Fréttatíminn - 16.05.2014, Blaðsíða 54
umhirða húðar Helgin 16.-18. maí 201454
Miracle Skin er nýtt krem frá Garnier sem gefur húðinni fallega áferð og er sérstaklega
þróað til að draga úr einkennum þreytu og lagar sig að litarhafti hverrar og einnar. Kremið
hefur notið mikilla vinsælda á Íslandi og er förðunarbloggarinn Erna Hrund himinlifandi
með árangurinn af notkun þess.
Erna Hrund, förðunarbloggari á trendnet.is, notar Miracle Skin kremið á hverjum
degi. Hún segir ekki þörf á að nota rakakrem áður en það er borið á andlitið. Í
kreminu eru lita-pigment sem gefa létta og náttúrulega þekju með frísklegum
ljóma. „Fullkomið eftir svefnlitla nótt,“ segir hún.
Miracle Skin kremið –
algjört kraftaverk
Þetta krem er algjör þreytubani
en ljóminn í kreminu vinnur á
móti gráum litartóni sem getur
komið yfir þreytta húð.
N ýlega kynnti Garnier nýj-ung sem flokka má bæði sem förðunar- og snyrti-
vörukrem og er þróað fyrir þreytta
húð. Rannsókn sem gerð var
meðal breskra kvenna sýndi fram
á að konur hafa í auknum mæli
áhyggjur af því að þreyta sjáist í
andliti þeirra. Miracle Cream er
hannað með það í huga að draga
úr einkennum þreytu og öldrunar.
Miracle kremið er mjög drjúgt
og gefur húðinni samstundis
góðan raka sem endist allan dag-
inn. Það er hugsað til þess að nota
eitt en auk þess að gefa næringu.
Þá inniheldur það örfín lita-pig-
ment sem springa út og aðlagast
litarhafti hverrar konu þegar það
kemst í snertingu við húðina.
Kremið er því aðeins fáanlegt í
einum lit sem hentar öllum húð-
litum. Bæði jafnar það áferð og lit-
arhaft húðarinnar og gefur henni
fallegan og léttan ljóma. Kremið
er fullkomið fyrir íslenskar kon-
ur og íslenska veðráttu. Kremið
inniheldur SPF 20 og hentar því
vel til í sumar og til að taka með í
sólarlandaferð sumarsins.
Formúla kremsins inniheldur
virk efni sem draga úr fínum
línum, dökkum litablettum og
svitaholum. Miracle Skin kremið
hefur vakið verðskuldaða athygli
erlendis og er nú fáanlegt á Ís-
landi. Förðunarbloggarinn Erna
Hrund sem er með síðuna Reykja-
vík Fasion Journal á vefsvæðinu
trendnet.is notar kremið og er
mjög ánægð með árangurinn.
Erna Hrund gefur nokkur góð ráð
um hvernig má nota kremið og
fyrir hverjar það hentar.
Ég kynntist Miracle Skin krem-
inu frá Garnier nýlega og það var
ást við fyrstu sýn. Ég er með mjög
ljósa húð og hef því alltaf vissar
efasemdir þegar sagt er í snyrti-
vöruauglýsingum að undirstöðu
krem séu með lit sem aðlagist
litarhafti hverrar konu þar sem
það stenst alltof sjaldan. Miracle
kremið frá Garnier aðlagar sig svo
sannarlega að litarhafti hverrar
konu. Kremið er hvítt þegar það
kemur úr túbunni og þegar það
kemst í snertingu við húðina þá
springa út lita-pigment sem gefa
mjög létta og náttúrulega þekju
með frísklegum ljóma. Þetta krem
er algjör þreytubani en ljóminn
í kreminu vinnur á móti gráum
litartóni sem getur komið yfir
þreytta húð. Fullkomið eftir svefn-
litla nótt.
Ég er með mjög þurra húð og ég
ráðlegg konum sem eru með eins
húð og ég að nota alltaf rakakrem
áður en þær bera á sig farða eða
lituð dagkrem. Þetta er eitthvað
sem ég hef vanið mig á og geri
á hverjum einasta degi. Miracle
Skin kremið er svo rakamikið og
drjúgt að þetta er fyrsta snyrti-
varan sem ég nota á alveg tandur-
hreina húð, rakakrem er algjör
óþarfi þegar ég er með þetta krem.
Ég ber þetta krem á mig á hverjum
morgni og ef ég er að fara eitthvað
eftir vinnu og vil aðeins fríska upp
á húðina ber ég smá Miracle Skin
krem aftur til að auka aðeins á
ljómann.
Áferðin frá kreminu er ótrúlega
falleg og að mínu mati hentar það
öllum aldri en á umbúð-
unum stendur að það sé
Anti Ageing en kremið
sjálft styrkir húðina
og gefur mikinn raka.
Með aldrinum getur
húðin þornað og því
er mjög gott fyrir
eldri húð að nota
rakamikil krem.
Ef konur vilja meiri
þekju er þetta krem
mjög gott undir
farða.
Ég er rosa-
lega hrifin
af öllum
nýjungunum
sem voru
að koma
núna frá
Garnier
en Mri-
acle Skin
kremið
og Opti-
cal Blur
kremið eru
vörur sem
ég nota
nánast á
hverjum
degi og
algjört
ofur-
tvíeyki.