Fréttatíminn - 16.05.2014, Blaðsíða 21
Anna er ómenntuð því henni leið
alltaf illa í skóla. Í dag er hún
öryrki.
„Ég er ekkert menntuð þar sem
mér gekk bara alltaf svo illa í
skóla. Það kom svo í ljós síðar
að ég er með ADHD. Ég fór að
vinna í frystihúsi hér á höfuð-
borgarsvæðinu þegar ég var 15
ára og var þar í 20 ár. Núna hef
ég verið öryrki í 10 ár þar sem
ég er með ónýtt bak og slitgigt.
Ég get bara því miður ekkert
unnið. Sumir dagar eru það
slæmir að ég ligg bara fyrir.“
Anna hefur verið fráskilin í 14 ár.
„Þar er ekkert samband. Faðir
drengjanna tekur engan þátt,
en ríkið borgar okkur meðlagið
frá honum. Hann vildi ekki taka
þátt í fermingu sonarins núna í
vor. Fjölskylduhjálpin aðstoðaði
okkur við að halda upp á ferm-
inguna.“
Anna hefur ekki efni á að borga
íþróttir fyrir drengina sína.
„Ég er komin í ofboðslega
skuld við íþróttafélagið. Ég
reyni og reyni að borga þetta,
hef alltaf sett það í forgang því
þeir eru báðir mjög aktívir og
duglegir í íþróttunum. Núna sé
ég fram á að yngri strákurinn
þurfi að hætta og ég bara get
ekki hugsað til þess, það á eftir
að fara með hann. Ég nýti frí-
stundakortið fyrir þá báða en
það dugar bara hálft árið fyrir
skráningunni. En svo koma
alltaf rosaleg útgjöld þegar
vantar búninga og nýja skó. Í
þau skipti sem ég hef farið fram
úr mér fjárhagslega þá er það
oftast vegna aukaútgjalda fyrir
drengina. Um daginn vantaði
innanhússkó og þá bara sleppti
ég því að borða í nokkra daga.
Auðvitað lætur maður börnin
ganga fyrir.“
Anna leigir hjá Félagsmála-
stofnun.
„Ég hef alltaf getað staðið í skil-
um með leigu en ég var líka svo
heppin að fá félagslega íbúð.“
Anna fær 180.000 greiddar á
mánuði í örorku en fær ofan á
það meðlag. Heildartekjur eru
því um 240.000 kr. en föst út-
gjöld á mánuði eru 180.000.
„Ég lifi á 60.000 krónum á
mánuði . Það þarf verulega
mikið að hugsa um forgangs-
röðun. Auðvitað vill maður allt
fyrir börnin sín gera. Núna er
ég að velta því fyrir mér hvort
ég eigi að leyfa þeim að fá Stöð
tvö sport í sumar. Ég hef bara
alltaf áhyggjur af morgundeg-
inum. Sem betur fer get ég farið
í Mæðrastyrksnefnd, í Hjálpar-
stofnun kirkjunnar og til Fjöl-
skylduhjálparinnar. Ég veit ekki
hvað ég gerði án þeirra.“
Einstæð móðir og öryrki er með
60.000 krónur til ráðstöfunar á mánuði
Fréttatíminn spjallaði við einstæða móður með tvo unglingsstráka, sem við köllum hér Önnu þar sem hún vill
ekki koma fram undir nafni.
Það gæti verið
lausn að selja mig
í einhvern tíma til
að redda allavega
skuldunum.
Kaupir aldrei ný föt
„Verðið á förum er svo brjálæðislegt, nýir
skór geta kostað stóran hluta af mínum
ráðstöfunartekjum. Strákarnir fá föt frá
ættingjum og svo versla ég í Rauða kross
búðunum.“
„Þetta gekk upp þegar ég vann í frystihús-
inu en eftir að ég varð öryrki fór ég að safna
skuldum. Ég hef oft hugsað um hvaða leið
sé út úr þessum ógöngum en sé ekkert.
Stundum hef ég alvarlega íhugað að fara út
í vændi. Það gæti verið lausn að selja mig í
einhvern tíma til að redda allavega skuld-
unum.“
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
Í þau skipti sem ég hef farið fram úr
mér fjárhagslega þá er það oftast vegna
aukaútgjalda fyrir drengina. Um daginn
vantaði innanhússkó og þá bara sleppti
ég því að borða í nokkra daga. Auðvit
að lætur maður börnin ganga fyrir.
Hversu þungt vegur ál?
Ársfundur Samáls fer fram í Kaldalóni í Hörpu, að morgni þriðjudags 20. maí
kl. 8.00.-10.00. Morgunverður frá kl. 8.00 og dagskráin hefst kl. 8.30.
Skráning á www.samal.is
Dagskrá
Á fundinum verður fjallað um horfur í áliðnaðinum og verðmætasköpun fyrir samfélagið allt.
Í samstarfi við Öskju verður nýja C-Class bifreiðin frá Benz
forsýnd í Hörpu á ársfundi Samáls. Álnotkun í Benz C-Class hefur
fimmfaldast úr 10% í 50%. Fyrir vikið er bifreiðin 100 kílóum léttari en
áður, brennir 20% minna eldsneyti og dregið hefur verulega úr losun
gróðurhúsalofttegunda. Á síðustu 20 árum hefur álnotkun að jafnaði
þrefaldast í bifreiðum í Evrópu. Gert er ráð fyrir að hún tvöfaldist
til ársins 2025 og fyrir vikið er talað um álbyltingu í bílaiðnaðinum.
Íslenskt ál er notað í Benz C-Class.
Nýja Leica T myndavélin Apple iPhone 5s Snaginn LÓA
eftir Heklu Björg
Guðmundsdóttur
Mercedes-Benz C-Class
• Ávarp ráðherra
Ragnheiður Elín Árnadóttir,
iðnaðar- og viðskiptaráðherra.
• Ræða formanns
Rannveig Rist, forstjóri Rio Tinto Alcan.
• Horfur í áliðnaðinum
Kelly Driscoll, framkvæmdastjóri á greiningarsviði CRU.
• Sóknarfæri fyrir Ísland
Gerd Götz, framkvæmdastjóri
Evrópsku álsamtakanna.
• Þróun á Mercedes-Benz C-Class
og álbylting í bílaframleiðslu
Lars Wehmeier, framkvæmdastjóri vöruþróunar
C-Class, Daimler AG.
Fundarstjóri er Dagmar Ýr Stefánsdóttir, upplýsingafulltrúi Alcoa Fjarðaráls.
fréttaskýring 21 Helgin 16.-18. maí 2014