Dagskrá: tímarit um menningarmál - 01.01.1958, Blaðsíða 72

Dagskrá: tímarit um menningarmál - 01.01.1958, Blaðsíða 72
verið of fullkominn, of lítið breyskur. Þá hefur afi hans, Björn í Lundi, verið skemmti- legri. Eða er þessi ógnar ógnar alvara, sem Einari virðist fylgja, fremur svipur samtíðar- innar en þessa einstaka manns? Saga Einars í Nesi er að stofni til persónu- saga hans, nákvæmlega skýrt frá ætt hans og uppruna, uppvexti hans og þroskaferli á æskuárum. Höfundur gerir sér mikið far um að skýra sem bezt þær þjóðfélagslegu aðstæð- ur, sem söguhetja hans er mótuð við, og þau áhrif, er hún sætti á hrifnæmasta skeiði, og koma þar margir menn við sögu. Vel hefur höfundi tekizt að rekja það stig af stigi, hvað- an Einari komu þau áhrif, sem mest mótuðu hann, þangað til hann sem fulltíða maður fer að láta til sín taka í þjóðlífinu. Þessi þroska- saga er rakin í nokkurn veginn réttri tíma- röð, allt þar til Einar er orðinn bóndi í Nesi. Þá bregður til annarrar aðferðar, og eftir það er hver þáttur í ævistarfi hans tekinn fyrir sérstaklega og rakinn frá upphafi til enda. Búskaparsaga hans er tekin fyrir sér í lagi, þá er saga hákarlaveiðanna á Norðurlandi, þá nokkuð um upphaf síldveiða á Eyjafirði, um kaþólska trúboðið á íslandi og samskipti Ein- ars og fjölskyldu hans við kaþólska og loks misheppnað stímabrak þeirra Norðlendinga undir forystu Einars við að koma á stórfelld- um fólksflutningum til Brasilíu. Þó að saga þessi sé persónusaga Einars að stofni, er þó síður en svo, að allt snúist um að skýra þessa persónu sem allra bezt og at- burðasagan, sem sögð er, eigi einkum að þjóna þeim tilgangi. Hitt mundi sönnu nær, að fyrir höfundi vakir einkum að segja sögu héraðs og reyndar lands, en hann velur sér baráttu og æviferi! merkilegs fulltrúa tímabilsins sem eins- konar sjónarhól, þaðan sem víða sér til kenni- leita. Eða eigum við kannske að segja, að persónusaga Einars sé eins og heimahöfn, sem liggur vel við miðum og er ákjósanleg þeim, er langt og víða vill sækja. Sannast er þó það, að saga mannsins og héraðsins rennur fram í einum breiðum straumi og verður ekki hvort frá öðru skilið. Ahugi höfundar á at- vinnu- og menningarsögu héraðs á merkilegu tímabili vegur salt við áhuga hans á einum helzta forvígismanni í þessari sögulegu fram- vindu, og verður ekki annað séð en á þessu fari prýðilega. Arnór Sigurjónsson virðist hafa verið hrædd- ur um að mönnum mundi finnast bók hans sfrembin og leiðinleg aflestrar. Hún er hvor- ugt. Frásögnin er einkar skýr og skilmerkileg og heldur sig trúlega að efninu, útúrkróka- laust og vangaveltulaust. Og leiðinleg er ekki sú saga, sem sögð er af vaknandi vitund manna á 19. öld um auðlegð lands og sjáv- ar á íslandi og fyrstu tilraunum landsmanna til þess að hagnýta þessa auðlegð og Ieggja með því grundvöll að nýju þjóðfélagi. Sagan rennur í breiðum farvegi og fer hægt, en það er kostur á sögulegi riti, en ókostur ekki. Að reyna að gera langa sögu stutta með því að stikla á stóru er til þess eins að gera hana ósanna. Segja má, að sagan sé ekki glæsi- leg, enda standa ekki efni til þess. Það er ekki verið að segja frá neinum afburða glæsi- brag eða stórum mannlegum örlögum eða dramatískum viðburðum. Það er verið að segja einn þátt í baráttusögu íslenzkrar al- þýðu, og verður að skeika að sköpuðu, hvort mönnum þykir það leiðinlegt efni. Það tel ég kost á þessari sögu, hvc mikið far höfundur gerir sér um að Iáta heimildir sjálfar tala sínu máli. Þetta lengir að vísu bókina mikið, þar sem upp eru teknir langir greinarkaflar úr blöðum og langt mál úr sendibréfum, en þetta kemur Iesandanum bet- ur en nokkuð annað í sambandi við þá menn og þann tíma, sem verið er að lýsa, auk þess sem það opnar honum Ieið til sjálfstæðs skiln- ings án þess að þurfa að sjá allt með aug- um söguhöfundarins. Þá hefur og þessi bók stóran hag af því, hversu þaulkunnugur Arnór er vettvangi atburðanna. Hann skrifar um hérað og héraðsbúa í Suður-Þingeyjarsýslu af svo gróinni og nákominni þekkingu, að telja verður óhugsandi að. nokkur utanhéraðsmaður hefði getað gert slíkt hið sama. Suður-Þingeyingar mega sannarlega vel una sínum hlut í sagnaritun síðustu ára. Fyrir tveimur árum kom út fyrsta bindi af þrem- ur um Tryggva Gunnarsson eftir Þorkel Jó- hannesson og nú þessi saga Einars í Nesi eftir Arnór. Þeir Tryggvi og Einar voru að heita má jafnaldrar, þeir voru samsveitungar og runnir upp úr sama menningarumhverfi, gáf- aðir, sjálfmenntaðir, kjarkmiklir menn, sem báðir völdust ungir til forystu á Norðurlandi upp úr miðri síðastliðinni öld. Svo sem eðli- legt er, eru þessar bækur því að ýmsu leyti keimlíkar, enda svipaðri sagnritunaraðferð beitt við báðar, en því fer þó fjarri, að önnur bókin geri hina óþarfa. Þó að þær gerist að DAGSKRÁ 70
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Dagskrá: tímarit um menningarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagskrá: tímarit um menningarmál
https://timarit.is/publication/1059

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.