Fréttatíminn - 16.05.2014, Blaðsíða 51
umhirða húðarHelgin 16.-18. maí 2014 51
Þessar bresku lífænt- og vegan-vottuðu
húðvörur eru nú loks fáanlegar á Íslandi.
Skin Blossom hefur að leiðarljósi að bjóða
upp á gæðavörur á góðu verði og hefur
unnið til fjölmargra verðlauna í Bretlandi.
Nýlega vann öll vörulínan til verðlauna hjá
Natural Health Magazine í Bretlandi og
fékk bestu meðmæli í sínum verðflokki.
Skin Blossom eru án parabena og allra
annarra skaðlegra aukaefna. Vörurnar
henta vel öllum húðtegundum, einnig
viðkvæmri húð þar sem þær innihalda ekki
sterk jurtaextrakt sem geta valdið ofnæmi
og ert húðina. Sex vörutegundir frá Skin
Blossom eru nú fáanlegar á Íslandi.
Andlitskrem fyrir eldri húð. Inniheldur
arganolíu sem er mjög nærandi fyrir
húðina. Í kreminu er einnig kakósmjör og
jojobaolía sem gefa mikinn raka.
lífrænar húðvörur frá Skin BloSSom
Gæði á góðu verði
Rakakrem fyrir yngri húð. Kremið
inniheldur shea smjör, jojobaolíu og E-
vítamín ásamt steinefnum og vítamínum
sem vernda og næra húðina.
Body lotion. Inniheldur arganolíu,
kakósmjör, möndlu- og avókadóolíu sem
næra, gefa góðan raka og mýkt.
Hreinsimjólk. Nærandi hreinsimjólk
fyrir andlit sem fjarlægir einnig augnfarða
svo sem maskara. Í henni er meðal
annars aloe vera og möndluolía sem gefa
raka og draga úr bólgum.
Augnkrem. Í kreminu er blanda af
grænu tei, augnfró og bókhveiti sem
draga úr hrukkum, þurrki og baugum
undir augum.
Handáburður. Í honum er kakósmjör,
avókadóolía og shea-smjör sem mýkja og
næra húðina.
Skin Blossom er fáanlegt í Akureyrarapó-
teki Mýrarvegi, Lyfjaveri/Heilsuveri Suður-
landsbraut 22 og Lifandi Markaði Fákafeni.
Kynningar á vörunum verða haldnar í:
Lyfjaveri/Heilsuveri mánudaginn 19. maí
klukkan 13.30 til 14.30 og Lifandi Markaði
þriðjudaginn 20. maí klukkan 16 til 18 og
eru allir velkomnir. Nánari upplýsingar má
nálgast á Facebook-síðunni Skin Blossom
á Íslandi.
Nýlega hlaut Skin Blossom
línan verðlaun frá
Natural Health
Magazine í Bret-
landi fyrir bestu
vörurnar í sínum
verðflokki.
Skin Blossom vörurnar eru án parabena og annarra skaðlegra efna og henta öllum
tegundum húðar.
All-in-One Instablur™-farði
er ný vörutegund frá
The Body Shop
Hnökralaus áferð á augabragði. Ávinn-
ingurinn er fimmfaldur: Instablur hylur
bólur og aðra hnökra í húð, svitaholur
verða síður áberandi, áferðin helst mött
allan daginn.
Instablur jafnar húðlit og fær annan farða
til að endast lengur. Verð: 2890 kr.
NIVEA Q10 Firming Cellulite
Gel-Cream
Húðgelið er fyrir allar húðgerðir. Það er
með nýrri formúlu sem inniheldur kóensím
Q10, kreatín og L-karnitín en saman
aðstoða þessi innhaldsefni húðina við að
umbreyta fitu í orku. Cellulite Gel-kremið
minnkar ummerki um appelsínuhúð á
þremur vikum og stinnir húðina.
Kóensím Q10, kreatín og L-karnitín finnast
öll náttúrulega í húðinni en framleiðsla
þeirra minnkar með hækkandi aldri.