Fréttatíminn - 21.02.2014, Side 19
KAKA ÁRSINS 2014
Karamellusúkkulaðiterta með anís og rauðum Ópal
ER KOMIN Í BAKARÍ UM ALLT LAND
Sigurjónsson í Digraneskirkju er
minn prestur, hann á mótorhjól og
er sterkasti prestur í heimi. Ég upp-
lifi hann sem andlegan leiðtoga,
ekki af því að hann er prestur
heldur af því að hann var alltaf svo
jákvæður og kröftugur. Ef hann
væri bara venjulegur prestur myndi
ég kannski ekki leggja svona mikið
upp úr þessu. Hann er til dæmis
eini presturinn sem ég veit um sem
neitaði að gifta fólk því hann hafði
ekki trú á sambandinu.
En við Kalli komumst að niður-
stöðu á endanum. Hann er alinn
upp af sósíalískum femínístum en
foreldrar mínir og afi voru fram-
sóknarfólk og sem unglingur var
ég skráð í Framsóknarflokkinn
þó ég sé óflokksbundin í dag. Ég
vann hjá Búnaðarsambandinu og
var í sveit flest sumur, átti hesta og
gekk um í lopapeysu og drullugum
bomsum á meðan Kalli sat í bænum
og talaði við foreldra sína um pólitík
við eldhúsborðið.“ Kalli minnir þó á
að hann tali oft um pólitík við pabba
Tobbu. „Hann spyr mig alltaf annað
slagi hvað sé að frétta úr borginni,
svona eins og hann búi í sveit,“ seg-
ir Kalli um Kópavogsbúann Marínó
en Kalli hefur síðustu fjögur ár
starfað sem borgarfulltrúi Besta
flokksins. Tobba sættist á að það
hafi verið rætt um pólitík á þeirra
heimili en hún hafi ekki tengst
flokkum heldur baráttu móður
hennar við yfirvaldið. „Öll systkini
mín hafa á einhverjum tímapunkti
átt við alvarleg veikindi að stríða.
Mamma hefur átt í pólitískri bar-
áttu við heilbrigðisyfirvöld og hún
er sérfræðingur í að koma börnun-
um sínum í réttar hendur. Líklega
er sami baráttuhugurinn hjá báðum
fjölskyldum en baráttan hefur átt
sér stað á ólíkum vígstöðvum.“
Skrýtið að starfa í pólitík
Kalli er í 16. sæti á lista Bjartrar
framtíðar fyrir komandi borgar-
stjórnarkosningar og verður því
ekki lengur í framlínunni. „Ég er
virkilega ánægður með fólkið sem
tekur við keflinu. Þarna er fólk úr
Besta flokknum, einhverjir nýir
og fólk sem var áður neðar á lista
tekur sæti ofar. Ég er í rauninni að
fara öfuga leið, er búinn að vera í
framlínunni en fer síðan í bak-
landið. Ég hef enn mikinn áhuga á
starfinu og málaflokkunum en mig
langar að vera í annarri dagvinnu.
Þessi fjögur ár voru hæfileg fyrir
mig. Svo eru aðrir, eins og Björn
Blöndal, sem blómstrar í þessu.
Hann kann þetta, hefur gríðarlegan
áhuga og hefur síðustu fjögur árin
sett sig inn í öll mál með borgar-
stjóranum,“ segir Kalli en Björn er
aðstoðarmaður borgarstjóra.
„Ég get enn afsakað mig með því
að segja að Jón Gnarr hafi platað
mig í framboð og sagt að ég þyrfti
ekki að gera neitt, og að þetta yrði
ágætt flipp. Ef ég byði mig fram
aftur hefði ég enga afsökun,“ segir
Kalli á léttu nótunum en er þess
þó fullviss að hann langar ekki að
Alinn upp af sósíalískum
femínistum
„Í raun er mjög fyndið hvað við
erum ólík og við getum rifist eins
og hundur og köttur,“ segir Tobba
hreinskilnislega. „Hann er til
dæmis algjör heiðingi – óskírður og
ófermdur – og nú þegar við erum
að eignast saman barn mæta okkur
ýmsar áskoranir, til að mynda þurf-
um við að komast að niðurstöðu
um hvort það eigi að skíra barnið.
Kalla finnst ekki sjálfsagt að barnið
sé skírt af presti í kirkju og þó ég
sé ekki mjög trúuð þá ólst ég upp
við að presturinn í mínu lífi var
hálfgerð stórstjarna. Séra Gunnar
Tobba Marínós og Karl Sigurðs-
son leggja mikið upp úr því að
rækta sambandið og segja að smá-
atriðin skipti miklu, til dæmis að
reyna að taka hvort öðru fagnandi
í hvert skipti sem þau hittast í lok
vinnudags. Ljósmynd/Hari
Framhald á næstu opnu
viðtal 19 Helgin 21.-23. febrúar 2014