Fréttatíminn - 16.05.2014, Blaðsíða 46
umhirða húðar Helgin 16.-18. maí 201446
Serum eru einskonar húðdropar en þó
aldrei kallaðir annað en serum. Serum
inniheldur mikið magn af virkum efnum
og skýrir það af hverju það kostar heldur
meira en hefðbundin andlitskrem. Virku
efnin eru til að mynda hyaluronic-sýra
(til að draga úr línum og hrukkum),
C-vítamín (til að jafna lit húðarinnar) og
glycolic-sýra (til að losna við dauðar húð-
frumur), svo þrjú efni séu nefnd.
Um er að ræða glæran vökva með
geláferð sem gengur hratt inn í húðina
og nær að vinna á innri lögum hennar.
Aðeins þarf að nota mjög lítið magn
í einu og serumið dreifist vel. Áferð
húðarinnar verður þá silkislétt. Ef
áferðin verður klístrug hefur þú að öllum
líkindum notað of mikið í einu. Eftir á
er síðan hægt að bera á sig hefðbundið
dagkrem eða næturkrem.
Einn helsti munurinn á serum og
andlitskremum er að húðin nýtir betur
virku efnin í seruminu og árangur sést
mun fyrr af notkuninni. Allar húðgerðir
geta notið góðs af því að nota serum og
almennt er talað um að það veiti raka,
næri, örvi og endurveki ljóma húðar-
innar. Eins og með aðrar húðvörur eru
sum serum sérstaklega gerð til að vinna
á ákveðnum kvillum, minnka hrukkur,
draga úr þurrkublettum.
Annað dæmi um hversu víðtæk áhrif
serum hafa á húðina er að þau henta
jafnt táningum með bólur, konum sem
vilja minnka fínar línur í húðinni og karl-
mönnum sem vilja losna við ertingu í húð
eftir rakstur.
Serum getur hjálpað þeim sem eiga í
vanda með húðina, eru til að mynda með
dökka bletti sem þeir vilja draga úr. Þá
hefur einnig verið bent á að þeir sem eru
með mjög feita húð ættu að nota serum
eingöngu, og ekki rakakrem einnig, því
húðin þurfi ekki meiri raka eða fitu,
aðeins næringu. Einn helsti munurinn
á serum og andlitskremum er að húðin
nýtir betur virku efnin í seruminu og
árangur sést mun fyrr af notkuninni.
Serum veitir raka,
nærir og örvar húðina
Serum hefur notið mikilla vinsælda undanfarin ár. Allar húðgerðir
geta notið góðs af því að nota serum og almennt er talað um að
það veiti raka, næri, örvi og endurveki ljóma húðarinnar.
NÁTTÚRULEG BB OG CC KREM
BB kremið gefur góðan raka og ljóma. Gefur matta áferð og hylur
bletti og misfellur í húðinni. CC kremið er þekjandi og hylur bletti og
fínar línur. Stinnir húðina (anti-aging). Gefur góðan raka.
Náttúrulegt og vottað lífrænt.
Fæst í Heilsuhúsunum og Lifandi markaði
Sturtu- og baðolía frá Decubal
Vatn þurrkar húðina svo það er ráð að prófa
rakagefandi olíu í morgunsturtuna í stað
venjulegrar sápu til þess að koma í veg fyrir
rakatap. Decubal Shower and Bath Oil er
mild og lyktarlaus baðolía fyrir allan líkam-
ann. Þetta er djúpnærandi olía sem freyðir
létt í vatni og auðvelt er að skola af húðinni.
Olían hreinsar húðina og veitir henni þá
næringu og raka sem hún þarfnast.
Gott ráð!
Hendur og fætur eiga það til að verða mjög
þurr. Dekraðu við fæturna með því að setja
Decubal Shower & Bath Oil í fótabaðið. Fyrir
enn betri árangur getur þú borið á þá feitt
krem eftir fótabaðið, t.d. Decubal Lipid
Cream.
Decubal húðvörur eru án parabena, ilm- og
litarefna og fást aðeins í apótekum.
Chanel Hydramax+active
raka-maski
Veitir hámarks raka, kælir og veitir
vellíðan. Slær á óþæginda tilfinningu í
húð svo sem sviða, roða, pirring og hita.
Virkar vel á sólbruna og er græðandi.
Notist fyrir andlit í u.þ.b. 10-15 mínútur í
senn á hreina húð eftir þörfum. Það má
sofa með maskann og hann hentar öllum
húðgerðum.
Soleil bronzer after sun frá
Lancôme
Nýtt after sun sem inniheldur 3 dýrmætar
olíur sem næra, mýkja og fegra húðina.
Nærir húðina raka og húðin verður brúnni
lengur.
NIVEA Q10 Firming Body Milk
húðmjólkin er fyrir þurra húð
Hún er með nýrri háþróaðri formúlu
sem inniheldur kóensím Q10, kreatín og
L-karnitín en saman aðstoða þessi inn-
haldsefni húðina við að umbreyta fitu í
orku. Húðin verður stinnari eftir aðeins
tveggja vikna notkun.
Kóensím Q10, kreatín og L-karnitín finnast
öll náttúrulega í húðinni en framleiðsla
þeirra minnkar með hækkandi aldri.
Vitamin E Aqua Boost Sorbet
50 ml
Er ný vörutegund frá The Body Shop.
Létt krem sem veitir þyrstri húð
kærkomna rakagjöf og kælingu í allt að
sólarhring í einu.
Hentar öllum húðgerðum.
Verð: 2790 kr.
Dove Purely Pampering
línan
Dove húðkremin með shea butter
henta vel fyrir þurra húð. Shea butter
er næringarríkur rakagjafi fyrir húðina.
Húðkremin innihalda fitusýrur sem eru
nauðsynlegar til að viðhalda raka og
teygjanleika húðarinnar. Shea butter
hefur verið notað til að græða sár, við
meðhöndlun á brunasárum, psori-
asis og fleira. Það er unnið úr hnetum
afrískra trjáa svokallaða „Shea tree“.
Öll húðkremin frá Dove innihalda nú
formúluna Deep Care Complex, en með
því móti fer kremið enn dýpra í húðina
en áður og gefur henni þann mikilvæga
raka sem hún þarf til að halda réttu
rakastigi og teygjanleika.