Dagskrá: tímarit um menningarmál - 01.01.1958, Blaðsíða 8
— Þú vilt sporna gegn einangrun?
— Ég hef aldrei Iitið á ísland sem
útsker. Ég held, að það hafi alltaf ver-
ið stolt okkar, að við værum ekkert
útkjálkafólk, heldur hlutgengt í
heimsmenningunni, að við gætum eitt-
hvað.
Til forna var siður að fara í vík-
ing. Þessir ribbaldar þustu suður um
alla Evrópu, brenndu og brutu. En
þeir nrðu fyrir áhrifum. íslenzk
menning er hlntgeng í Evrópumenn-
ingunni. Víkingarnir sáu suður í lönd-
um, að menn rituðu á skinn, og þeir
tóku sér penna í stað spjóts.
Raunverulega slær okkur alveg það
sama nú, þegar við komum til Par-
ísar. Við viljum líta á okkur sem
/ vinnustofunni.
menn, að við séum liður í Evrópu-
menningunni. íslendingar hafa alltaf
verið svona. Og allir íslendingar í
París eru módernistar, en Skandínav-
arnir deilast, s>imir hanga í því gamla.
Þeir kalla okkur l’enfant terrible.
Svona var það líka, þegar ritöld hófst.
Það vorum við, sem varðveittum
Eddukvæðin og rituðum sögurnar.
Það er hliðstætt enn.
— Hefur þú ekki farið til Stokk-
hólms, síðan þú dvaldist þar forðum?
— Jú, í fyrra sumar. Konan var úti
í Danmörku, og ég var að hamast í
byggingunni frá sjö á morgnana til
miðnættis. Þá fékk ég bréf frá Svante
Páhlson. Ég athugaði þetta ekkert, og
bréfið lcnti í ruslakörfunni. Það fór þó
ekki út í öskutunnu, og þegar konan
kom heim, tók lnin eftir þessu óopn-
aða bréfi í körfunni. Hún reif það
upp og segir: — Hvað er þetta. Svar-
ar þú ekki? Þetta er pöntun á Móð-
ur Jörð.
Mér datt naumast annað í hug en
þetta væri litla myndin og skrifaði
Svante Páhlson til að vita vissu mína,
sagði sem satt er, að stóra myndin
vægi fimm tonn. Hann skrifaði mér
aftur og kvaðst vilja fá stóru mynd-
ina.
Ég eyddi svo þremur mánuðum í
að gera mót af myndinni, og hann lét
síðan steypa hana í kopar.
Ég heimsótti hann síðan á setur
hans þar á Vermlandi. Páhlson er
milljónamæringur, sem ver eigum sín-
um til þess að kaupa höggmyndir
hvaðanæva að úr heiminum. Ég labb-
aði þarna með honum um þessa stóru
garða, sem eru fullir af fegursta
gróðri og frægum listaverkum, en
6
DAGSKRÁ