Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2007, Page 52
Resident Evil 4 á Wii er endurgerð af
samnefndum leik á Game Cube, PC
og PS2. Ég hef ekki spilað þá leiki og
dæmi hann því ekki út frá því en þeir
fengu engu að síður frábæra dóma.
Reyndar fékk PC-útgáfan slaka dóma
þannig að þið skuluð forðast hann.
Í leiknum bregður maður sér aft-
ur í hlutverk hins eitilharða Leons
S. Kennedy sem brá fyrst fyrir sem
óreyndri löggu í Resident Evil 2.
Leon er mættur í lítið smáþorp í af-
dalarassgati þangað sem hann hefur
verið sendur til að bjarga dóttur for-
setans. Hún er í haldi einhvers sér-
trúarsafnaðar sem er illa sýktur af
einhverjum helvítis viðbjóði. Eins og
trúarsöfnuðurinn Krossinn þar sem
allir meðlimir væru með banvænt
snýkjudýr inni í sér og þráðu heims-
yfirráð.
Í fyrstu fannst mér Wii-stjórntækin
ekki nægilega góð og ég lét þau fara
í taugarnar á mér. Einnig fannst mér
uppvakningarnir, eða hinir sýktu
íbúar þorpsins, ekki nógu sannfær-
andi. En eftir því sem leið á leikinn
breyttist þetta allt. Stjórntækin venj-
ast og verða mjög góð og íbúarnir
verða ógeðslegri og ógeðslegri.
Endingin í leiknum er frábær og sag-
an er góð. Þetta er mjög stór leikur
og býður upp á mjög fjölbreytt um-
hverfi og nýja og klikkaðri óvini.
Leiknum tekst að skapa skemmti-
lega ógeðfellt andrúmsloft á köflum
og fjölbreytt vopnaúrval gerir hann
einnig mjög skemmtilegan.
Ef þú ert að leita að skotleik á Wii
með frábærri grafík, góðu sándi,
góðri sögu og nóg af vondum köllum
til að sprengja hausinn á er Resident
Evil 4 algjörlega málið.
Ásgeir Jónsson
dóri dna segir:
&
U m s j ó n : D ó r i D N A N e t f a n g : d o r i @ d v . i s
föstudagur 14. september 200752 Helgarblað DV
leikirtölvu
rogue galaxy - ps2
alien syndrome - psp/Wii
medal of Honor airborne -
pC/ps2/Xbox360
sonic rush adventure - Nds
bs scarface - pC
Kíktu á þessa
leiKjatölvur
Bardaga- og ævintýraleikurinn Conan kemur út í október. Leikurinn er byggður á ævintýra-
sögum Roberts E. Howard og á meira skylt við þær en kvikmyndir Arnalds Svartnaggs. Conan er
sagður munu verða stútfullur af hrottalegu ofbeldi og skemmtilegum ævintýrum.
The Club kem-
ur í febrúar
Leikurinn The Club er væntanlegur í
febrúar, en upphaflega átti hann að
koma út í október. Leikurinn sem er
frá Sega fjallar um skylmingaþræla
nútímans og geta leikmenn valið úr
átta persónum til þess að leika. Svo
ferðast menn um heiminn og taka
þátt í blóðugum bardögum á
vígvöllum stórborga. Hægt verður að
spila leikinn á netinu og verður hann
fáanlegur fyrir PlayStation 3,
Xbox360 og PC.
NæsTi Gow
í mars
Leikurinn god of War: Chains of
Olympus mun koma út þann 4. mars
2008, en framleiðandi leiksins gaf
nýlega frá sér þá yfirlýsingu. Leikmenn
munu stjórna Kratos, eins og svo oft
áður, en leikurinn gerist áður en fyrsti
leikurinn byrjar, eða áður en Kratos
leggst í herferð sína gegn guðunum.
Þeir sem geta ekki beðið þar til í mars
geta skráð sig á netsíðu leiksins, en þeir
sem gera það fá sent stutt prufueintak
af leiknum, sem ætti að geta svalað
helsta þorstanum.
wii byssaN á
leiðiNNi
Eins og þekkt er hefur Nintendo Wii
selst í bílförmum frá því að hún kom
út í nóvember í fyrra. Nú fyrir jól er
væntanleg Wii-
byssan sem gerir
leikmönnum
kleift að spila
skotleiki og
annað slíkt, á
annan og
skemmtilegri hátt
en áður hefur þekkst. Byssan kemur
út þann 19. nóvember og fylgir með
henni leikurinn Links Crossbow
Training þar sem leikmenn bregða sér
í líki Links úr Zelda til þess að æfa sig
með byssuna. Þá hefur Nintendo látið
það flakka að leikirnir Medal of Honor
Heroes 2, Resident Evil og Ghost
Squad verða allir gefnir út á Wii,
sérsniðnir fyrir byssuna.
Villimaðurinn og stríðsmaðurinn
Conan er hugarsmíð höfundarins
Roberts E. Howard og hefur verið til
í óratíma. Líklega munu flestir alltaf
tengja Conan við ríkisstjórann Arn-
old Scwharzenegger og kvikmynd-
irnar tvær. Nú er í vændum tölvuleik-
ur, sem byggir að mestu leyti á sögum
Howards um Conan. Leikurinn er
væntanlegur í október á bæði PS3 og
Xbox360. Leikurinn byggir ekki á ein-
hverri einni sögu um Conan, heldur
er þeim öllum blandað saman í stór-
um ævintýraheimi. Leikurinn hefst á
því að Conan þarf að sækja fjóra hluta
af brynju sinni á hvern á sínum staðn-
um. Heldur hann því í mikla ævintýra-
ferð þar sem hann kynnist fjölda fólks
og lærir ný brögð með sverði sínu og
fleira í þeim dúr. Þeir sem hafa spilað
leiki á borð við God of War eða Ninja
Gaiden munu ekki eiga í vandræð-
um með að læra á Conan, en spil-
un leiksins er með svipuðum hætti
og leikmenn hafa kynnst í fyrrnefnd-
um leikjum. Þá er bardagakerfi leiks-
ins afar fullkomið. En leikmenn geta
valdið ótalmörgum vopnum, kastað
þeim í andstæðinginn, kýlt þá af al-
efli, fleygt þeim til og frá, ásamt flókn-
ari brögðum sem gera mönnum kleift
að gera út af við fjölda andstæðinga í
einu. Lík andstæðinganna hverfa svo
ekki í leiknum eins og í flestum öðr-
um. Þannig geta leikmenn átt von á
því að standa í fjalli af líkum eftir góð-
an bardaga. Í gegnum leikinn bætir
Conan sig svo stöðugt í hinum ýmsu
listum, sem gera honum kleift að gera
flóknari og öflugri árásir. Þá hafa þeir
sem prófað hafa leikinn lýst því yfir að
hann sé svo ofbeldisfullur og blóðug-
ur að aðrir leikir blikna í samanburði.
Það er Nihilistic sem framleiðir Con-
an og hafa þeir hlotið mikið lof fyrir
einstaka grafíkina í leiknum. Síðast en
ekki síst ber að nefna að leikarinn og
Íslandsvinurinn Ron Pearlman ljær
Conan ógnvekjandi rödd sína. Bíðið
spennt eftir Conan, sem lendir með
látum í byrjun október.
berserkuriNN
CoNaN í besTu Gæðum
Conan Ævintýra- og
bardagaleikur sem er sagður
munu vekja mikla athygli.
Arnaldur Svartnaggs
gerði Conan frægan á
sínum tíma.
Stæðilegir óvinir
Conan þarf að berjast
gegn stórhættulegum
vættum.
Resident Evil 4
Hrollvekju- og
ævintýraleikur
Nintendo Wii
tölvuleiKur
H H H H H
Krossinn með slæma flensu Resident Evil 4 frábær leikur og þess virði að spila jafnvel þótt þú hafir spilað fyrri útgáfuna.