Fréttatíminn - 16.05.2014, Blaðsíða 19
Gott. Betra. Bosch.
Hjá Bosch er hvert smáatriði gaumgæft. Þess vegna prófar Bosch allar vörur
sínar vel og vandlega. Og svo prófa þeir þær aftur. Síðan prófa aðrir þær, til
dæmis Råd & Rön og hliðstæðar prófunarstofnanir í löndum víða í Evrópu.
Árangurinn? Sigursælt vörumerki!
Öll Bosch-tæki, sem hlotið hafa viðurkenningu frá virtum prófunarstofnunum,
bjóðum við með 15% afslætti í maí. Sjá nánar um hin margrómuðu
Bosch-heimilistæki okkar á bosch.is.
Gæðin endurspeglast af hverju smáatriði.
Hæsta einkunn fyrir hraða og viðurkenning
fyrir gæði og góða frammistöðu hjá sænska
prófunar- og rannsóknarsetrinu Testfakta,
september 2013.
Uppþvottavél
SMU 53M72SK
Kæli- og
frystiskápur
KGN 36AW32
Hrærivél
MUM 52120
Hraðsuðukanna
TWK 8611
Ryksuga
BSGL 52237
Þvottavél
WAY 32890SN
Spanhelluborð
PIE 645F17E
Ryksuga
BGL 35MOV11
HÆSTA EINKUNN Ap
ríl
2
01
3
HÆSTA EINKUNN nó
v.
2
01
2
HÆSTA EINKUNN m
ar
s
20
13
GÓÐ KAUP ap
ríl
2
01
3
HÆSTA EINKUNN M
aí
2
01
3
HÆSTA EINKUNN se
pt
. 2
01
3
HÆSTA EINKUNN de
s.
2
01
2
HÆSTA EINKUNN m
ar
s
20
13
Opið virka daga frá kl. 11 - 18
og á laugardögum frá kl. 11 - 16.
Tólf þúsund börn á Íslandi búa við fátækt
almennt ekki varir við fátækt í
sínum skólum og að sú staðreynd
að 16% íslenskra barna lifðu við
fátæktarmörk kæmi þeim á óvart.
„Það hafa alltaf verið til staðar
einhver tilfelli en okkar tilfinn-
ing er sú að þau hafi ekki aukist,“
segir Margrét Ásgeirsdóttir,
aðstoðarskólastjóri Melaskóla.
Erfiðara sé þó en áður að meta
hvaða börn séu fátæk þar sem all-
ar greiðslur fari í gegnum borgina
en ekki skólana beint. „Hér áður
fyrr gátum við fylgst með þessu í
gegnum það hvernig fólki gekk að
borga mataráskrift en nú er það
alfarið farið úr okkar höndum og
því erfiðara að fylgjast með,“ segir
Guðrún Guðmundsdóttir, að-
stoðarskólastjóri Seljaskóla. „Það
er helst á klæðnaði barnanna sem
við sjáum skort, ef svo er.“
Einstæðar mæður þurfa
mesta aðstoð
Auk þess að skilgreina fátækt út
frá tekjum, hafa fræðimenn á sviði
félagsvísinda sett fátækt í sam-
hengi við það hvort fólk fái félags-
lega aðstoð því þurfi fólk að leita
á náðir hins opinbera með aðstoð,
bendir það til að það hafi ekki
nægar tekjur til að framfleyta sér
og fjölskyldu sinni. Á Íslandi er
það í höndum sveitarfélaganna
að veita fjárhagsaðstoð. Elísabet
Karlsdóttir, félagsráðgjafi og
framkvæmdastjóri Rannsóknar-
stofnunar barna- og fjölskyldu-
verndar, gerði nýlega könnun á
aðstæðum reykvískra barnafjöl-
skyldna með það að markmiði að
varpa ljósi á stöðu fjölskyldna sem
búa við alvarlegan fjárhagsvanda.
Í því fólst meðal annars að greina
þátttöku barna í tómstunda- og
íþróttastarfi, félagsleg tengsl og
almennt heilsufar barna. „Athygli
vekur að ungar konur eru í mikl-
um meirihluta þeirra sem þiggja
fjárhagsaðstoð frá borginni. Þær
eru einhleypar, oft einstæðar
mæður og algengt er að þær hafi
ekki menntað sig að loknum
grunnskóla. Könnunin leiddi auk
þess í ljós að ríflega fjórðungur
reykvískra foreldra í launaðri
vinnu ver ríflega fimmtíu þúsund
krónum eða meira í íþrótta- og
tómstundastarf barns síns, en eru
á sama tíma líklegri en foreldrar
sem þiggja fjárhagsaðstoð til að
nota frístundakortið til að greiða
fyrir íþrótta- og tómstundastarf,“
segir Elísabet, en frístundakortið
var gert til að jafna stöðu barna
þegar kemur að tómstundum.
Frístundakortið virkar ekki
sem skyldi
„Frístundakortið virðist ekki
virka alveg sem skyldi því einung-
is 57% þeirra sem þiggja fjárhags-
aðstoð nýta sér það samanborið
við 90% þeirra sem eru á vinnu-
markaði. Kannski þarf að kynna
það betur eða þá að finna aðra leið
til að koma til móts við þá sem
hafa lægstar tekjur,“ segir Elísa-
bet. Könnunin leiddi auk þess í
ljós að einungis 9% foreldra sem
þiggja fjárhagsaðstoð frá borginni
verja þetta háum fjármunum í
íþróttir og tómstundir barnsins og
börn þeirra nýta sér frekar tilfall-
andi afþreyingu og ókeypis tóm-
stundir, eins og félagsmiðstöðvar
og bíó. Auk þess eru börn fólks
sem fær fjárhagsaðstoð síður
í tónlistarskóla, eða einungis
3%, og stunda síður hreyfingu
en börn fólks í launaðri vinnu.
Meginniðurstaða rannsóknarinn-
ar sýnir að atvinnustaða reyk-
vískra foreldra skiptir máli fyrir
aðstæður barna þeirra en Elísabet
segir frekari rannsókna vera þörf,
sérstaklega rannsókna sem fanga
raddir barnanna sjálfra.
Skólamáltíðirnar takast vel
Velferðarsvið Reykjavíkurborgar
og borgaryfirvöld hafa nú nýtt sér
þessar niðurstöður til að leggja
áherslu á aukna upplýsingagjöf
félagsráðgjafa á Þjónustumið-
stöðvum borgarinnar til for-
eldra um rétt sinn á greiðslum
vegna barna sinna. „Við megum
heldur ekki gleyma því að þó
að fólk fái frístundakortið þá
er mikill aukakostnaður sem
fylgir íþróttum sem margir
geta bara ekki leyft sér. Ein-
hvernveginn þarf líka að finna
lausn á því, því öll börn eiga að
hafa jafnan rétt til að stunda
íþróttir. En það sem hefur tekist
mjög vel eru skólamáltíðirnar.
Fjárhagur og atvinnustaða for-
eldra virðist ekki hafa áhrif á
það hvort börn fái heitan mat í
hádeginu, sem er mjög ánægju-
legt,“ segir Elísabet og leggur
að lokum áherslu á hversu
mikilvægt það sé að veita
ungum foreldrum sem þiggja
fjárhagsaðstoð tækifæri til að
breyta stöðu sinni með þjálfun
eða menntun sem skilar sér í
starfi eða frekari menntun. „Að
vinna gegn fátækt barna í ís-
lensku samfélagi er mikilvægt
og þarf að vera sameiginlegt
átak stjórnvalda á öllum stigum
með stefnumótandi aðgerðum í
málefnum fjölskyldunnar.“
Vantar stefnumótun
stjórn valda
Margrét Júlía Rafnsdóttir, verk-
efnastýra hjá Barnaheillum
Lágtekjumörk mjög langt frá neyslu-
viðmiðum velferðarráðuneytisins.
170.600 kr. = Lágtekjumark einstaklings án barns
Neysluviðmið velferðarráðuneytisins er 234.564 kr.
234.564 kr. = Lágtekjumark fjögurra manna fjölskyldu
Neysluviðmið velferðarráðuneytisins er 546.543 kr.
Árið 2013 voru 9,3% þjóðarinnar undir lágtekjumörkum en lágtekjumarkið var þá
170.600 kr. fyrir einstakling án barns. Lágtekjumarkið fyrir heimili þar sem bjuggu tveir
fullorðnir og tvö börn yngri en 14 ára var 358.400 kr. á mánuði. Ef farið er inn á vefsíðu
velferðarráðuneytisins er hægt að reikna út neysluviðmið. Einstaklingur án barns þarf
234.564 til að lifa af, án húsnæðiskostnaðar. Fjögurra manna fjölskylda þarf 546.543 kr.
á mánuði, án húsnæðiskostnaðar.
Framhald á næstu opnu
fréttaskýring 19 Helgin 16.-18. maí 2014