Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2007, Page 46
föstudagur 14. september 200746 Helgarblað DV
Rabarbara-
og engifersulta
Hráefni:
1 kg rabarbari, skorinn í bita.
1 kg sykur
safi úr 2 sítrónum
25 g engiferrót, skorin í bita
100 g sykraður engifer, smátt skorinn
Aðferð: setjið rabarbara og sykur
lagskipt í stóra skál og dreypið
sítrónusafa yfir hvert lag. setjið
plastfilmu yfir og
geymið yfir nótt svo
sykurinn dragi safann
úr rabarbaranum.
setjið rabarbara- og
sykurblönduna í pott,
bindið engiferinn inn í klút og setjið út í.
Látið suðuna koma upp og veiðið
froðuna ofan af og látið því næst sjóða
vel í 15 mínútur. fjarlægið engiferinn og
bætið sykruðu engiferrótinni út í og
sjóðið í fimm mínútur til viðbótar. Hellið
í sótthreinsaðar krukkur og lokið.
U m s j ó n : Þ ó r u n n S t e f á n s d ó t t i r . N e t f a n g t h o r u n n @ d v . i s
&Matur vín Heitt chilli-súkkulaðiÞetta er dásamlegur drykkur á haustkvöldum:1 lítri mjólk, tvö rauð chilli, 200 g dökkt súkkulaði og 200 ml rjómi.skerið chilliið í tvennt eftir endilöngu og takið fræin úr. setjið mjólk og chilli í pott og látið suðuna koma upp. slökkvið undir og látið standa í 10 mínútur. bætið súkkulaði og rjóma út í og hitið mjólkina aftur þar til súkkulaðið er bráðnað. fjarlægið chilliið áður en borið er fram.
Epla- og berjabaka
Hráefni:
fylling:
500 g ber að eigin vali
1 kg epli
4 msk. sykur
safi úr ½ sítrónu
Stráð ofan á:
100 g heilhveiti
150 g haframjöl
100 g smjör
75 g púðursykur
Aðferð: Hitið ofninn í 180°C. Þvoið
berin og afhýðið eplin, takið kjarnann úr
og skerið í bita. setjið
eplin í stórt, eldfast
form og hellið
sítrónusafa yfir. bakið
í 15–20 mínútur. Á
meðan eplin bakast
blandið hráefninu, sem fara á ofan á
berin og eplin, saman í skál. blandið
berjum og sykri varlega saman við
bökuð eplin. setjið heilhveiti- og
hafrablönduna yfir epla- og berjablönd-
una og bakið í 45 mínútur. berið fram
með sýrðum rjóma, þeyttum rjóma eða
ferskri jógúrt.
Quinoa kús-kús
Hráefni:
500 g quinoa (fæst í heilsubúðum)
1 þroskað papæja
handfylli af ferskum myntulaufum
2 rauð chilli
1 lime
4 msk. extra virgin ólívuolía
Aðferð: setjið quinoa-fræin í stóran pott
með 1 lítra af sjóðandi vatni og sjóðið í 10
mínútur. takið af hitanum og látið fræin
drekka í sig vatnið. Hrærið í með gaffli.
afhýðið papæja-ávöxtinn og takið fræin
út og skerið í 1 sm bita. saxið myntu og
takið fræin út chilliunum. blandið saman
við quinoa-fræin en geymið smá af
chilliinu til skrauts. blandið lime-safa og
ólívuolíu í litla skál og hellið yfir quinoa-
blönduna. skreytið með chilli og
myntulaufum og berið fram.
SkötuSelur og
SkötuSelSkinnAr með
vAtnASpínAti og SojAgreip-
SóSu
l 400 g skötuselur (án beins)
l 400 g skötuselskinnar
l 4 blöð af vorrúlludeigi
l 2 msk. flugfiskahrogn
l olía til djúpsteikingar
l salt og pipar
Aðferð: Snyrtið skötuselinn og
kinnarnar. Vefjið skötuselinn inn í
vorrúlludeigið og skerið í bita. Hitið
olíu í potti upp í 180°C. Djúpsteik-
ið fiskinn. Þerrið skötuselskinnarn-
ar. Steikið á pönnu. Veltið upp úr
hrognunum. Kryddið með salti og
pipar.
Sojagreipsósa:
l 2 stk rautt grape
l 2 msk sojasósa
l 50 g smjör
Aðferð: Skerið greipávöxtinn í
tvennt og kreystið safann úr honum.
Setjið í pott og sjóðið niður um helm-
ing. Bætið sojasósunni út í. Bræðið
smjörið í potti og bætið út í.
Á myndinni nota ég vatnaspínat
sem er steikt á pönnu, kaki-ávöxt og
íslenska steinselju sem meðlæti.
Njótið!
Hrefna Rósa Jóhannsdóttir Sætran lærði á veitingastaðn-
um Apótekinu en fór svo að starfa sem yfirkokkur á
Sjávarkjallaranum. Fyrir rúmri viku opnaði hún sinn eigin
veitingastað sem ber heitið Fiskimarkaðurinn þar sem hún
starfar einnig sem yfirkokkur. Að sögn Hrefnu hefur
staðurinn fengið gríðarlega góðar viðtökur en þar er boðið
upp á Robata japanskt grill og Raw bar. Á Fiskimarkaðn-
um er opið eldhús þar sem er borð sem gestir geta setið
og snætt við meðan þeir fylgjast með kokkunum elda.
Hrefna Rósa Jóhannsdóttir Sætran yfirmatreiðslumaður á Fiskimarkaðnum Meistarinn
GÓMSÆTUR skötuselur