Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2007, Page 47
DV Helgarblað föstudagur 14. september 2007 47
„Það finnst öllum Dajm-ístert-
an góð, líka dóttur minni sem borð-
ar ekki möndlur eða hnetur. Svo er
ég búin að þýða hana yfir á dönsku
og ensku,“ segir Emma Guðnadóttir,
matgæðingur vikunnar, sem býður
lesendum upp á tvo dýrindis eftir-
rétti. Aðspurð um þýðingarvinnuna,
hvort ístertuuppskriftin hafi hrein-
lega farið sigurför um heiminn,
svarar Emma af mikilli hógværð:
„Ég þýddi uppskriftina nú bara fyrir
danska vinkonu mína. Núna í sumar
þýddi ég hana svo á ensku og breytti
málum fyrir fjölskyldumeðlim sem
býr í Bandaríkjunum en talar ekki ís-
lensku.“ Sjálf fékk Emma uppskrift-
ina frá Maríönnu mágkonu sinni.
Jólaísinn, sem Emma ber líka á
borð fyrir landsmenn, á sína sögu
sömuleiðis. „Ég heyrði uppskriftina í
útvarpinu þegar ég var stödd í bíln-
um með manninum mínum. Mér
leist svo vel á hana af því að það er
Bailey‘s í henni. Ég hripaði hana
því niður á blaðsnifsi sem ég fann í
hanskahólfinu,“ útskýrir Emma en
segir enga hættu hafa verið á ferð
þrátt fyrir að vera stödd í bíl á fullri
ferð að skrifa því maðurinn hennar
hafi verið við stýrið. „Þetta var þeg-
ar ég var nýbyrjuð að búa, svona ´88
eða ´89. Ég hef gert ísinn um hver jól
síðan og stundum um páska. Ístertan
er hins vegar mjög mikið notuð þeg-
ar eitthvað stendur til – afmæli, grill-
veisla, matarboð – enda er hún fljót-
leg og hægt að gera nokkrum dögum
áður. Á sumrin ber ég oft ferska
ávexti með; jarðarber, bláber, ananas
eða það sem fæst í það og það skipt-
ið, þannig er eins og alltaf sé um nýj-
an og öðruvísi rétt að ræða.“
Bailey’s ís með Toblerone (Jólaísinn)
1 egg
5–6 eggjarauður
1 bolli ljós púðursykur
Þeytið þetta mjög vel saman í létta
og ljósa hræru.
½ dl bailey’s líkjör
½ l þeyttur rjómi
100 g toblerone, brytjað
Þessu er blandað rólega með sleif
út í eggjahræruna. Sett í form og fryst.
Dajm-ísterta (frá Maríönnu
mágkonu minni)
3 eggjahvítur
2 dl sykur
50 g möndlur (hakkaðar eða flögur)
Eggjahvítur þeyttar með 1 dl af
sykri. Þegar þær eru orðnar stífþeytt-
ar er afganginum af sykrinum og
möndlunum blandað varlega saman
við. Deiginu hellt í nokkuð stórt gler-
mót sem má fara í ofn og bakað við
130 °C í 1 til 1 ½ klukkustund.
2 dajm-súkkulaði brytjuð smátt
4 dl rjómi, stífþeyttur
3 eggjarauður og 1 dl sykur þeytt
vel saman.
Rjómanum blandað varlega sam-
an við eggjahræruna og súkkulaðinu
bætt smátt og smátt út í. Hrærunni
hellt yfir botninn og sett í frysti.
Muna að taka úr frysti ca. ½ klst.
áður en borið er á borð.
og örlagaríkur bíltúr
„Ég skora á vinnufélaga
minn hjá Prentmeti Suður-
lands, Steingerði Kötlu Harðar-
dóttur, að vera næsti matgæð-
ingur. Hún lumar á mörgum
góðum uppskriftum, meðal
annars mjög góðum „sauma-
klúbbsréttum“.“
Cabernet Sauvignon
frá Ástralíu
Víniðnaðurinn í Ástralíu er gríðarlega mikilvægur fyrir efnahag landsins. fjölmargir vinna við greinina, fram-leiðslan er mikil sem og
útflutningur og víntengd ferða-
mennska. Ástralía er fjórða mesta
vínútflutningsland veraldar.
Þjóðin flytur út fjórar millj-
ónir lítra af víni og heima-
neyslan er litlu meiri.
Vínviður var fyrst fluttur til Ástral-íu 1788 en það var James bus-by sem flutti
flestar þekktustu vínþrúg-
ur gamla heimsins til Ástral-
íu 1832. upphaflega gekk
vínbændum illa að yrkja jörð-
ina fyrir gæðavín vegna
óvenjulegra aðstæðna í Ástralíu.
Innflytjendastraumur hjálpaði
þó mikið og undir lok 19. aldar
unnu ástralskir víngerðarmenn
til fjölda verðlauna. sjúkdómar í
vínviðnum lögðu þann árangur
í rúst og fram á áttunda áratug
síðustu aldar voru fyrst og fremst fram-
leidd lítilfjörleg vín, yfirleitt sæt vín eða
styrkt. frá þeim tíma hefur orðið alger
sprenging í vínframleiðslu. Útflutn-
ingur til bandaríkjanna var til dæm-
is hálf milljón kassa árið 1990 en
nam 20 milljónum kassa árið 2004.
fjörutíuföldun á einum og
hálfum áratug! aldamótaár-
ið 2000 fluttu bretar í fyrsta
skipti meira inn af víni frá
Ástralíu en nágrönnum
sínum í frakklandi.
algengustu þrúgurnar í Ástralíu eru shiraz, Ca-bernet sau-
vignon, Chardonnay, sau-
vignon blanc, sémillon og
riesling. engar þrúgur eru
upprunnar í Ástralíu en samtals
eru 130 mismunandi þrúgur
ræktaðar í landinu. Á síðustu
árum hefur veruleg aukning
orðið í ræktun á þrúgum eins
og petit Verdot, pinot grigio,
sangiovese, tempranillo og
Viognier.
PálMi Jónasson
vínsérfræðingur DV
Wolf Blass Presidents Selection
Cabernet Sauvignon 2004
Wolf blass fæddist í austur-Þýskalandi 1934. Hann
vann við víngerð í evrópu í 13 ár, áður en hann flutti til
barossa í Ástralíu 1961 með 100 pund í vasanum. Hann
stofnaði sitt eigið fyrirtæki 1973 sem hefur rakað til sín
viðurkenningum. síðar rann fyrirtækið inn í mildara-
blass og síðar alþjóðlega vínrisann beringer blass. Wolf
blass er titlaður sendiherra víngerðar sinnar og sinnir
kynningarmálum um heim allan. presidents selection
er plómurautt með plómuangan, dökku súkkulaði,
pipar, mintu og sólberjasaft. sólber, súkkulaði, plómur
og kryddjurtir í munni. Kröftugt, lyktarmikið og
olíukennt vín sem ræður við flestan
mat. Klár 4 glös. 2.090 krónur.
Peter Lehmann Barossa 2003
peter Lehmann er einn þekktasti og virtasti
víngerðarmaður Ástralíu. Hann er af þýskum
ættum en hefur starfað í barossa dalnum í suður-
Ástralíu um langt skeið, stundum kallaður
baróninn frá barossa. Listamenn eru fengnir til að
skreyta flöskumiðann og hér er það michelle
Wheadon. frá 2003 hefur peter Lehmann Wines
verið hluti af Hess group, sem á einnig the Hess
Collection Winery í Napa-dalnum í Kaliforníu, glen
Carlou í suður-afríku og bodega Colomé í
argentínu. Þetta vín er látið liggja 12 mánuði í
eikartunnum. dökkt súkkulaði, sætar plómur, svört
ber og minta eru áberandi í nefi. súkkulaði, svört
ber og mikil eikarvanilla í eftir-
bragði. súkkulaðikaramella sem
krækir í fjórða glasið. 1.660 krónur.
Lindemans Reserve Limestone
Coast Cabernet Sauvignon 2004
breski læknirinn Henry Lindeman kynntist vínrækt í
læknisferðum sínum um evrópu á fjórða áratug 19.
aldar. Hann var heillaður af lækningamætti vínsins og
flutti til Ástralíu skömmu eftir að hann giftist elizu
bramhall 1840. Þar hóf hann vínrækt og var fyrirtækið
lengst af í eigu fjölskyldunnar en er nú hlutafélag.
Vínið er með skrúftappa. sultaðir ávextir, minta og
bifvélaverkstæði í nefi en sæt sólber, eikarvanilla,
lakkrís og mold og stamt tannín í
munni. tilþrifalítið í upphafi en opnaði
sig ágætlega. 1.530 krónur.
Fjöltyngiuppskrift
Emma Guðnadóttir Matgæðingurinn
Meistarinn
GÓMSÆTUR skötuselur