess að alþingismenn
voru þá sextíu talsins. Við vildum
benda Alþingi á afstöðu þeirra sextíu
Íslendinga sem öðrum fremur fóru
fyrir og stóðu því vörð um íslenska
menningu.“
Hver urðu viðbrögð stjórnvalda?
„Meirihluti Alþingis var okkur
sammála. Gylfi Þ. Gíslason mennta-
málaráðherra samsinnti okkur og
taldi þetta vandræðaástand sem
enginn hefði séð fyrir né óskað eft-
ir. Bjarni Benediktsson forsætisráð-
herra kallaði okkur Hannes á sinn
fund og var hvefsinn í fyrstu. En við
stóðum fastir fyrir og ég held hann
hafði virt það við okkur, enda mild-
aðist hann og sagði í lokin: „Jæja,
vinir mínir! En þið fóruð nú samt
skakkt í þetta mál. Það hefði þurft að
leiða það til lykta innan flokksins en
ekki í fjölmiðlum.‘‘‘‘
En varðst þú ekki óvinur Banda-
ríkjanna númer eitt eftir þessa
rimmu?
„Nei, öðru nær. Við funduðum
með sendiherra Bandaríkjanna sem
var hinn elskulegasti enda hafði ég
á tilfinningunni að hann skildi okk-
ar málflutning fyllilega og teldi þetta
mjög eðlileg viðbrögð. Kostulegasta
uppákoman fólst hins vegar í því að
mér var boðið í einkahádegisverð
með sovéska sendiherranum sem
misskildi málið og lék við hvurn sinn
fingur. En það var hans misskilning-
ur.‘‘
Deilan um Kanasjónvarpið hélt
áfram. Sex hundruð háskólastúd-
entar skrifuðu undir stuðningsyfir-
lýsingu með sextíumenningunum.
Stofnað var Félag sjónvarpsáhuga-
manna sem barðist gegn takmörk-
un Kanasjónvarpsins og nokkur
hundruð manns skrifuðu undir slíka
áskorun. Meðal helstu málsvara
Kanasjónvarpsins voru þeir Ásgeir
Pétursson sýslumaður og Guðlaug-
ur Gíslason, þingmaður úr Vest-
mannaeyjum, enda stóðu Eyja-
menn með Kanasjónvarpinu sem
einn maður.
Í forsætisráðherratíð Geirs Hall-
grímssonar 1974–1978 hleypti
Hreggviður Jónsson af stað undir-
skriftasöfnun undir yfirskriftinni
Frjáls menning. Þar var farið fram á
að opna aftur fyrir Kanasjónvarpið
og opna fyrir litaútsendingar ríkis-
sjónvarpsins sem hafði verið í svart/
hvítu vegna þess að ekki var hægt að
endursenda litaútsendingar um allt
land. Á milli sautján og átján þús-
und manns skrifuðu undir áskor-
un Frjálsrar menningar. Það varð til
þess að litasjónvarp sá dagsins ljós
nokkrum árum síðar. En Kanasjón-
varpið kom ekki aftur. Það hafði ver-
ið kveðið niður í eitt skipti fyrir öll –
eins og skottur og mórar fyrri tíma.
Ættfræði DV
Kjartan Gunnar Kjartansson rekur ættir
þjóðþekktra Íslendinga sem hafa verið
í fréttum í vikunni, rifjar upp frétt-
næma viðburði liðinna ára og minnist
horfinna merkra Íslendinga. Lesendur
geta sent inn tilkynningar um
stórafmæli á netfangið kgk�dv.is.
föstudaGur 14. september 200740
Íþróttafréttir í Kanasjónvarpinu frá myndveri fyrstu sjónvarpsstöðvarinnar hér á landi. auðvitað voru það furðulegar aðstæður að eina sjónvarpið á Íslandi væri bandarískt
herstöðvarsjónvarp. en Kanasjónvarpið ýtti líklega íslensku sjónvarpi úr vör og kenndi þúsundum Íslendinga ensku.
Frelsisbarátta eða frelsis-
skerðing? Á örfáum árum
urðu nokkrar loftnets-
hríslur á stangli að loft-
netafrumskógi á húsþök-
um borgarinnar. Það voru
jafnvel komin loftnet á
braggana. Á meðan fitn-
uðu sjónvarpskaupmenn
glottandi á fjósbitanum.
Ed Sullivan ein skærasta sjónvarps-
stjarna bandaríkjanna á tímum
Kanasjónvarpsins.
Sigurður Líndal er einn löglærðasti og sögufróðasti maður hér á landi auk þess sem
tómas sæmundsson fjölnismaður var langalangafi hans. sigurður og félagar skáru
upp herör gegn áhrifum eds sullivan og bonanza hér á landi á árunum 1964–1967 –
og höfðu betur.