Dagskrá: tímarit um menningarmál - 01.01.1958, Blaðsíða 63
— Eg bið yður enn afsöknnar,
sagði hann. Eg skal ekki oftar missa
stjórn á mér.
Paneloux rétti fram hendina og
sagði hryggur í bragði:
— Og samt tókst inér ekki að sann-
færa yður.
— Hvað gerir það til? svaraði
ltieux. Það, sem ég hata, það er, eins
og þér vitið, dauðinn og hið illa. Og
hvort sem yðnr líkar betnr eða ver,
þá stöndum við saman andspænis
þessu tvennu og berjumst gegn því.
Rieux hélt enn í hönd prestsins.
— Eins og þér sjáið, sagði hann
og forðaðist um leið að líta framan
í hann, — þá megnar nii ekkert að
skilja okkur að, ckki sjálfur Guð.
Rieux læknir streitist við að ímynda
sér Sísýfos hamingjusaman, að gera
sem best úr öllu með þeim ráðum,
sem tiltækiieg eru innan hinna luktu
múra. En því meira sem lífshamingj-
an gengur honum sjálfum úr greipum,
því betur finnur hann til samstöðu
sinnar með þeim, sem gefinn er kraft-
ur vonarinnar og fyrirheit bjartrar ei-
lífðar. Og það er engum blöðum um
það að fletta, að þetta er hin mikla
spurning höfundarins sjálfs, sem hann
hefur ekki á þessu stigi málsins gert
upp við sig til fullnustu.
dagskrá
61