Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2007, Síða 50
föstudagur 14. september 200750 Helgarblað DV
Sakamál
Cecilia Perry í Maryland í Bandaríkjun-
um var ekki ánægð með frammistöðu slökkvi-
liðsmanna sem komu heim til hennar vegna
eldsvoða. „Stjórn slökkviliðsins hefur beðist
afsökunar, og með réttu! Tjón af völdum eldsins
er nánast ekkert, en heimili mitt er í rúst eftir
slagsmál slökkviliðsmannanna,“ sagði Cecil-
ia. Atvikið átti sér stað eftir að smáeldur hafði
kviknað í gólfteppi á efri hæð hússins. Cecilia
hringdi strax í slökkvilið, en áður en það kom
á staðinn tókst henni með aðstoð nágranna
að slökkva eldinn með vatni. „Tuttugu mín-
útum síðar komu tveir slökkvibílar á staðinn
frá tveimur aðskildum slökkvistöðvum. Og þó
ég segði þeim að búið væri að slökkva eldinn,
kröfðust þeir þess að koma inn í húsið og byrj-
uðu að rífast um hverjum eldsvoðinn tilheyrði,“
sagði frú Perry.
Heimilið rústað
Slökkviliðsmennirnir voru sjálfboðaliðar og
svarnir keppinautar. Áður en Cecilia gat aðhafst
nokkuð upphófust allsherjarslagsmál á heim-
ilinu. Hnefar voru krepptir og allt lamið sem
fyrir var og menn flugust á um öll gólf. Barið var
í gegnum veggi, stólar brotnir, gluggatjöld rifin
niður, hurðir rifnar af hjörum sínum og fugla-
búri Ceciliu, með páfagauknum í, var hent út
um glugga. „Það var blóð úti um allt þegar þeir
yfirgáfu heimilið og nokkrir þeirra þurftu að
fara á sjúkrahús svo gert yrði að sárum þeirra.“
Talsmaður slökkviliðs sýslunnar, Chauncey
Bowers kapteinn, hafði þetta um málið að
segja: „Við höfum átt betri dag.“
Það sannaðist í Maryland að af litlum neista verður oft mikið bál:
Bálillir slökkviliðsmenn
H.H. Holmes hét réttu nafni
Herman Webster Mudgett. Hann
fæddist í Gilmantown í New
Hampshire í Bandaríkjunum árið
1860. En hann var, þrátt fyrir að
vera eitt best gefna barnið í bæn-
um, álitinn kynlegur kvistur. Og
kannski ekki furða því sú ástúð
sem faðir hans sýndi honum var
í formi reglulegra barsmíða. Her-
man var einrænn í barnæsku og
eini vinur hans var Tom, en hann
lést er hann féll niður af stigapalli
í gömlu húsi sem þeir félagar voru
að hnýsast í. Herman varð vitni að
óhappinu.
Áhugi Hermans á uppskurði
kom mjög snemma í ljós og ellefu
ára að aldri var hann byrjaður að
gera tilraunir á dýrum. Átján ára
kvæntist hann Clöru Loveringat
og útskrifaðist frá háskólanum í
Michigan tuttugu og fjögurra ára
að aldri með læknisgráðu. Það var
einmitt í háskólanum sem ferill
H.H. Holmes hófst, en meðfram
náminu stundaði hann að kaupa
tryggingar undir fölskum nöfnum,
stela líkum af rannsóknarstofu
skólans og krefjast tryggingarfjár-
ins.
Árið 1886 sendi Holmes konu
sína til New Hampshire, en tilvilj-
un hagaði því þannig að hann tók
við rekstri Lyfjaverslunar Holtons
í Englewood í Illinois. E.S. Holton
læknir var fársjúkur vegna krabba-
meins og kona hans þurfti að-
stoð. Holton lést skömmu síðar og
Holmes og frú Holton komust að
samkomulagi um að hann keypti
verslunina. Þegar ekkert bólaði á
greiðslu af hálfu Holmes hótaði
frú Holton lögsókn. Og hvarf.
Kastalinn
Skömmu síðar lét Holmes
byggja hús gegnt lyfjaversluninni
og varð það heimili hans. Hús er
reyndar ekki réttnefni, það var
þrjár hæðir og kjallari og fékk
það heitið Kastalinn. Á jarðhæð-
inni rak Holmes verslanir en hin-
ar hæðirnar og kjallarinn geymdu
hryllileg leyndarmál. Í húsinu voru
hundrað herbergi, sum tengd með
leynigöngum, leyndum þiljum og
voru sum þeirra hljóðeinangruð
og með gægjugötum. Í sum her-
bergjanna lágu gasleiðslur sem
gerðu Holmes mögulegt að fylla
þau með eiturgasi ef svo bar undir.
Í kjallara hússins geymdi Holmes
skurðáhöld sín og þar var meira
að segja ofn nógu stór til að rúma
manneskju.
Beinagrindur til sölu
Holmes réð Ned Conner sem
framkvæmdastjóra skartgripa-
verslunar á jarðhæð Kastalans.
Fyrr en varði upphófst ástarsam-
band milli Holmes og Júlíu, eig-
inkonu Neds, og Ned sagði starfi
sínu lausu. Júlía varð barnshaf-
andi og Holmes leist ekki á blik-
una. Hann bauðst til að fram-
kvæma fóstureyðinguna sjálfur.
Skömmu síðar fékk hann greidda
tvö hundruð dali fyrir fyrsta flokks
beinagrind af konu. Svo kynnt-
ist Holmes Emmaline Cigrand,
ungri og áhrifagjarnri konu í gift-
ingarhugleiðingum. Afdrif hennar
urðu önnur og Holmes seldi aðra
beinagrind.
Heimssýningin í Chicago
Árið 1893 var heimssýningin
haldin í Chicago og dró að mik-
inn fjölda gesta. Mikill skortur var
á leiguhúsnæði og Holmes notaði
tækifærið og leigði út um sjötíu
herbergi í Kastalanum. Þetta gat
ekki verið einfaldara fyrir Holmes,
hann leiddi gas inn í herbergin á
meðan fólkið svaf, rennur úr her-
bergjunum voru notaðar til að
koma líkunum niður í kjallara. Þar
var þeim eytt í eldi eða sýru. Ekki er
á hreinu hve mörgum Holmes fyr-
irkom meðan á sýningunni stóð, en
líklega er um tugi að ræða og sag-
an segir að í kjölfar heimssýning-
arinnar hafi læknaskóla í grennd-
inni reglulega boðist beinagrindur
til kaups.
Upp komast svik um síðir
Holmes fékk einn starfsmanna
sinna til að líftryggja sig, þeir
myndu síðan setja dauða hans á
svið og innheimta tryggingarféð.
Starfsmaðurinn, Benjamin Pitez-
el, var kvæntur og átti fimm börn
og veitti ekki af reiðufé. En í stað
sviðsetningar myrti Holmes Pitez-
el og síðar þrjú barna hans til að
fela glæpinn. En tryggingarfélag-
ið fékk vísbendingu um svikin og
fékk einkaspæjara Pinkertons til að
rannsaka málið. Holmes sá að ekki
þýddi að þræta og viðurkenndi svik-
in. En ósvarað var spurningum um
Pitezel og börnin og lögreglan bretti
upp ermarnar.
Langur listi horfinna
Við rannsóknina fundust lík graf-
in hér og þar og langur listi horfins
fólks sem hafði á einum eða öðrum
tíma verið í sambandi við Holmes.
Fólk sem unnið hafði á jarðhæð
kastalans, fyrrverandi starfsfólk
hafði horfið af yfirborði jarðar og
leyndardómar Kastalans komu
smátt og smátt í ljós.
H.H. Holmes játaði á sig tut-
tugu og sjö morð á körlum, konum
og börnum, en talið er að fjöldinn
hafi verið nær hundrað. Hann var
hengdur að morgni 7. maí árið 1896
og lagður í kistu sem fyllt var með
steypu og gröfin var tíu feta djúp í
stað sex feta eins og tíðkast.
Horft í
ranga átt
Smá róstur urðu í Teheran í
Íran fyrir nokkrum árum. Fólk
velti bifreiðum og viðhafði
dólgslæti. Ástæðan var sú að
dómari í borginni var ósáttur
við hvernig götusali horfði á eig-
inkonu hans og án frekari um-
hugsunar lét dómarinn varpa
honum í svartholið, það skyldi
kenna manngreyinu að haga sér
skikkanlega. Það sem fólkið var
ósátt við var að ekkert tillit var
tekið til þess að maðurinn var
rangeygur. Chauncey Bowers kapteinn „Við höfum átt betri
dag,“ sagði bowers.
Eingöngu viðskipti
Hinn þrjátíu og sex ára gamli Tomano Suma vissi ekki hvaðan á
sig stóð veðrið þegar hann heimsótti dílerinn sinn til að kaupa
dóp. Hann lenti í miðri lögregluaðgerð. Suma var ekki á því að
gefast upp og gerði heiðarlega tilraun til að fá lögregluna til að
selja sér. Viðskipti eru jú viðskipti. Honum varð ekki að ósk sinni.
Bjarnar-
greiði
Mary Lowry í Massachusetts
í Bandaríkjunum hringdi kvöld
eitt skelfingu lostin í lögregl-
una því heljarstórt bjarndýr
var sofandi í garðinum hennar.
Lögreglan mætti á svæðið með
blikkandi ljós og vælandi sír-
enur og hugðist með því hrekja
bjarndýrið á brott. En þrátt fyrir
góða viðleitni bærði skepnan
ekki á sér. Lögreglunni hugn-
aðist ekki að nálgast skepnuna
og í eina klukkustund fylgdist
hún með bangsa úr fjarlægð.
Loks tókst þeim að safna kjarki
og laumuðust nær. Frekar urðu
þeir kindarlegir þegar þeir kom-
ust að því að um var að ræða
stóran leikfangabangsa.
Misheppn-
aður flótti
Lögreglan í Manchester í
Connecticut-fylki í Bandaríkj-
unum var ekki í vandræðum
með að hafa hendur í hári bíl-
þjófsins Calvins Bond. Eftir að
hafa stolið Ford-bifreið var as-
inn svo mikill á honum að hann
keyrði á jeppabifreið með þeim
afleiðingum að Fordinn varð
ónothæfur. Í örvæntingarfullri
tilraun til að komast undan tók
hann traustataki bleikt og hvítt
stúlknareiðhjól. Þegar lögregl-
an náði honum staðhæfði hann
fullum fetum að hann ætti hjól-
ið og væri á leiðinni heim.
Á sama tíma og Jack the Ripper fyllti götur Lundúnaborgar ógn og skelfinu, lék H.H.
Holmes lausum hala, hinum megin Atlantsála. Hann var einn fyrsti raðmorðingi
Bandaríkjanna.
Hryllingskastalinn
Völundarhús Leyniherbergi og
-gangar.
Hryllingskastalinn Kjallari hússins geymdi mörg leyndarmál. H.H. Holmes engan grunaði hvað
hann aðhafðist í kastala sínum.
Myrðir son Pitezels fórnarlömbin voru á öllum aldri og af
báðum kynjum.