Fréttatíminn


Fréttatíminn - 21.02.2014, Side 14

Fréttatíminn - 21.02.2014, Side 14
Ég var heilu sumrin í sveit sem barn og á menntaskólaárunum vann ég á bóndabæ í Þýskalandi Firring og fróðleiksflótti É g var að skoða bókina um hann Bóbó bangsa sem heimsótti bóndabæinn með fjögurra ára dóttur minni þegar við komum að mynd þar sem bóndinn er að mjólka í fötu og dóttir mín bendir á fötuna undir spenunum og segir: Þetta er svo hún pissi ekki í moldina. Vitanlega var mér brugðið yfir vanþekkingu barnsins enda hef ég reynt að uppfræða hana sem allra mest um lífs- ins gagn og nauðsynjar, og hef minnst þrisvar sinnum farið með henni í fjós þar sem við höfum fylgst með því þegar kýrnar eru mjólk- aðar – raunar með vél. Já, þetta barn ætti að vita allt um hvernig kýrnar eru mjólk- aðar og að mjólkin sem við drekkum kemur frá kúnum, en það er greinilega aðeins of langt síðan við höfum farið í sveitina. Sjálf var ég heilu sumrin í sveit sem barn; ég horfði á burð lamb- anna, smalaði kindunum á hestbaki, tíndi eggin undan hænunum og horfði á hanana hálshöggna og hengda upp á þvottasnúru svo búkurinn hlypi ekki í burtu. Þegar ég var eilítið eldri vann ég á kjúklingabúi við að gefa ungunum og flokka innyfli í poka, en á þessum tíma fylgdi sett af innyflum með hverj- um heilum kjúklingi í matvörubúðinni. Á menntaskólaárunum starfaði ég í heilt sumar á bóndabæ í Þýskalandi þar sem mitt fyrsta verk alla kalda og dimma morgna var að mjólka kýrnar. Ég veit alveg hvernig lífið gengur fyrir sig hjá blessuðum dýrunum og ég veit hvernig þau eru drepin til að við fáum kjöt á diskinn okkar. Sem blaðamaður hef ég mikið fjallað um dýravernd og vistvænan búskap. Árið 2010 skrifaði ég heila greinaröð um geldingu grísa án deyfi- lyfja, að bændur geldi kálfa með töngum, um að flest íslensk egg koma undan hænum sem eru lokaðar í búri alla ævi og að kúabændur hafi verið sektaðir fyrir að hleypa ekki mjólk- urkúnum sínum út undir bert loft. Svo dæmi séu tekin. Ég er dýravinur og vil að við komum vel fram við dýrin okkar. En ég er ekki í hópi þeirra sem misbauð að gíraffan- um Maríusi hafi verið slátrað í dönsk- um dýragarði. Talað hefur verið um að börnin hafi verið neydd til að horfa upp á þetta en foreldrum var uppálagt að gefa börnum sínum tækifæri til að fylgjast með og fá fræðslu í leiðinni. Ég hef skoðað mjög grafískar myndir af því þegar hann var skorinn niður og komst að því að anatómía gíraffa er beinlínis einstök, hann er með tvö hjörtu sem eru tæp tíu kíló hvort, auk þess sem bygging hálsins er rann- sóknarefni út af fyrir sig. Já, og svo misbauð einhverjum að hræ gíraffans skyldi gefið ljónunum sem átu það fyr- ir framan dýragarðsgesti, sem raunar er það sem næst kemst eðlilegri hegðun ljóna sem ekki fá að veiða sér til matar. Þannig á þetta sér nefnilega stað í náttúrunni. Og þó við Íslend- ingar séum ekki vanir því að leggja gíraffa okkur til matar þá slátrum við fagureygðum kálfum, glaðværum lömbum og aðeins of sætum grísum til að matbúa og halda veislu. Við lítum ekki á okkur sem villimenn þrátt fyrir það þó það sé þægilegra að ímynda sér að kjötið sé ræktað bakatil í Nóatúni eða búið til frá grunni í kjötverksmiðju á vegum Hagkaupa. En að fordæma dýragarð í Danmörku fyrir að slátra einu af dýrum garðsins og gefa öðru er beinlínis fáránlegt. Svo við tölum nú ekki um að nákvæmlega það sama á sér reglulega stað í okkar ástkæra Fjölskyldu- og húsdýragarði þó að, því miður, viti ég ekki til þess að börnin geti fengið að fylgjast með þar. Þetta barn ætti að vita allt um hvernig kýrnar eru mjólkaðar og að mjólkin sem við drekkum kemur frá kúnum Erla Hlynsdóttir erla@ frettatiminn.is sjónarhóll Regluvörður ástarinnar Ég er algjörlega á móti því að karlmenn virði ekki þennan dag. Það er ekki kúl. Ásdís Rán tekur Valentínusardaginn mjög alvarlega. Dramb er falli næst Mér finnst hroki alltaf löstur á ráði stjórnmálamanna, Svandís Svavarsdóttir, þingmaður VG, sá ýmislegt athugavert við framkomu forsætisráðherra í sögulegu viðtali við Gísla Martein. Óbærilegur ömurleiki pólitíkurinnar Mér fannst þetta ömurlegt viðtal, svo það sé nú bara sagt, ömurlegt. Ragnheiði Ríkharðsdóttur, þingflokks- formanni Sjálfstæðisflokksins, var ekki skemmt yfir viðtali Gísla Marteins við Sigmund Davíð. Voff ! Gísli Marteinn var eins og smáhundur sem geltir skrækum rómi og glefsar í ökkla í viðtalinu við forsætis- ráðherra. Ólafur Arnarson hagfræðingur gaf nýrri viðtalstækni Gísla Marteins falleinkunn á Facebook-síðu sinni. Furðuveröld Gísla Þetta var furðulegasta viðtal sem ég hef farið í, vissulega. Sjálfum fannst Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni forsætisráðherra þras sitt við Gísla Martein allt hið einkennilegasta. Breiða bakið Það eru engin mál á mínu baki lengur. Björn Leifsson, kenndur við World Class, telur full mikið gert úr skuldamálum sínum. Fór flokkavillt Það var ljóst að fundurinn var ekki að biðja um mig. Grímur Atlason reið ekki feitum hesti frá valfundi VG í Reykjavík þar sem hann gaf kost á sér í oddvitasætið. Hvað varstu að segja? Ég vil nú helst tala í fortíðinni og horfa til framtíðar og standa hér í nútíðinni heldur en að vera að líta til baka. Vigdís Hauksdóttir steig fram sem atóm- skáld í Kastljóssumræðum um ESB- skýrsluna. Ansans vesen! Þá hljótum við að geta verið sammála um að það er ákveðinn ómögu- leiki hér til staðar sem ekki verður hægt að komast í kringum. Bjarni Benediktsson, fjár- málaráðherra, rakst á ljón á veginum til ESB.  Vikan sem Var 158 kíló hafa þátt- takendur í Biggest Loser misst á fyrstu fjórum vikunum undir stjórn Gurrýjar og Everts. 20.000 heimili á Íslandi eru með áskrift að Netflix samkvæmt könnun MMR fyrir Viðskiptablaðið. 60 herbergi bætast við Reykjavík Hótel Marina á næstunni. Borgarráð hefur samþykkt að selja fasteignafélaginu Slippnum ehf. lóðina við Mýrargötu 10-12 á 142 milljónir króna. 108 her- bergi eru á hótelinu en með stækkuninni bætast við 60-90 herbergi. 466 milljóna hagn- aður varð af rekstri Sláturfélags Suður- lands á síðasta ári. 14 viðhorf Helgin 21.-23. febrúar 2014 Opið til kl. 21 alla daga í Faxafeni

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.