Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2007, Blaðsíða 62

Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2007, Blaðsíða 62
föstudagur 14. september 200762 Síðast en ekki síst DV Sandkorn n Kaup íslenskra athafna- manna á hótelum í Kaup- mannahöfn í vikunni hafa vak- ið mikla athygli, en Íslendingar eru þó ekki aðeins að gera sig gildandi í hótelrekstri í Danmörku. Að minnsta kosti þrjú stór hótel í Prag, höfuð- borg Tékk- lands, eru að stórum hluta í eigu og undir stjórn Ís- lendinga. Valdimar Jónsson, (Ragnarssonar á hótel Valhöl og Örkinni) er stjórnarformað- ur Key Hotel Group sem rekur hótelin Holiday Inn Express og Crowne Plaza og á glæsi- legu hóteli í Gyðingahverfinu, Hotel Bellagio, er Guðmundur Franklín Jónsson, fyrrverandi verðbréfaspekúlant á Manhatt- an við stjórnvölinn. n Nýr skemmtistaður sem ber heitið Lido mun opna á laug- ardagskvöldið með pompi og prakt en það er Magga eigandi skemmtistaðarins Barsins sem er nú að færa út kvíarnar og mun hún sjá um rekstur staðar- ins. Lido er í Ingólfsstræt- inu þar sem áður var veislusalur- inn Versalir og rúmar Lido um sjö hundr- uð manns. Lido mun vera nýjasta viðbótin við þá staði sem hýsa tónleika Airwaves-hátíðarinnar enda segja þeir sem þekkja til að hér sé um að ræða gríðarlega flott- an tónleikastað. Hljómsveit- irnar Sometime, Bloodgroup, Johny� Se�ual og DJ Egner munu halda uppi stuðinu í opnunarpartíinu á morgun. n Sigríður Pétursdóttir kvik- myndafræðingur verður með nýjan útvarpsþátt á Rás 1 í vet- ur. Um er að ræða kvikmynda- þáttinn Kvika sem verður á dagskrá laugardagsmorgna klukkan 10.15. Sigríð- ur ætlar að fjalla um kvik- mynd- ir frá öllum heimshornum, frá mismunandi tímabilum og af mismunandi gerðum. Sigríður fær til sín ýmsa gesti og ræðir allt milli himins og jarðar sem tengist bransanum. Hver er konan? „Verkfræðingur með doktorspróf frá Tækniháskólanum í Danmörku (DTU) og MBA frá Háskóla Íslands. Fjögurra barna móðir, allt með sama manninum, dr. Ólafi Pétri Pálssyni, prófessor við verkfræðideild Háskóla Íslands.“ Hvað drífur þig áfram? „Að hafa gaman af hlutunum og sjá árangurinn af erfiðinu. Er í vogarmerk- inu og því umhugað um að jafnræðis og réttlætis sé gætt í öllum málum.“ Hvað gerir þú í frístundum? „Styð við börnin í þeirra tóm- stundum, meðal annars sem formað- ur handknattleiksdeildar Fjölnis og dómari á sundmótum. Þá er fjölskyld- an í fyrirrúmi og mikið um ferðalög, ekki síst innanlands. Þá hefur áhug- inn á hestum farið vaxandi, enda allir aðrir fjölskyldumeðlimir áhugasamir um það og ávallt nokkrir hestar teknir í hús á veturna. Þá er briddsklúbburinn í uppáhaldi, svo og þrír saumaklúbbar úr menntaskólanum, frá Danmerkur- árunum og MBA-náminu.“ Hefur þú búið erlendis? „Bjó í Danmörku á árunum 1971– 1977 sem barn meðan pabbi stund- aði sérfræðinám í krabbameinslækn- ingum og aftur 1988–1993 þegar ég stundaði nám í verkfræði. Var þar svo með annan fótinn 1997–2000 í dokt- orsnámi.“ Eftirminnilegasta bókin? „Hjartað býr enn í helli sínum eftir Guðberg Bergsson.“ Hvernig lýst þér á nýja starfið? „Vel.“ Hefur það verið draumur hjá þér að verða orkumálastjóri? „Ég veit það ekki, ég man yfirleitt ekki drauma mína.“ Er orkugeirinn ekki óskaplegur karlaheimur? „Jú, það má ef til vill segja að hann hafi verið það. Það vakti til dæmis at- hygli á fundi í síðustu viku, sem ég var á í Helsinki hjá Norrænum orkurann- sóknum, að á honum voru fimm kon- ur og tveir karlar.“ Fylgja nýjum konum nýjar áherslur? „Annað væri óeðlilegt.“ Hvert er brýnasta verkefnið í orkumálum á Íslandi í dag? „Ljúka vinnu við rammaáætlun og ná sátt um nýtingu orkuauðlinda landsins.“ Í DAG Á MORGUN HINN DAGINN Veðrið +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx xxxx +6 4 xx xx xx +7 7 xxxx xx xx xx xx xx xx +4 6 xx +4 1 +5 7 xx xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx xxxx xx +34 xx +6 7 xx +4 4 +3 12 xxxx +3 1 +7 12 xx +7 7 +6 7 xx xx xx xx xx +5 4 +6 7 xx xx xx -xx -xx MAÐUR DAGSINS Sunddómari í karlaheimi Ragnheiður Inga Þórarinsdóttir tekur við starfi orkumálastjóra um næstu mánaðamót. Þetta var tilkynnt í vikunni um leið og greint var frá því að Þorkell Helgason, sem gegnt hefur starfi orkumálastjóra síðastliðin ellefu ár, hefði óskað eftir að láta af störfum. SNJÓKOMA FYRIR NORÐAN Á SUNNUDAG mörgum þykir víst nóg um atganginn í veðrinu þessa dagana, en nokkuð víst er að lítið lát er á inná- og útafskiptingum veðurkerfanna þessa dagana. eftir nokkuð fallegan en svalan föstudag kemur lægð með suðaustanátt og rigningu um sunnanvert landið á laugardag. Lítilsháttar rigning eða slydda mun nú einnig verða norðanlands. Þrátt fyrir suðaustanáttina hlýnar ekki að neinu gagni og stutt í að hann halli sér í norðrið. Á sunnudag er nefnilega útlit fyrir strekkings norðanvind með kólnandi veðri. Úrkoma norðan- og norðaustan- lands og mér þykir ekkert ólíklegt að fyrsti snjórinn í byggð gæti fallið á sunnudag eða mánudagsnóttina fyrir norðan og jafnvel einnig fyrir austan. snjór í fjöllum er alvanalegt ástand um miðjan september, en snjói á láglendi á þessum tíma er það heldur í fyrra fallinu. eftir helgina gera spákortin ráð fyrir háþrýstisvæði úr suðvestri með mun hlýrra lofti á landinu að minnsta kosti í bili. Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur Stjörnur vIKUNNAR Það er ekki spurning um hver fær flestar stjörnur þessa vikuna því ÞÓRHALLUR GUNNARSSON, dagskrárstjóri sjónvarpsins, átti snilld- arlegt pr-stönt í fyrradag þegar hann rak randver Þorláksson úr spaugstof- unni. Hann fékk með þessu fría auglýsingu fyrir flaggskip sjónvarps- ins til margra ára í öllum stærstu miðlum landsins. Það má búast við því að augu allra landsmanna verði jafnframt límd við skjáinn á laugardags- kvöldið því fólk vill væntanlega mynda sér skoðun á því hvort ákvörðun Þórhalls hafi verið rétt. GEIR ÓLAFSSON söngvari fær tvær stjörnur fyrir að hafa tekist að landa því að minnsta kosti að nánasti samstarfs- maður Nancy sinatra á að vera kominn til landsins til að skoða aðstæður áður en söngkonan sjálf ákveður hvort hún sjái sér fært að gleðja landann með söngrödd sinni og sjarma. auk þess hefur geir fengið þennan umrædda nánasta samstarfsmann til að pródúsera tvö lög á nýju plötunni sinni – það hlýtur að vera að minnsta kosti einnar stjörnu virði til viðbótar. GEIR JÓN ÞÓRISSON, yfirlögreglu- þjónn á höfuðborgarsvæðinu, fær tvær stjörnur fyrir að mæta í viðtal á Ómega í fullum herklæðum og lýsa því yfir að trúboð væri mun árangurs- ríkari leið til friðar í miðborginni en útkall sérsveitarinnar. bænahringir á Lækjartorgi kæmu örugglega í veg fyrir fullt af barsmíðum svo ekki sé minnst á þann möguleika að hvetja skrílinn til fjöldasöngs á sálmum. ÓLAFUR RAGNAR GRÍMSSON, forseti Íslands, fær ekki nema eina stjörnu fyrir að hafa vígt það sem hann kallar umhverfisvænustu byggingu í heimi. allt gott og blessað og hann hefði sannarlega fengið fleiri stjörnur fyrir framtakið nema fyrir það eitt að hafa mætt til vígslunnar á einkaþotu. ekki beint umhverfis- vænn ferðamáti.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.