Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2007, Síða 48

Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2007, Síða 48
föstudagur 14. september 200748 Ferðir DV U m s j ó n : B a l d u r G u ð m u n d s s o n . N e t f a n g : b a l d u r @ d v . i s á ferðinni Af hverju leg-steinn? Orðið leg hefur fleiri en eina merkingu en ein þeirra er: staður sem eitthvað liggur á eða í. talað er um að menn fái leg í kirkjugarði þegar þeir eru grafnir, það er stað þar sem þeir eru lagðir til hvílu. Við þann stað er oft legsteinn, minningarsteinn þar sem á er grafið nafn, fæðingardagur og ár, dánardagur og ár og stundum eitthvað fleira. tekið af Vísindavefnum. Útvarpsmaðurinn Sigurður G. Tómasson hefur ferðast víða um land. Fyrir rúmum ellefu árum fór hann ásamt tveimur góðum vinum sínum í einstaka göngu um hrikalegt fjalllendi Tröllaskaga. Hér segir hann frá þeirri ferð: Snemma sumars árið 1996 keyrði Sigurður ásamt meinafræðingunum Valgarði Egilssyni og Sverri Harð- arsyni norður í land til Ólafsfjarðar. Þaðan gengu þeir upp á Hvanndala- bjargkvist og síðan yfir í Hvanndali. Sigurður segir gönguleiðina ákaf- lega erfiða. „Þetta er mikið príl og alveg hrikalegur vegur að fara, enda er Hvanndalabjarg líklega eitt hæsta sjávarbjarg á landinu. Gatan liggur á litlum skriðufláa ofan við bjargbrún- ina og svo niður þröng skörð yfir í Hvanndali, sem eru eyðibyggð við utanverðan Eyjafjörð.“ Byggðin fór í eyði rétt fyrir aldamótin 1900. „Séra Bjarni Þorsteinsson á Siglufirði seldi jörðina undan prestsetrinu á Siglufirði með því skilyrði að þar yrði ekki hafinn búskapur að nýju. Svo afskekkt var sveitin að erfitt var að þjónusta fólkið sem þarna bjó. Hvanndalir eru nefnilega þannig í sveit settir að þar er einungis fært örfáa daga á ári. Gömul saga seg- ir að eitt sinn hafi kýr verið leidd til þarfanauts, þá leið sem við fórum, en við áttum bágt með að trúa því. Það er óhugsandi því þetta land er það hrikalegasta fjalllendi sem ég hef farið um.“ Ódáinsakur heimsóttur „Á göngunni áðum við í Hvann- dölum þar sem við fórum meðal annars á Ódáinsakur, þar sem menn geta ekki dáið. Að svo búnu fórum við yfir Víkurbyrðu til Héðinsfjarð- ar og gengum þaðan um Rauð- skörð til Ólafsfjarðar aftur. Þetta var sömu helgi og Ólafur Ragnar Gríms- son var kosinn forseti. Við náðum því ekki að kjósa en ég held að það hafi ekki skipt máli. Á leiðinni upp í Rauðskörð urðum við að spora upp langa og harða fönn. Þetta var erf- iðasti hjalli leiðarinnar því þarna hafði enginn farið um vorið,“ segir Sigurður sem viðurkennir að leiðin hafi ekki verið hættulaus. „Við félag- arnir töldum kjark hver í annan og þeir sögðu mig heppinn að hafa tvo lækna með í för, ef illa færi. Ég gaf lít- ið fyrir þau huggunarorð því þeir eru báðir meinafræðingar og fást því allajafna við látna menn,“ segir Sig- urður og hlær. Hrikalegur svefnstaður Hann viðurkennir að þeir hafi verið orðnir ansi þreyttir þegar þeir komu upp á eggina, efst í Rauð- skörðum. „Þegar þangað var komið höfðum við gengið í yfir 20 klukku- tíma. Við vorum þreyttir en mátt- um ekki við því að leggja okkur því þá hefðu björgunarsveitirnar ef- laust verið ræstar út til leitar,“ seg- ir Sigurður en upphaflega var áætl- að að ferðin tæki um 15 tíma. „Það reyndist vanmat, því ferðin tók mun lengri tiíma. Þegar toppnum var náð ákváðum við að leggja okkur uppi á tveggja til þriggja metra breiðri sillu, þar sem þverhnípi var niður í báð- ar áttir. Þar dottuðum við í korter áður en við héldum áfram. Þetta er líklega hrikalegasti svefnstaður sem ég hef sofið á.“ Eftir blundinn héldu þeir áfram í átt til Ólafsfjarðar þar sem þeir mættu fólki sem var farið að svipast um eftir þremenningun- um, enda höfðu þeir verið 27 tíma á gangi. „Móttökurnar sem við fengum í Ólafsfirði voru frábærar. Ólafsfirð- ingar eru afbragðs fólk og við skellt- um okkur í gufubað þegar til byggða var komið. Langþráð gufubað.“ Ógleymanleg sýn Þremenningarnir gengu sam- tals upp 2.300 metra. Loftlínan var þó ekki nema 17 eða 18 kílómetrar að sögn Sigurðar. Hann segir þessa ferð ógleymanlega. „Þegar við vor- um uppi á Víkurbyrðu á leiðinni yfir í Héðinsfjörð frá Hvanndölum blasti við okkur ótrúleg sýn. Í norðri var miðnætursólin í allri sinni dýrð, enda sá tími ársins sem sólin skín allan sólarhringinn. Í vestri blasti við okkur fullt tungl. Þetta er sjón sem líður mér aldrei úr minni. Þetta er algjörlega ólýsanlegt og ég mun ekki gleyma þessari ferð á meðan ég lifi.“ Förum í berjamó berjaspretta hefur verið með besta móti í ár. mönnum ber saman um að sjaldan hafi verið jafnmikið af berjum á landinu. fréttir bárust af því snemma í júlí að fyrstu berin væru orðin fullþroskuð, sem er töluvert fyrr en í meðalári. Nú er september hálfnaður og því ekki seinna vænna en að skella sér í berjamó. Veðrið á haustin er óútreiknanlegt og eftir því sem dagarnir líða eykst hættan á næturfrosti, en mikið frost eyðileggur berin. bíðum ekki eftir frostinu og förum í berjamó. Hjólað frá Laugarvatni ferðafélagið Útivist stendur fyrir spennandi ferð fyrir hjólreiðamenn um helgina. ekið verður að Laugarvatni þaðan sem hjólað verður meðfram apavatni, svínavatni og Álftavatni. ferðin endar svo í grímsnesinu þar sem verður grillað og hægt að komast í heitan pott. Áætluð lengd ferðarinnar er 30 til 35 kílómetrar en nauðsynlegt er að skrá sig hjá Útivist. Nánari upplýsingar um ferðina má finna á utivist.is en lagt verður af stað á laugardagsmorgun klukkan 10. enginn alvöru hjólreiðamaður ætti að láta þetta fram hjá sér fara. Sjón Sem líður mér aldrei úr minni Sigurður G. Tómasson mun aldrei gleyma þeirri sýn sem við honum blasti á Víkurbyrðu. Erum í Dugguvogi 2 s: 557-9510 Nú er stórkostlegt tækifæri til að gera góð kaup á húsgögnum til heimilisins. Daglega nýjar vörur. Horft yfir hrikalegt landslag Töllaskaga Leiðin var afar erfið yfirfarar. Þrjátíu ára afmæli Íslenska alpaklúbbsins er í ár: Regnhlífasamtök fyrir fjallamenn Á miðvikudaginn opnar Íslenski alpaklúbburinn dyrnar fyrir nýjum og gömlum félögum, en klúbburinn fagnar 30 ára afmæli sínu í ár. Freyr Ingi Björnsson, formaður Íslenska alpaklúbbsins, segir kúbbinn eins konar regnhlífarsamtök fyrir fjallamenn. „Klúbburinn er vettvangur fyrir áhugamenn um fjallamennsku til að hittast og bera saman bækur sínar, segja sögur og skipuleggja ferðir.“ Á fundinum á miðvikudaginn verður starfsemin kynnt og útskýrt fyrir hvað ísklifur, fjallamennska og klettaklifur stendur. Fjallaskíðamennsku verða einnig gerð skil á fundinum en á honum verða haldnar fjórar myndasýningar sem leiða nýliða og lengra komna í allan sannleikann fjallamennsku. „Við munum einnig gefa út ársrit klúbbsins sem verður með glæsilegasta móti á afmælisárinu. Fundurinn verður haldinn í aðstöðu klúbbsins, á efri hæð Klifurhússins, Skútuvogi 1G og hefst hann klukkan 20. Óhætt er að hvetja fjallaáhugamenn til að mæta og kynna sér starfsemi alpaklúbbsins. Ísklifur í Glymsgili Haldnar verða fjórar myndasýningar á fundinum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.