Dagskrá: tímarit um menningarmál - 01.01.1958, Blaðsíða 49
Klausturkapella í San-Francisco. Eftir Mario ]. Ciampi, 1956.
Áður en lengra er haldið, er ekki úr
vegi að rifja upp sögu kirkjubygg-
inga í mjög stórum dráttum.
Löngu áður en kristin trú festi
rætur, höfðu menn þegar reist margs
konar byggingar í því skyni að fremja
þar helgiathafnir guðum sínum til
dýrðar og lofs.
Mætti þar nefna m. a. egypzk, grísk
og rómversk hof. Jafnvel pýramíd-
arnir eru að miklu leyti reistir í trú-
arlegum tilgangi, þar sem þeir eru
grafhýsi konunganna.
Þær leifar, sem fortíðin hefur látið
okkur eftir af byggingarlist þessara
menningarþjóða, einkum Grikkja og
Egypta, eru að langmestu leyti af trú-
arlegum rótum runnar.
Þar er líka að finna undirstöður
evrópskrar byggingarlistar allt frá
fyrstu tímum fram á okkar dag.
Fyrstu kristnu söfnuðirnir í Róm
urðu að láta sér nægja neðanjarðar-
grafhýsi til að halda J)ar guðsþjón-
ustur á laun.
Síðar, eða á 4. öld e. Kr., þegar
kristin trú var lögleidd í Rómaveldi,
hófust menn handa um kirkjubygg-
ingar fyrir alvöru og skapast í fyrstu
D A G S K R Á
sá stíll, sem kenndur er við frum-
kristni. Fyrirmyndir að fyrstu kirkj-
unum voru sóttar í hofin, fundahús-
in og jafnvel kauphallir og markaði.
Byggingarlagið var í stórum dráttum
hið sama, hátt ris í miðju og lægri
hliðargangar til beggja handa með
hallandi þaki út á við.
Upp úr þessu sprettur síðan hinn
rómanski stíll. Þróun hans stóð yfir
um margar aldir, en telja má hann
vera fullmótaðan um árið 800, og
blómaskeið hans í Vestur-Evrópu er
talið vera á 11. og í byrjun 12. aldar.
Margvísleg afbrigði eru til af þess-
um stíl, þótt ættarmótið sé ávallt
sterkt.
í allflestum Evrópulöndum, eink-
um þó á Frakklandi og Ítalíu, eru til
kirkjur í rómönskum stíl, sem hafa
varðveitzt einkar vel. Rekja má einn-
ig slóð þessa stíls allt austur fyrir
botn Miðjarðarhafs eftir leiðum kross-
ferðanna.
Gotneski stíllinn er upprunninn í
Frakklandi á 12. öld, eða nánar til-
tekið árið 1140, er hafizt var handa
um endurbyggingu á grafarkapellu
Frakklandskonunga í St. Denis
47