Fréttatíminn - 16.05.2014, Blaðsíða 84
— 4 —
NÁMSRÁÐGJÖF OG UPPLÝSINGAR:
SÍMI 525 4444 ENDURMENNTUN.IS
TAKTU
SKREFIÐ
SKAPAÐU ÞÍNA
EIGIN FRAMTÍÐ
NÁMSLÍNUR ÁN EININGA
VERKEFNASTJÓRNUN
OG LEIÐTOGAÞJÁLFUN
x
Á GRUNNSTIGI
LEIÐSÖGUNÁM Á HÁSKÓLASTIGI
STAÐNÁM - FJARNÁM
VIÐURKENNDUR BÓKARI
STAÐNÁM - FJARNÁM
NÁM Í UNDIRSTÖÐUATRIÐUM
HUGRÆNNAR
ATFERLISMEÐFERÐAR
NÁM TIL LÖGGILDINGAR
FASTEIGNA-, FYRIRTÆKJA-
OG SKIPASALA
Á FRAMHALDSSTIGI
FJÖLSKYLDUMEÐFERÐ
DIPLÓMANÁM Á MEISTARASTIGI
JÁKVÆÐ SÁLFRÆÐI
DIPLÓMANÁM Á MEISTARASTIGI
ÖLDRUNARFRÆÐI
DIPLÓMANÁM Á MEISTARASTIGI
NÁMSBRAUTIR Á HAUSTMISSERI
UMSÓKNARFRESTUR TIL 2. JÚNÍ
16. maí 2014
Í samningi Sjúkratrygginga Íslands við Tannlæknafélag Íslands um tann-lækningar barna sem undirritaður var fyrir ári er sérstaklega kveðið á
um símenntun tannlækna. Ekki eru slík
ákvæði í samningum SÍ við aðrar stéttir
lækna en siðareglur þeirra kveða þó á um
að þeim beri að viðhalda þekkingu sinni og
endurnýja hana og fullnægja þeim kröfum
sem gerðar er til starfa lækna á hverjum
tíma.
Að sögn Kristínar Heimisdóttur, for-
manns Tannlæknafélags Íslands, var
ákvæðið sett inn í samninginn að frum-
kvæði tannlækna. „Við viljum að þessi mál
séu í lagi hjá stéttinni. Tannlæknar á Ís-
landi eru almennt mjög duglegir að stunda
símenntun og þetta ákvæði er hvati til að
gera enn betur.“ Tannlæknum ber að ljúka
25 einingum á ári og er hvert samnings-
tímabil til þriggja ára í senn og á því ber
þeim að ljúka 75 einingum.
Símenntun er mjög mikilvæg fyrir tann-
lækna, að sögn Kristínar. „Það koma enda-
lausar nýjungar fram sem mikilvægt er að
kynna sér. Ég útskrifaðist sem almennur
tannlæknir fyrir 19 árum og námsefni nem-
enda í dag er töluvert breytt frá þeim tíma.
Auðvitað eru ákveðin grunnatriði sem
breytast aldrei en nýjungarnar eru miklar.
Fagið er þannig að fólk verður að stunda
símenntun ef það vill vera með á nótunum.“
Kristín segir tannlækna á Íslandi mjög
duglega að sækja sér símenntun og eftir
því tekið hversu margir þeirra sæki ráð-
stefnur, bæði innanlands sem utan. „Við
höldum alltaf ársþing í nóvember og janú-
arkúrsus og um og yfir 80 prósent félags-
manna mæta á ársþingið sem þykir mjög
gott.“ Erfitt getur verið fyrir tannlækna á
landsbyggðinni að komast á fyrirlestra þeg-
ar allra veðra er von og hefur Tannlæknafé-
lagið nýlega tekið í notkun fjarfundabúnað
til að varpa fræðslufundum út á land. Það
er þó enn á tilraunastigi.
Á dögunum fundaði Kristín með for-
mönnum Norrænu tannlæknafélaganna,
meðal annars um ákvæðið, sem vakti at-
hygli þeirra en slíkt tíðkast ekki enn á
hinum Norðurlöndunum. Í Bretlandi og
Sviss eru ákvæði um símenntun tannlækna
tengd starfsréttindum þeirra.
Símenntun tannlækna
tengd samningi við SÍ
Í samningi Tannlæknafélags Íslands og Sjúkratrygginga Íslands um tannlækningar barna er sérstaklega
kveðið á um að tannlæknar skuli stunda símenntun. Ákvæðið var sett inn að frumkvæði Tannlæknafélagsins.
Kristín Heimisdóttir er formaður
Tannlæknafélags Íslands.
Formaður Tannlæknafélags Íslands segir símenntun mjög mikilvæga fyrir tannlækna. „Það koma endalausar nýjungar fram sem
mikilvægt er að kynna sér. Ég útskrifaðist sem almennur tannlæknir fyrir 19 árum og námsefni nemenda í dag er töluvert breytt
frá þeim tíma.“ Ljósmynd/NordicPhoto /GettyImages