Fréttatíminn - 16.05.2014, Blaðsíða 82
— 2 — 16. maí 2014
Erla Kolbrún heið-
ursvísindamaður
Landspítala 2014
Erla Kolbrún Svavarsdóttir, prófessor
við hjúkrunarfræðideild Háskóla
Íslands og formaður fagráðs í fjöl-
skylduhjúkrun við Landspítala, er
heiðursvísindamaður Landspítala
árið 2014. Henni hlotnaðist sá heiður
á Vísindum á vordögum, árlegri
vísindadagskrá á Landspítala, sem
haldin var í byrjun maí.
Erla Kolbrún lauk doktorsprófi frá Há-
skólanum í Wisconsin í Madison árið
1997 og ber doktorsritgerðin titilinn:
„Family Adaptation for Families of an
Infant or a Young Child with Asthma“.
Erla Kolbrún hefur verið prófessor
við Háskóla Íslands síðan 2006 og
formaður fagráðs í fjölskylduhjúkrun
á Landspítala
síðan 2008.
Frá upphafi
rannsóknar-
ferilsins hefur
Erla Kolbrún
lagt áherslu
á að kanna
þrautseigju,
seiglu,
bjargráð,
heilsutengd lífsgæði, vellíðan,
aðlögunarleiðir og aðlögun fjöl-
skyldumeðlima sem eru að fást við
langvinna sjúkdóma, bæði meðal
fjölskyldna hér á landi og í Banda-
ríkjunum. Auk þess hefur hún unnið
að aðferðafræðilegum útfærslum í
fjölskyldurannsóknum með sam-
starfskonum í Bandaríkjunum. Um
þessar mundir vinnur hún með rann-
sóknarhópi í Kanada að innleiðingu
fjölskyldumiðaðrar heilbrigðisþjón-
ustu á háskólasjúkrahúsi í Montreal.
Stærsti hluti rannsókna Erlu Kol-
brúnar og samstarfsmanna hennar
hér á landi snýr hins vegar að þróun
stuttra meðferðarsamræðna og fjöl-
skylduhjúkrunarmeðferða í tengslum
við innleiðingu fjölskylduhjúkrunar
á Landspítala og að þróun þriggja
mælitækja sem mæla upplifaðan
stuðning, fjölskylduvirkni og viðhorf
fjölskyldumeðlima til sjúkdóma.
Ritrýndar tímaritsgreinar og bókar-
kaflar Erlu Kolbrúnar eru yfir 60 og
ágrip nokkur hundruð, auk þess sem
hún er ritstjóri tveggja fræðibóka.
Sætúni 8, 105 Reykjavík. Sími: 531 3300.
Ritstjóri: Höskuldur Daði Magnússon hdm@
frettatiminn.is. Ritstjórnarfulltrúi: Dagný Hulda
Erlendsdóttir dagnyhulda@frettatiminn.is. Fram-
kvæmda- og auglýsingastjóri: Valdimar Birgis-
son valdimar@frettatiminn.is. Útgáfustjóri: Teitur
Jónasson teitur@frettatiminn.is . Líftíminn er gef-
inn út af Morgundegi ehf., prentaður í 85.000
eintökum í Landsprenti og dreift mánaðarlega
með Fréttatímanum og á heilbrigðisstofnanir.
Vöðvar endurbyggðir með
vef úr þvagblöðru svína
Vélmenni á skurðstofunni
Róbóti eða þjarkur
sem notaður er við
skurðaðgerðir er
orðinn staðalbúnaður
á flestum sjúkrahús-
um á Vesturlöndum.
Ekki er til slíkur á
Íslandi en söfnun
fyrir honum stendur
yfir. Rafn Hilmarsson
þvagfæraskurðlæknir
hefur verið leiðandi í
notkun á þjarkinum í
Svíþjóð. Með notkun
hans verða aðgerðir
mun nákvæmari og
sjúklingurinn finnur
síður fyrir aukaverk-
unum.
Dagn ý HulDa Er lEnDsDót tir
Frá síðustu aldamótum hefur róbóti eða
skurðarþjarkur verið tekinn í notkun á
flestum sjúkrahúsum á Vesturlöndum. Rafn
Hilmarsson þvagfæraskurðlæknir hefur
verið leiðandi í notkun tækisins í Sví-
þjóð en hann flutti
til Íslands síðasta
haust eftir áratugar dvöl ytra. Ekki er til
slíkur þjarkur á Íslandi en söfnun stendur
nú yfir. Tækið kostar um 300 milljónir og
hefur tekist að safna fyrir nær helmingi upp-
hæðarinnar. Í vikunni gáfu Bónus og Hag-
kaup 25 milljónir í söfnunina.
Skurðarþjarkurinn virkar eins og fram-
lenging á höndum skurðlæknisins og segir
Rafn að líkja megi honum við hátæknihníf.
Gerð eru lítil göt á kviðinn og aðgerð fram-
kvæmd í gegnum þau í stað stórs skurðar á
kvið. „Þjarkurinn heldur á öllum áhöldum
og skurðlæknirinn stýrir honum frá stjór-
nstöð. Skurðsár verða mun minni og sjúk-
lingurinn fær minni verki og blæðingar. Þó
tækið sé dýrt sparast fjármagn með notkun
þess því sjúklingar fara fyrr heim eftir að-
gerðir.“
Skurðlæknirinn skiptir um arma eftir
þörfum, til dæmis eftir því hvort eigi að
sauma, klippa eða skera. Hver hreyfing
verður nákvæmari en þegar skurðlæknirinn
notar sínar eigin hendur og auðveldara að
komast að viðkomandi líffæri með smáum
áhöldum í gegnum lítil göt. Með þjarkinum
er myndavél og sér skurðlæknirinn aðgerða-
svæðið í þrívídd og hefur möguleika á því
að stækka myndina mikið sem Rafn segir
muna miklu.
Á námsárum sínum í Svíþjóð starfaði
Rafn á háskólasjúkrahúsinu í Lundi og síð-
ar í Malmö þar sem ein stærsta þvagfæra-
skurðdeild á Norðurlöndunum er. Stuttu
eftir að hann hóf störf í Svíþjóð var byrjað
að nota slíka þjarka þar og kveðst hann
heppinn að hafa fengið að vinna með tækið
nánast frá þeim tíma er kom fyrst á markað.
Í fyrstu voru aðeins þvagfæraskurðlækn-
ar sem nýttu sér þjarkinn en hann er nú
notaður af hinum ýmsu sérfræðigreinum.
„Tæknin hentar vel við aðgerðir á blöðru-
hálskirtli djúpt niðri í grindarholinu. Þang-
að er erfitt að komast og þröngt og því hent-
ar þessi tækni vel þar.“ Í dag er þjarkurinn
mest notaður af kvensjúkdómalæknum og
þá við aðgerðir eins og þegar verið er að fjar-
lægja krabbamein í eggjastokkum og legi.
Þó tæknin sé orðin staðalbúnaður á
flestum sjúkrahúsum á Vesturlöndum er
ekki kominn slíkur þjarkur á Landspítal-
ann. Ekki er einungis skorti á fjárfram-
lögum um að kenna því ekki hefur verið til
staðar þekking hér á landi til að nota hann.
„Núna á síðustu misserum hafa þó komið
skurðlæknar til starfa á Landspítala sem
eru menntaðir erlendis og hafa þekkingu
til að nota tækið.“
Rafn er þeirrar skoðunar að lykillinn að
því að koma Landspítalanum upp úr þeim
öldudal sem hann hefur verið í undanfarin
ár sé að horfa til framtíðar og byggja upp.
„Þannig hrífst fólk með og vill flytja aftur
heim til Íslands að námi loknu. Það verður
seint þannig að Ísland geti keppt við önnur
lönd í launum en með því að bjóða upp á
sambærilegar aðstæður og gerast erlendis
fást sérfræðingar til starfa.“
Nánari upplýsingar um söfnunina má
nálgast á síðunni www.islandsbanki.is/ro-
bot
Vakin er athygli á því að full
starfsemi er yfir sumartímann.
Læknisfræðileg endurhæfing á Heilsustofnun
er góður kostur og miðar að því að ná mestri
mögulegri færni og lífsgæðum og viðhalda þeim.
Allar nánari upplýsingar á heimasíðu okkar
www.hnlfi.is og í síma 483 0300.
Endurhæfing allt árið
Heilsustofnun NLFÍ
Berum ábyrgð á eigin heilsu
Grænumörk 10 - Hveragerði - Sími 483 0300
www.hnlfi.is - heilsu@hnlfi.is
Erla Kolbrún
Svavarsdóttir.
Hægt er að nota vef úr þvagblöðrum svína til að endurbyggja vöðva í
fólki, samkvæmt niðurstöðum rannsóknar sem gerð var í Pittsburg
háskóla og nýlega voru birtar í vísindatímaritinu Science translational
Medicine. Fimm karlmenn um þrítugt tóku þátt
í rannsókninni en allir höfðu þeir hlotið meiðsli
með þeim afleiðingum að á milli 58 og 90 prósent
af ákveðnum vöðva á fæti voru skemmd. Tveir
karlanna voru hermenn sem höfðu orðið fyrir
sprengingu, tveir höfðu lent í slysi á skíðum og
einn hafði lent í slysi við annars konar íþrótta-
iðkun. Á alla fimm vantaði hluta af hnéréttivöðva
sem er vöðvinn á utanverðum sköflungi.
Meðferðin fór þannig fram að eftir ákveðna
vinnslu á þvagblöðrunni var örvefur fjarlægður
úr vöðvanum. Síðan var blaðran sett á svæðið og
stofnfrumur hennar inni í vöðvanum breyta sér
í vöðva.
Þrír af fimm sjúklingum rannsóknarinnar náðu
góðum bata og gátu til dæmis staðið á öðrum fæti.
Hjá hinum tveimur var árangurinn minni.
Vöðvi er einn af fáum líkamsvefjum sem geta endurnýjað sig en ef
stór hluti skemmist geta meiðslin orðið það mikil að hreyfigeta minnkar.
Skurðarþjarkurinn
virkar eins og fram-
lenging á höndum
skurðlæknisins. Gerð
eru lítil göt á kviðinn og
aðgerð framkvæmd í
gegnum þau í stað þess
að gera stóran skurð.
Með tækninni verða
aðgerðirnar nákvæmari
og sjúklingurinn fær
minni aukaverkanir.
Rafn Hilmarsson þvagfæraskurðlæknir hefur verið leiðandi í notkun skurðarþjarksins í Svíþjóð. Hann er nú fluttur til Íslands eftir tíu ára
búsetu ytra.